Morgunblaðið - 01.06.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið viljum halda því sem
mest á lofti hvað það er
gott fyrir námsgetu
krakka að tefla. Erlend-
ar rannsóknir sýna það
og við þekkjum það líka hér heima
sem störfum við þetta. Við erum
semsagt ekki alltaf að hugsa um
skák sem keppnissport heldur líka
tæki í skóla til að þjálfa hugann,
reiknigetu og lesskilning. Skákin
eykur líka frjósemi hugans og örvar
ímyndunaraflið. Það er engin áætlun
sem allir eiga að fara eftir þó svo að
það séu ákveðin viðmið í skákinni um
hvað sé gott að gera. Allir byrja með
hreint borð í upphafi hverrar skákar
og ráða hvað þeir gera. Krakkarnir
læra að taka frumkvæðið og vera
sjálfstæðir,“ segir Stefán Bergsson,
framkvæmdastjóri Skákakademíu
Reykjavíkur, sem býður upp á sum-
arnámskeið fyrir krakka í skák.
Líka farið út að tefla
„Það er mikill uppgangur í
skákinni. Þetta er þriðja sumarið
sem við erum með sumarnámskeið í
skák fyrir krakka á grunnskólaaldri,
6- 16 ára, og það hefur mælst mjög
vel fyrir. Sumarnámskeiðin eru mik-
il innspýting fyrir krakkana, þau
sem taka þátt á sumrin koma sterk
inn fyrir veturinn. Þessi námskeið
eru opin fyrir alla, hvort sem krakk-
arnir kunna að tefla eða ekki og
þeim er skipt í flokka eftir aldri og
reynslu. Þó svo að við miðum við
grunnskólaaldurinn 6-16 ára, þá höf-
um við líka verið að taka nokkra leik-
skólakrakka á þessi námskeið.“ Stef-
án segir að eldri og reyndari
krakkarnir mæti þrisvar í viku en
þau yngri tvisvar. „Foreldrar þurfa
ekki að hafa áhyggjur af því að við
höngum inni allan daginn og
krakkrnir fari á mis við sumarblíð-
una. Við notum hvert tækifæri til að
fara út. Þegar vel viðrar þá förum
við til dæmis og teflum á útitaflinu
við Lækjartorg og þá er mikið fjör.
Stundum teflum við líka á kaffi-
Skák er lifandi og
skemmtilegt sport
Skák er orðin vinsæl meðal krakka. Það er orðið töff að vera í skák. Og stelpurnar
eru í mikilli sókn. Skák þjálfar hugann og eflir námsgetu. Í sumar gefst krökkum
á grunnskólaaldri tækifæri til að fara á skáknámskeið hjá Skákakademíunni og
þá er stundum farið út í góða veðrið og útitaflið tekið til kostanna.
Næsti leikur Vignir Vatnar og Elín veltu næsta leik lengi fyrir sér.
Gaman Ásdís Birna nýtur sín í
skákinni eins og hin börnin.
Nú er NBA-körfuboltinn að ná hápunkti
og fljótlega skýrist hverjir verða meist-
arar. Nba.com er opinber síða banda-
ríska körfuboltasambandsins. Þar get-
ur fólk fundið allan þann fróðleik sem
það þarf á að halda um deildina. Á síð-
unni má einnig finna myndbönd frá
nýjustu leikjunum, af flottustu troðsl-
unum, sem og viðtöl við leikmenn og
þjálfara. Þá er mjög öflug fréttaveita á
síðunni þar sem farið er ofan í saum-
ana á öllu sem viðkemur liðum, leik-
mönnum og deildinni sjálfri. Ef þú ert í
einhverjum vafa um reglur íþróttar-
innar, þá er ekkert mál að fletta þeim
upp í reglubók deildarinnar sem er að
finna á síðunni. Bandaríkjamenn eru
gefnir fyrir tölfræðilegar staðreyndir
og hægt er að skoða margskonar
áhugaverða tölfræði tengda íþróttinni,
eins og t.d. um hvaða leikmaður tapar
oftast boltanum eða hver skorar flest
stig. Einnig er hægt að bera þar saman
leikmenn og lið. Vefverslun síðunnar er
mjög öflug og selur varning allt frá
bolum upp í belti eða baðsloppa,
merkt liðunum. Dallas Maverics og
Miami Heat áttust við í fyrsta leik úr-
slitaviðureignar NBA-körfuboltans í
nótt. Næsti leikur er aðfaranótt föstu-
dags, í Miami, og þá er hægt að fylgj-
ast með viðburðum á síðunni um leið
og þeir gerast. Þeir sem vilja vera með
puttann á púlsinum í NBA-körfubolt-
anum ættu að kíkja á nba.com .
Vefsíðan www.nba.com
Gleði Dirk og félagar hampa hér bikar en lesa má um þá á nba.com
Körfuboltahátíðin er senn á enda
Reuters
Farsímar og tölvur með þráðlausri
nettengingu eru ógnvaldur við heilsu
mannkynsins og ættu að vera bann-
aðar í skólum. Svo segir ráðgjafa-
nefnd hjá Evrópuráðinu sem hefur þá
skoðun að tækni geti haft skaðleg
áhrif á fólk. Fjallað er um málið í The
Telegraph.
Í skýrslu nefndarinnar segir að
mikilvægt sé að forðast það að end-
urtaka mistökin sem voru gerð þegar
það tók langan tíma að bera kennsl á
hættuna af asbesti, sígarettureyk og
blýi í bensíni. Í skýrslunni er einnig
lögð áhersla á mögulega hættu af
þráðlausum símum og svokölluðum
barnapíutækjum sem byggjast á
svipaðri þráðlausri tækni og farsímar
og nettengingar.
Sá ótti hefur verið vakinn að raf-
segulgeislun frá þráðlausum búnaði
geti valdið krabbameini og haft áhrif
á þroska heilans. Niðurstöðunum
hefur verið haldið á lofti af baráttu-
mönnum gegn þráðlausum teng-
ingum.
Ráðgjafanefndin kom með þær til-
lögur í skýrslunni að:
- Setja mörk á stig langtíma-
útsendinga örbylgna sömu gerðar og
í farsímum.
- Láta koma vel fram á vörunni
magn rafsegulsviðs í henni og þá
heilsufarslegu áhættu sem gæti
tengst notkun hennar.
- Banna alla farsíma og þráðlausa
nettengingu í skólastofum og skól-
um.
- Koma af stað upplýsandi herferð
sem beinist að börnum og unglingum
um heilsufarslega áhættu af notkun
slíkra tækja.
- Setja af stað rannsóknir á minna
hættulegum loftnetum og farsímum.
Niðurstöður nefndarinnar eru í
mótsögn við ráðleggingar World
Health Organisation og Department
Heilsa
Vilja banna
þráðlaus net
og farsíma
í skólum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18
Basel
Aspen
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino
Rín
Roma