Morgunblaðið - 12.05.2011, Qupperneq 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
En hjálparinn, andinn heilagi, sem
faðirinn mun senda í mínu nafni, mun
kenna yður allt og minna yður á allt
það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)
Víkverji veit ekki hver átti upp-tökin að því að búa til alþjóðlega
daga þessa og hins, en þegar á annað
borð var farið af stað var eins og
mönnum héldu engin bönd. Í dag er
til dæmis dagur bæði hjúkrunar-
kvenna og síþreytu. Alþjóðlegi
fjölskyldudagurinn rennur upp 15.
maí og 17. maí er alheimsdagur upp-
lýsingasamfélagsins. 18. maí er al-
þjóðlegi safnadagurinn og 23. maí er
alheimsdagur skjaldbaka.
x x x
Handklæðadagurinn rennur upp25. maí. Hann er tileinkaður
minningu Douglas Adams, höfundar
The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy,
en samkvæmt fræðunum mun hand-
klæði vera mesta þing, sem putta-
ferðalangurinn getur haft með sér á
ferðum sínum milli sólkerfa.
x x x
Víkverji átti von á því þegar hannfór að kynna sér alþjóðlega daga
ársins að þeir væru allir uppteknir, en
svo er þó ekki þannig að enn hlýtur að
vera tækifæri fyrir þá, sem eiga sér
góðan málstað, sem ekki er metinn að
verðleikum. Hann fann þó dag hafsins
og dag örvhentra, 19. september hef-
ur verið tekinn frá sem alþjóðlegur
tala-eins-og-sjóræningi-dagur, al-
þjóðlegi handþvottadagurinn er 15.
október og hnattræni klósettdagurinn
19. nóvember. Yfirmannadagurinn,
staðladagurinn og tölfræðidagurinn
eru á sínum stað og einhverjum datt í
hug að búa til alþjóðlegan tolladag.
Nú nálgast reyklausi dagurinn. Það
er eini dagurinn á árinu, sem hvarflar
að Víkverja að byrja að reykja.
x x x
Eins dags saknar þó vinur Vík-verja sárlega. Það er alþjóðlegi
ekki neitt-dagurinn. Enn virðist
þrýstihópurinn um ekki neitt ekki
vera orðinn nógu öflugur til að njóta
þeirrar alþjóðlegu viðurkenningar,
sem fólgin er í því að helga heilan dag
ekki neinu – og gerir kannski ekki
neitt til þess. Víkverji hefur velt fyrir
sér hvernig á því standi, en telur best
í stöðunni að segja ekki neitt.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hefur sig lítt í
frammi, 8 horskur, 9 súrefnis,
10 ætt, 11 fugl, 13 ómerkileg
manneskja, 15 fars, 18 hug-
uðu, 21 hold, 22 matbúa, 23
rödd, 24 afleggjara.
Lóðrétt | 2 auðvelda, 3 til-
biðja, 4 uppnám, 5 dvaldist,
6 skjót, 7 tjón, 12 ferskur, 14
málmur, 15 poka, 16 megn-
ar, 17 vik, 18 svikuli, 19
óbrigðul, 20 kvendýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hótel, 4 sonur, 7 fitla, 8 endum, 9 nær, 11 afar, 13 hirð,
14 eflir, 15 hólf, 17 ósar, 20 err, 22 pútan, 23 ískur, 24 rimma, 25
tjara.
Lóðrétt: 1 hefja, 2 titra, 3 lóan, 4 sver, 5 níddi, 6 rúmið, 10 ætl-
ar, 12 ref, 13 hró, 15 hopar, 16 lítum, 18 sekta, 19 rýrna, 20
enda, 21 ríkt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
12. maí 1412
Einar Herjólfsson lést. Hann
var farmaður og er talið að
svarti dauði hafi borist til Ís-
lands með honum árið 1402. Í
þeirri plágu, sem geisaði í
þrjú ár, lést um þriðjungur
þjóðarinnar.
12. maí 1882
Konur fengu ótvíræðan en
takmarkaðan kosningarétt til
sveitarstjórna. Rétturinn
náði aðeins til ekkna og
ógiftra kvenna sem voru
orðnar 25 ára.
12. maí 1935
Golf var leikið í fyrsta sinn á
Íslandi þegar sex holu völlur
Golfklúbbs Íslands var vígður
í landi Austurhlíðar í Laug-
ardal í Reykjavík.
12. maí 1942
Reykjavíkurbær keypti
Korpúlfsstaði, Lágafell og
fleiri jarðir í Mosfellssveit af
Thor Jensen. Kaupin voru
samþykkt einróma í bæj-
arráði. „Stórfelldustu hér-
lend jarðakaup,“ sagði Morg-
unblaðið. Alþýðublaðið taldi
kaupin opna nýja möguleika
fyrir bæjarfélagið og bæj-
arbúa.
12. maí 2005
Danski stórmeistarinn Hen-
rik Danielsen sló Íslands-
metið í blindskák þegar hann
tefldi átján skákir samtímis,
vann fimmtán og gerði þrjú
jafntefli. Viðureignin stóð í
sex klukkustundir.
12. maí 2009
Ríkisstjórnarfundur var
haldinn á Akureyri, sá fyrsti
utan höfuðborgarsvæðisins
og Þingvalla.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég hélt upp á þrítugsafmælið mitt með vinkonu
minni og tvítugsafmælið er náttúrlega eftir-
minnilegt, en þetta er ekkert stórafmæli núna. Ég
ætla bara að fá fjölskylduna í kaffi annað kvöld,“
segir Sandra Konráðsdóttir, leikskólastjóri, sem á
35 ára afmæli í dag.
Sandra stýrir leikskólanum Brekkubæ á Vopna-
firði, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum og
syni. Þótt lítið verði um formleg hátíðahöld í til-
efni afmælisins er þó margvíslegt skemmtanahald
framundan. „Ég fer til útlanda núna eftir hálfan
mánuð, það er nú svona pínu afmælis. Fer til Sví-
þjóðar með vinkonurnar að heimsækja frænku mína.“ Svo má auðvit-
að ekki gleyma Evróvisjón, því Sandra er ekki undanskilin öðrum
landsmönnum þegar kemur að áhorfi á söngvakeppnina, jafnvel þótt
hún eigi afmæli. „Það er alveg partur af „prógrammet“. Við höfum
alltaf hist nokkur, borðað saman og horft á þetta, búin að gera það í
mörg ár. Núna síðustu ár hefur þetta svo oft verið í kringum afmælið
mitt.“ Í sumar sér Sandra svo fram á ýmis ferðalög um landið, í sum-
arbústaði og á fótboltamót með strákinn. Þegar haustar fjölgar svo í
kotinu, því þá eiga þau hjón von á sínu öðru barni. una@mbl.is
Sandra Konráðsdóttir 35 ára
Evróvisjón skylduáhorf
Akureyri Elísa
Sofía fæddist
12. mars kl.
13.33. Hún vó
3.185 g og var
52 cm löng.
Foreldrar
hennar eru
Anja Elisabeth
Müller og Helgi
Viðar Tryggva-
son.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú þarft að miðla skilaboðum til
fjöldans. Manneskju sem ætlað er að tala
gengur betur ef hún hlustar. Eitthvert ósætti
er framundan í stórfjölskyldunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það þarf ekki mikið til þess að ýta
undir köfnunartilfinningu eða að þér finnist
þrengt að þér núna. Helgaðu þig heilbrigðu
líferni næstu vikurnar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það getur vakið ýmsar tilfinningar
þegar ganga þarf frá persónulegum málum.
Þú ert potturinn og pannan í fjölskyldunni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að leggja ofuráherslu á vinnuna fær-
ir þér engin vinsældaverðlaun heima fyrir.
Reyndu að herða upp hugann og ýta áhyggj-
unum frá þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það eru miklar líkur á því að vinur þinn
fari á bak við þig í dag. Segja má að það
kveði við nýjan tón í ástamálunum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fólk kemur hlaupandi til þín í leit að
ráðum. Leyfðu þér að njóta lífsins.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það opnar þér ýmislegt nýtt hversu
auðvelt þú átt með að skilja aðstæður ann-
arra. Best er að hver myndi sér skoðun
sjálfur og þá má vera að þú eignist jábræð-
ur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ástvinir þarfnast aðstoðar til
þess að yfirvinna neikvæðni. Ekki láta svart-
sýni annarra hafa áhrif á þig. Gakktu ein-
faldlega í burtu og hlustaðu á þá jákvæðu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er kominn tími til þess að
þú dragir þig í hlé frá ákveðnum málum og
leyfir öðrum að taka við. Minntu þig á að
hamingjan er ekki fólgin í auðæfum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Eitthvað varðandi sameiginlegar
eignir gæti skekkt myndina um framtíðina.
Einhver kýs að forðast þig, seinna færðu að
vita hvers vegna.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér finnst álagið í vinnunni vera
orðið fullmikið. Hafðu það hugfast að ekkert
kemur í stað góðrar vináttu. Hvíldu þig bet-
ur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er óþarfi að apa allt eftir öðrum.
Taktu þér stund til að vera í einrúmi og
gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
8 2 7
2 6 4 9 8
7 8 3 5
7 8 9 4
7 5
6 4 3 8
7 5
2 3 7
8 1
3 2 9
5 9 4 3
8 6 4
8 5 6
1 9
5 8
5 3 4 9
6
5 6 3 4
4 9
6 5
3 8 2 1
1 5 4 8
8 6 3 1 4
9 8 2 1
4 9 2 5 1 8 6 7 3
6 1 8 7 2 3 9 4 5
3 7 5 4 6 9 8 2 1
9 6 3 1 4 5 2 8 7
7 8 1 2 9 6 5 3 4
2 5 4 8 3 7 1 6 9
8 4 6 3 5 1 7 9 2
1 2 7 9 8 4 3 5 6
5 3 9 6 7 2 4 1 8
2 9 5 6 7 4 1 3 8
3 1 6 5 2 8 4 9 7
7 4 8 9 3 1 5 2 6
6 2 4 1 8 7 3 5 9
5 3 1 2 6 9 8 7 4
9 8 7 4 5 3 6 1 2
1 7 2 3 4 6 9 8 5
4 5 3 8 9 2 7 6 1
8 6 9 7 1 5 2 4 3
3 9 8 4 5 1 2 7 6
1 6 4 7 2 8 5 3 9
5 7 2 6 3 9 1 4 8
8 5 3 2 9 6 4 1 7
6 1 9 5 4 7 8 2 3
2 4 7 1 8 3 6 9 5
7 3 5 8 1 4 9 6 2
9 8 1 3 6 2 7 5 4
4 2 6 9 7 5 3 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 12. maí,
132. dagur ársins 2011
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. d4 cxd4 5.
Rxd4 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 0-0 8. Bb3 a5
9. 0-0 a4 10. Rxa4 Rxe4 11. Rb5 Ha6 12.
He1 d6 13. c4 Bd7 14. De2 Rf6 15. Had1
Ra5 16. Bc2 Rc6 17. c5 Rb4 18. Bb3 Da5
19. Rac3 dxc5 20. Bxc5 Rxa2 21. Bxe7
Rxc3 22. Rxc3 He8
Staðan kom upp í fyrstu deild Íslands-
móts skákfélaga í Rimaskóla. Sigurbjörn
Björnsson (2.300) hafði hvítt gegn Páli
Agnari Þórarinssyni (2.258). 23. Hxd7!
Rxd7 24. Bxf7+! Kh8 svartur hefði orðið
mát eftir 24. … Kxf7 25. Dc4+. 25. Bxe8
Re5 26. Bb5?! nákvæmara var að leika
26. b4! Í framhaldinu fær svartur nokk-
urt spil án þess þó að yfirburðir hvíts séu
í hættu. 26. … He6 27. Bh4 Rf3+ 28.
gxf3 Hxe2 29. Bxe2 Db4 30. Bg3 Dxb2
31. Re4 b5 32. Hd1 Dxe2 33. Hd8+ Bf8
34. Hxf8+ Kg7 35. Hf6 b4 36. Be5 b3 37.
Kg2 Dc2 38. Hc6+ og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sóknarspil. N-Enginn.
Norður
♠4
♥ÁKDG105432
♦–
♣ÁG3
Vestur Austur
♠1053 ♠DG986
♥8 ♥–
♦ÁG753 ♦KD1062
♣10986 ♣K52
Suður
♠ÁK72
♥976
♦984
♣D74
Suður spilar 7♥.
Ómar Olgeirsson hafði ekki trú á
varnarmættinum og sagði „einum
meira“ í von um stærri ávinning. Hann
var í norður og opnaði á tískusögninni
2♦ til að sýna hjartalit og óræðan
styrk. Austur kom inn á 2♠ og Sveinn
Rúnar Eiríksson í suður tók undir
hjartað með hundana þrjá. Gekk svo á
með stimpingum um stund, en á end-
anum varð Ómar að gera upp við sig
hvort hann sætti sig við litla tölu í vörn
gegn 6♠ dobluðum eða freistaði gæf-
unnar í alslemmu. Hann lét vaða í sjö.
Útspilið var ♦Á. Sveinn trompaði,
hraðspilaði síðan öllum hjörtunum.
Fyrsta afkast Sveins var ♠7, sem hafði
þau áhrif að lokka vestur til að henda
frá tíunni þriðju. Meira þurfti ekki til:
síðasta trompið þvingaði austur í
svörtu litunum og ♠2 suðurs varð úr-
slitaslagurinn.
Nýirborgarar
Flóðogfjara
12. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.11 3,2 7.39 1,0 13.57 3,1 20.12 1,1 4.23 22.26
Ísafjörður 3.12 1,8 9.50 0,4 16.08 1,6 22.20 0,5 4.06 22.53
Siglufjörður 5.17 1,1 11.47 0,2 18.19 1,1 3.48 22.37
Djúpivogur 4.41 0,8 10.59 1,7 17.11 0,7 23.31 1,9 3.47 22.01
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is