Morgunblaðið - 01.06.2011, Síða 2
Ekki hefur náðst samkomulag um
störfin á Alþingi til loka vorþings.
Skoðanir eru skiptar um framgang
sjávarútvegsfrumvarpanna. Búist er
við að stjórnarflokkarnir sýni á spil-
in í dag. Af því ræðst hvert fram-
haldið verður næstu daga.
Samkomulag hefur náðst um fyr-
irkomulag umræðu um skýrslu sem
fjármálaráðherra flytur í dag um
endurreisn viðskiptabankanna. Síð-
an verður haldið áfram að ræða
frumvarp sjávarútvegsráðherra um
breytingar á núgildandi fiskveiði-
stjórnarlögum, minna frumvarpið
svokallaða. Umræður um það stóðu
fram eftir kvöldi í gær. Gæti um-
ræðan farið langt í dag eða jafnvel
lokið. Sjávarútvegsráðherra hefur
ekki mælt fyrir frumvarpinu um
heildarendurskoðun og gerir það
varla fyrr en í næstu viku, úr því
sem komið er.
Forseti Alþingis hefur boðað for-
menn þingflokkanna á fund síðdegis
í dag til að reyna að ná samkomu-
lagi um þingstörfin síðustu daga
vorþingsins.
Þingmenn úr stjórnarandstöðunni
reikna með að fulltrúar stjórnar-
flokkanna komi þar með tillögu um
framgang sjávarútvegsmálanna og
annarra mála sem þeir telja brýnt
að afgreiða á vorþingi. Þingmaður
sem rætt var við sagði að samkomu-
lagið þyrfti einnig að ná til af-
greiðslu mála á þingfundum í sept-
ember. helgi@mbl.is
Enn bullandi ágreiningur um sjávarútvegsfrumvörpin
Störf Alþingis
» Starfsáætlun Alþingis
gerir ráð fyrir að síðasti
þingfundur á vorþingi verði
9. júní. Forseti Alþingis hef-
ur lagt áherslu á að staðið
verði við áætlunina.
» Eftir er að afgreiða fjölda
brýnna mála, meðal annars
ráðstafanir í ríkisfjármálum
vegna kjarasamninga.
» Þá er gert ráð fyrir þing-
fundum fyrstu tvær vikur sept-
embermánaðar.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur undanfarin ár sektað fólk
unnvörpum fyrir að leggja ólöglega
í grennd við íþróttaleikvanga og
fjölskylduhátíðir. Sektargjöldin
renna í bílastæðasjóð til að fjár-
magna og reka bílastæðahús sé um
brot í Reykjavík að ræða, annars
renna þau í ríkissjóð, að sögn Stef-
áns Eiríkssonar lögreglustjóra.
Stefán segir að ekki verði slakað
á 17. júní eða á Menningarnótt.
Ekki sé hægt að skjóta sér á bak
við gamla hefð fyrir því að brotin
séu lög. Og lögreglan hafi varað
fólk við.
„Okkur er falið að halda uppi lög-
um og reglu á þessu sviði eins og
öðrum,“ segir Stefán. „Á síðustu
Menningarnótt auglýstum við mjög
grimmt að fólk ætti að nota lögleg
bílastæði. Við sektuðum þá sem
lögðu ólöglega og létum draga á
brott þá bíla sem ollu hættu.“
Lög og reglur séu „ekki bara upp
á punt“. Ekki megi gleyma að þeg-
ar lagt sé ólöglega hefti það oft um-
ferð annarra, þ.á m. gangandi fólks
með barnavagna og einnig fatlaðra.
Einnig skapi þetta hættu með því
að tefja fyrir umferð sjúkrabíla og
slökkvibíla ef eitthvað gerist. Eins
og ljósmynd lögreglunnar sýni vel
hafi verið fjölmörg ónotuð stæði við
Laugardalsvöllinn um síðustu helgi
þegar þar voru margir og fjölsóttir
viðburðir. Hann sé í sama göngu-
færi við Fjölskyldugarðinn og
svæði þar sem fólk hafi lagt ólög-
lega.
„Þetta blasir oftar en ekki við
lögreglumönnum, fólk vill bara
leggja við innganginn á þeim við-
burðum sem það er að fara á en á
sama tíma er enginn bíll á fjöl-
mörgum almenningsstæðum í
grenndinni.“
Lögreglan hyggst framfylgja lögum
17. júní og á Menningarnótt
Hvergi stæði? Nóg var af ónotuðum stæðum við Laugardalshöllina um síð-
ustu helgi þegar margir sóttu viðburði í Fjölskyldugarðinum, steinsnar frá.
Hvergi næði til að leggja ólöglega
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, tók við
fimmtíu japönskum kirsuberjatrjám frá forseta
Japansk-íslenska félagsins, Yoshihiko Wakita,
við hátíðlega athöfn í Hljómskálagarðinum í
gær. Trén fimmtíu tákna samanlagðan aldur
Japansk-íslenska félagsins, sem er tuttugu ára,
og Íslensk-japanska félagsins, sem er þrjátíu
ára, og ævarandi vináttu og frið milli Íslands og
Japans.
Morgunblaðið/Ernir
Tákn vináttu og friðar milli Íslands og Japans
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
5.000
krónur kostar að leggja ólöglega
en sé greitt innan 14 daga
lækkar sektin í 3.900 krónur.
10.000
krónur þarf að borga ef gjaldið hef-
ur ekki verið greitt 28 dögum eftir
að sektað var. Leggi maður ólöglega
í stæði fatlaðra er sektin 10.000 kr.
en hækkar í 20.000 kr. ef ekki
er borgað innan 28 daga.
‹ REFSINGIN Í KRÓNUM ›
»
Safnaðu 5 toppum af Merrild
eða Senseo-pökkum og sendu
Ölgerðinni fyrir 16. júní.
Gullverðlaun að verðmæti 350.000 kr.
Tískuráðgjöf í heilan dag með Karli Berndsen,
100 þúsund kr. úttekt í Debenhams, ársbirgðir
af Merrild eða Senseo kaffi o.fl.
Fjöldi aukavinninga m.a. kaffivélar
frá Heimilistækjum og ársbirgðir af
Merrild eða Senseo kaffi.
Allsherjarnefnd
Alþingis lagði
fram þingsálykt-
unartillögu í gær
um að fram fari
rannsókn á að-
draganda og or-
sökum rekstrar-
erfiðleika og
gjaldþrota ís-
lenskra spari-
sjóða.
Gert er ráð fyrir að forsætis-
nefnd Alþingis skipi þriggja manna
rannsóknarnefnd í því skyni. Á hún
að skila skýrslu til forseta Alþingis
eigi síðar en 1. september 2012.
Er lagt til að nefndin leggi mat á
hvort um mistök eða vanrækslu
hafi verið að ræða við framkvæmd
laga og reglna um starfsemi spari-
sjóða á Íslandi og eftirlit með henni,
og hverjir kunni að bera ábyrgð á
því.
Í greinargerð með tillögunni eru
þeir erfiðleikar sem sparisjóðirnir
stóðu frammi fyrir í kjölfar banka-
hrunsins árið 2008 raktir stuttlega
og hvernig ríkisvaldið hafi brugðist
við.
Ekki var fjallað sérstaklega um
málefni sjóðanna í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis um að-
draganda og orsök falls ís-
lensku bankanna en
þar var bent á að
þau verðskuld-
uðu slíka
rannsókn.
Rannsaki
gjaldþrot
sparisjóða
Nefnd meti mistök
eða vanrækslu
Merki SRPON
fjarlægt.
Búist við að fulltrúar stjórnar-
flokkanna sýni á spilin