Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 AF EVRÓVISJÓN Árni Matthíasson arnim@mbl.is Það hefur löngum verið til siðsað agnúast út í Evróvisjón-keppnina sem auma lág- kúru, smekkleysu og tildur. Frægt var þegar þekktur íslenskur tónlist- argagnrýnandi sagði þátttöku Ís- lendinga því líkast sem svamlað væri í tónlistarlegri hlandfor. Fyrir áratug eða svo gekk keppnin aftur á móti í endurnýjun lífdaganna, þáttaka Austur-Evrópuþjóða varð til þess að skyndilega fóru þjóðir að taka þátt í keppninni af alvöru, senda alvöru listamenn en ekki af- lóga jálka, eyða peningum í útsetn- ingar og lagasmíðar og búninga og dansþjálfun svo úr varð alvöru skemmtiefni, stundum skemmtilegt vegna þess hve illa það var heppnað og klaufalegt, en líka vegna þess hversu vel var að verki staðið; allt helst í hendur, gott lag, fínn texti, flott útsetning og framúrskarandi flutningur.    Það kom því töluvert á óvarthve margar þjóðir flöskuðu á einhverju þessara atriða þegar kom að sjálfri úrslitastundinni. Það er vissulega ekki auðvelt að troða upp frammi fyrir tugmilljónum, hvað þá með heila þjóð á herðunum, og ef- Versta frammistaða kvöldsins var síðan hjá armensku söngkonunni Emmy, enda svo mikil keyrsla á henni í dansinum að bitnaði harka- lega á röddinni. Hún fór prýðilega af stað en svo var hún orðin svo móð að röddin var nánast horfin. Það var ekki til bóta hve lagið var slakt.    Það hefur verið áberandi síð-ustu ár hvað Austur-Evr- ópuþjóðir hafa lagt mikið undir í keppninni, sent sína fremstu lista- menn og ekkert til sparað í sviðs- búnaði og -setningu. Fyrir vikið hefur þeim og gengið betur en Vestur-Evrópuþjóðum sem margar hafa sent mannskap úr neðri deild- um skemmtanaiðnaðarins. Keppnin í fyrrakvöld, og væntanlega kvöldið í kvöld einnig, sýnir okkur að bilið hefur minnkað, æ fleiri taka keppn- ina alvarlega sem skilar sér í betri þátttakendum, betri lögum og meiri skemmtan hvort sem menn hlæja með eða að. Alvöruskemmtiefni Reuters Skemmtan Portúgalski þjóðlagaflokkurinn Homens Da Luta notaði greinilega þýðingarþjónustu Google. laust má skrifa bresti í söng og framkomu á slíkt, en verður að skrifa það á þá sem setja upp atrið- in að laga þau ekki að getu söngv- aranna í söng og fimleikum.    Sem dæmi má nefna framlagPóllands sem var fyrst í röð- inni, flutningurinn misheppnaður að mestu leyti, hreyfingar stífar og klunnalegar og lagið hæfði ekki söngkonunni Magdalenu Tul sem er raddmikil en ekki með fallega rödd og orðin uppgefin um miðbik lags- ins – varð að hafa sig alla við að geta sungið skammlaust á milli þess sem hún hristi sig og skók. Framlag Norðmanna var líka klaufalegt, hreyfingar söngkonunnar Stellu Mwangi slakar, röddin takmörkuð og sviðsmyndin fulleinföld. Albanar fóru í hina áttina, raddmikil söng- kona, Aurela Gaçe, með allt í botni að segja allan tímann og öllu tjaldað sem til var í sviðsframkomu, bún- ingum og hádramatískum hreyf- ingum. Sannkölluð soðgrýla. Eftir að allir fóru að syngja á ensku kem- ur og annað í ljós – enskukunnátta Evrópubúa er sjaldnast upp á marga fiska sem sannast á klaufa- legum framburði svissnesku söng- konunnar Önnu Rossinelli og Tyrkjans Kutlu Özmakinaci sem fór fyrir sveitinni Yüksek Sadakat. »Æ fleiri takakeppnina alvarlega sem skilar sér í betri þátttakendum, betri lögum og meiri skemmt- an hvort sem menn hlæja með eða að. Hljómsveitirnar Pascal Pinon og Retro Stefson fengu hæstu fram- lögin sem er úthlutað úr tónlistarsjóði Kraums í ár. Sam- tals er níu milljónum króna varið til 15 verkefna á sviði íslenskrar tónlistar, en úthlutunin var kynnt í gær. Hljómsveitirnar Pascal Pi- non, Árstíðir og Endless Dark hljóta stuðning við kynningu á sér og tónlist sinni á erlendum vettvangi, auk þess sem Kraumur heldur áfram að vinna með og styðja við Retro Stefson og Diktu í sömu erindagjörðum. Í báðum tilvikum studdi Kraumur sveit- irnar við undirbúning og gerð hljómplatna árin 2009 og 2010 (Get it Together og Kimbabwe) sem nú er stefnt á að kynna frek- ar á erlendum vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Fær Pascal Pinon 1,2 milljónir kr. og Retro Stefson eina milljón kr. Hljómsveitirnar Árstíðir og Dikta fá hvor um sig 800.000 kr. Þá fær Endless Dark 700.000 kr. Tónlistarhátíðin Eistnaflug, tónleikaferðin Póst rokk & ról, tónskáldið Guðmundur Steinn Guðmundsson og Sjóræningja- húsið á Patreksfirði fá stuðning við tónleikahald innanlands, sem hluti af Innrásarverkefni sjóðs- ins. Markmið Innrásarinnar er að auka möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds inn- anlands, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á fram- færi víðar en á höfuðborgar- svæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Alls bárust 233 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums og var strax ljóst að Kraumur myndi aðeins styðja við lítinn hluta þeirra verkefna sem sótt var um stuðning fyrir að þessu sinni, enda yfirlýst stefna sjóðsins að styrkja frekar til- tölulega fá verkefni/listamenn, en gera það þannig að stuðning- urinn sé afgerandi fyrir viðkom- andi listamenn og verkefni þeirra. 9 milljónum varið til 15 tónlistarverkefna Morgunblaðið/Eggert Pascal Pinon Hljómsveitin fékk hæsta styrkinn frá Kraumi, 1,2 milljónir króna. Sveitin tók lagið á Faktorý í gær eftir að úthlutunin var kynnt.  Kraumur tónlistarsjóður kynnti úthlutun til listamanna og verkefna í gær á Faktorý Bar SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D FAST FIVE KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 FAST FIVE Í LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 THOR 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 SCREAM 4 KL. 5.40 - 10.30 16 HANNA KL. 8 - 10.25 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 - 5.45 L RIO 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L HOPP ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 L FAST FIVE KL. 5.40 - 8 - 10.25 12 THOR 3D KL. 5.40 - 8 - 10.15 12 A.E.T - MBL MBL FAST FIVE KL. 5.20 – 9 12 HÆVNEN KL. 5.40 – 8 – 10.20 12 THOR 3D KL. 6 - 9 12 HANNA KL. 8 - 10.20 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 6 L LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum “Thor er klárlega ein óvæntasta mynd ársins... Hasar, húmor og stuð alla leið. Skottastu í bíó!” T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt  “Myndin er algjör rússibana- reið og frábær bíóupplifun” A.E.T - MBL POWE RSÝN ING STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA FAST & FURIOUS 5 Sýnd kl. 7 og 10(POWER) THOR 3D Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 YOUR HIGHNESS Sýnd kl. 10 RIO ÍSLENSKT TAL 3D Sýnd kl. 5 HOPP ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 6 KURTEIST FÓLK Sýnd kl. 8  „Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt.” T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.