Morgunblaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Lena Olsson, talsmaður Vinstriflokksins í
dómsmálum, hefur lagt til að skipuð verði
sérstök „sannleiksnefnd“ til að rannsaka
hvort fótur sé fyrir ásökunum um að Karl
Gústaf Svíakonungur hafi sótt nektardans-
staði og jafnvel verið viðriðinn félaga í
glæpasamtökum. Olsson kveðst standa við
tillöguna þótt konungurinn hafi neitað þess-
um ásökunum algerlega í viðtali við frétta-
stofuna TT í fyrrakvöld.
Í viðtalinu neitaði Karl Gústaf ásökunum
Mille Markovic, fyrrverandi glæpaforingja,
sem segist hafa myndir af konunginum með
tveimur nöktum konum á nektardansstað.
„Nei, það er ómögulegt að slíkar myndir séu
til,“ sagði konungurinn.
Sænsk sjónvarpsstöð skýrði frá því fyrir
hálfum mánuði að fréttamaður hefði séð
myndirnar.
„Hann lýgur, lýgur, lýgur“
Í frétt sjónvarpsstöðvarinnar og í nýrri
bók er því einnig haldið fram að vinir kon-
ungsins hafi verið tilbúnir til að greiða mikl-
ar fjárhæðir til að koma í veg fyrir birtingu
mynda af honum með nöktum konum á
nektardansstöðum. Einn æskuvina kon-
ungsins viðurkenndi í vikunni sem leið að
hann hefði haft samband við félaga í glæpa-
samtökum, en hann sagði að það tengdist á
engan hátt Karli Gústaf.
Höfundurinn bókarinnar, Deanne
Rauscher, segir að konungurinn hafi sagt
ósatt í viðtalinu. „Hann lýgur, lýgur, lýgur,“
hefur Expressen eftir Rauscher.
Vill rann-
sókn á máli
konungs
Neitar því að hafa
sótt nektardansstaði
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fimmtán manns hafa dáið í
Þýskalandi og um 330 manns
sýkst alvarlega af völdum skæðs
kólígerils sem greinst hefur í
grænmeti. Þýsk yfirvöld óttast að
fleiri sýkist á næstu dögum og
skýrt var frá því í gær að kona í
Svíþjóð hefði dáið af völdum kólí-
gerilsins. Það er fyrsta dauðs-
fallið utan Þýskalands af völdum
kólígerlafaraldursins.
Alls hafa 36 manns sýkst al-
varlega í Svíþjóð af völdum
gerilsins og öll sýkingartilvikin
þar tengjast ferðalögum til
Þýskalands.
Þýsk yfirvöld segja að kólí-
gerillinn kólí 0104 hafi greinst í
agúrkum sem fluttar hafi verið
inn frá Spáni. Síðdegis í gær
komu hins vegar fram nýjar upp-
lýsingar sem benda til þess að
þetta sé ekki rétt.
Engar sannanir Þjóðverja
Breska dagblaðið Guardian
greindi frá því á vefsvæði sínu að
þýsk stjórnvöld hefðu viðurkennt
að sýkingin ætti ekki uppruna í
spænskum agúrkum.
Rosa Aguilar, landbúnaðar-
ráðherra Spánar, sagði Þjóðverja
hafa sakað Spánverja um að
standa að baki sýkingunum og
það án nokkurra sannanna.
Sýkingarnar hafa orðið til
þess að spænskar agúrkur hafa
verið fjarlægðar af hillum versl-
ana víða í Evrópu. Garðyrkju-
bændur í Andalúsíu á Suður--
Spáni hafa tapað sem svarar
1.100 til 1.300 milljónum króna á
dag vegna málsins, að sögn
fréttaveitunnar Reuters.
Spænsk stjórnvöld hafa
gagnrýnt viðbrögð þýskra yfir-
valda við kólígerlafaraldrinum og
sakað þau um að hafa skaðað
hagsmuni spænskra gúrkuút-
flytjanda.
Krefjast skýringa
Leire Pajin, heilbrigðis-
ráðherra Spánar, sagði að enginn
hefði sýkst af völdum kólígerils-
ins á Spáni og hvatti Þjóðverja til
að hraða rannsóknum á orsök
sýkinganna.
„Það er engin sönnun fyrir
þessum ásökunum og við ætlum
að krefjast skýringa frá þeim
sem kenndu Spáni um þetta mál,“
sagði Diego Lopez Garrido, að-
stoðarráðherra sem fer með
Evrópusambandsmál í spænska
utanríkisráðuneytinu.
Þýsk yfirvöld hafa varað
neytendur við því að borða hráa
tómata, agúrkur og blaðsalat og
sögðu í gær að sú viðvörun gilti
um alla framleiðendur þar til or-
sök sýkinganna yrði sönnuð.
Ekki er talið að mengað
grænmeti hafi borist til Íslands
en íslenska heilbrigðiskerfið er í
viðbragðsstöðu ef tilfelli E. coli
sýkingar kemur upp hér á landi.
SKÆÐUR KÓLÍGERLAFARALDUR Í EVRÓPU
Heimildir: isotype, media reports
Helstu einkenni
alvarlegustu fylgikvill-
anna eru blæðingar,
skaði á taugakerfinu og
nýrnabilun sem
getur leitt til
dauða
Að minnsta kosti fimmtán manns hafa dáið af völdum skæðs kólígerils
sem greindist fyrst í Þýskalandi og hefur breiðst út um Evrópu
Flest dauðsfallanna hafa verið í Norður-Þýskalandi, en
þýsk yfirvöld segja að ekki sé enn vitað um uppruna
gerilsins
HRINGRÁS
GRÆNMETISINNFLUTNINGUR ÞÝSKALANDS (í tonnum)
ÚTBREIÐSLA KÓLÍGERILSINS
SPÁNN
Gerillinn hefur greinst í
agúrkum sem voru fluttar
inn frá Spáni, en ekki er
vitað hvort þær menguðust
þar, í flutningunum eða í
Þýskalandi
BRETLAND
3 sýkst
FRAKKLAND
3 sýkst ÞÝSKALAND
14 látnir
Minnst 329
hafa sýkst
alvarlega
DANMÖRK 14 hafa sýkst
HOLLAND
1 sýkst
SVÍÞJÓÐ Eitt dauðsfall, 35 hafa sýkst
Kólí-
gerlar
Hýsill
Vatn mengast Nytjaplöntur
2009
2010
2011*
470.000
503.000
119.000
38%
38%
73%
*Fyrsti ársfjórðungur Hlutfall innflutnings frá Spáni
Viðbrögð Þjóðverja gagnrýnd
Sextán manns hafa dáið af völdum kólígerils í Þýskalandi og Svíþjóð
Nýjar upplýsingar benda til að spænskar agúrkur séu ekki skaðvaldurinn
Samkeppnin er opin öllum og eru verðlaunin
fyrir 1. sætið að verðmæti 1.000.000 króna.
Nánar auglýst síðar.
HÖNNUNAR
SAMKEPPNI
Árið 2008 gjörbyltum við hjá
Icelandair matseðlinum í vélum okkar
Núna er komið að
upplifun, útliti og umbúðum
Icelandair óskar, í samstarfi við
Hönnunarmiðstöð Íslands, eftir hönnun
á nýjum matarumbúðum fyrir Icelandair.
Skiladagur er 15. september 2011.
Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt
fimmtudaginn 29. september 2011.
Kynningarfundur verður haldinn
9. júní kl. 15:00–18:00 á Keflavíkurflugvelli.
Rútur fara frá Hótel Loftleiðum kl. 15:00.
Skráning á kynningu fer fram
á info@honnunarmidstod.is.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
55
22
6
06
/1
1