Morgunblaðið - 01.06.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Í dag, miðviku-
dag kl. 12-13,
stendur Stofnun
stjórnsýslufræða
og stjórnmála
fyrir opnum fyr-
irlestri í Odda,
stofu 101. Fyrir-
lesari verður
Katarzyna Gro-
wiec, doktor í fé-
lagsfræði við Há-
skólann í Varsjá. Erindi hennar ber
heitið „Hvaða áhrif hefur efnahags-
kreppan haft á félagslegt traust og
félagsleg tengsl á Íslandi?“
Fyrirlesturinn byggist á rann-
sóknum á félagslegu trausti á Ís-
landi og er sjónum beint að breyt-
ingum á þessum einkennum
íslensks samfélags milli 2005-2010.
Félagslegt traust á
Íslandi eftir kreppu
Katarzyna
Growiec
Femínistafélag Íslands hefur sent
frá sér ályktun þar sem skorað er á
Badmintonsamband Íslands að
standa með konum og mótmæla
nýjum reglum um klæðaburð
kvenna í badminton. Stjórn Al-
þjóðabadmintonsambandsins hefur
ákveðið að konur skuli klæðast pils-
um þegar þær keppi á stórmótum.
Rökstuðningurinn er sá að það
stuðli að auknum vinsældum að
gera konurnar „kvenlegri“.
„Það er sorglegt að einstaklingar
sem fara með völd í heimi íþrótta
skuli líta á konur og líkama kvenna
sem tæki til markaðssetningar,“
segir í ályktuninni.
Klæðaburði kvenna í
badminton mótmælt
Á morgun, fimmtudag kl. 16, stend-
ur Hjálpræðisherinn fyrir árlegri
tískusýningu á Austurvelli til
styrktar dagsetri sem Hjálpræðis-
herinn rekur á Eyjarslóð fyrir
heimilislausa og þá sem eiga við
fíkniefnavanda að stríða. Eftir sýn-
inguna verður stórmarkaður í
Kirkjustræti 2 þar sem andvirði söl-
unnar rennur til dagssetursins.
Morgunblaðið/Ómar
Söfnun Frá sýningunni í fyrra.
Hjálpræðisherinn
með tískusýningu
STUTT
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ég er bjartsýn á að við munum finna það sem við
köllum fullnægjandi lækningu,“ segir franski
veirufræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn
Francoise Barré-Sinoussi þegar spurt er hvor
lækning við alnæmi sé á næsta leiti. „Það merkir
að þótt okkur takist ekki að útrýma sjálfri HIV-
veirunni alveg úr líkama sjúklingsins getum við
minnkað magnið svo mikið að það greinist ekki
nema með geysilega nákvæmum tækjum. Hann
greinist enn jákvæður en við höfum stjórn á vír-
usnum.“
Hún segir að seint á tíunda áratugnum hafi
loks náðst mikill árangur í að meðhöndla alnæmi
þannig að hægt sé að lifa með veikinni. Þekkt
dæmi um mann sem lyf og meðhöndlun virka afar
vel á er bandaríski körfuboltamaðurinn Magic
Johnson sem nú er farsæll kaupsýslumaður. Hann
greindist með HIV um 1990 en segist nú lifa í
reynd eðlilegu lífi með fjölskyldu sinni. En lyfin
kosta sitt.
Árangur eftir 2000
„Margt hefur áunnist en árangurinn fór ekki
að sjást að ráði fyrr en eftir 2000,“ segir Barré-
Sinoussi. „Þá fyrst fór dánartíðnin að lækka. Ef
verðandi móðir fær núna meðhöndlun með öfl-
ugum anti-retroviral lyfjum hættir hún að smita
barnið. Þetta var stórkostlegt framfaraskref, tókst
þegar um miðjan tíunda áratuginn. En menn þurfa
meðhöndlun út lífið og sumir þjást af aukaverk-
unum, jafnvel eftir margra ára lyfjatöku.
Einnig eru dæmi um að fólk myndi ónæmi
gagnvart lyfjunum, þá þarf að breyta meðhöndl-
uninni. Allt þetta veldur því að við þurfum að finna
aðrar lausnir og ég er viss um að það tekst.“
Hún segir að vegna framfara í lyfjagerð,
fúkkalyfja og bólusetninga, hafi margir verið orðn-
ir svo bjartsýnir á sjöunda áratugnum að þeir hafi
álitið að smitsjúkdómar myndu að lokum hverfa úr
sögnunni. „En þegar alnæmi kom fram á sjónar-
sviðið 1981 komumst við að því að þetta var rangt.
Við vitum núna að smitsjúkdómar verða með okk-
ur til eilífðar. Ekki bara alnæmið hefur sýnt okkur
þetta heldur líka þróun inflúensu og fleiri smitandi
veirusjúkdóma.
Þetta snýst ekki bara um stökkbreytingar
heldur smitunarleiðir, sumir veirusjúkdómar ber-
ast úr dýrum í menn. Þannig hefur þetta alltaf
verið. En nú þurfum við að vera enn meira á
varðbergi vegna samfélagsbreytinga. Fólk
ferðast æ meira um heiminn, sumir fara til
hitabeltislanda og koma heim með gæludýr
sem geta borið í sér sjúkdóma. Þess vegna
eru veirufræði mjög mikilvæg fyrir al-
mannaheilbrigði í heiminum.“
Barré-Sinoussi flytur erindi í dag í Há-
tíðarsal Háskóla Íslands um nýtingu grunnrann-
sókna í baráttu gegn nýrri farsótt.
„Ég hef ekki komið hingað fyrr en kynntist
samt Íslandi óbeinlínis í fyrra,“ segir hún brosandi.
„Ég var stödd í Taílandi í fyrirlestraferð og tafðist
þar í 10 daga vegna öskunnar [úr Eyjafjallajökli]
sem truflaði beint og óbeint flug um allan heim!“
Björn varð fyrstur
Erindið er hluti af málþingi til heiðurs dr.
Birni heitnum Sigurðssyni, fyrsta forstöðumanni
Tilraunastöðvar H.Í. í meinafræði að Keldum.
Björn lést aðeins 46 ára gamall en rannsóknir hans
á því sem hann nefndi hæggengar veirur (á ensku
lentil viruses) í sauðfé, mæðiveiki og visnu, voru
undanfari rannsókna á hæggengum sjúkdómum í
mönnum.
– Þekktir þú rannsóknir Björns?
„Að sjálfsögðu. Hann varð fyrstur til að rann-
saka hæggengar veirur, einkum í sauðfé, um var að
ræða veirusjúkdóma úr sama flokki og HIV. Þegar
ég byrjaði að rannsaka retrovírusa vissi ég um
hæggengu veirusjúkdómana. Þegar ég fann HIV-
veiruna urðum við mjög undrandi á uppbyggingu
hennar og lögun. Þetta líktist ekki hefðbundnum
retrovírusum, eins og þeim sem valda hvítblæði í
dýrum, líktist frekar hæggengum veirum eins og
visnu. Þess vegna gleður mig að vera stödd hér, í
landinu þar sem hæggengu veirurnar voru upp-
götvaðar.“
„Smitsjúkdómar verða
með okkur til eilífðar“
Nóbelsverðlaunahafinn Barré-Sinoussi segir að hægt verði að lifa með alnæmi
Morgunblaðið/Ómar
Francoise Barré-Sinoussi „Þetta líktist ekki hefðbundnum retrovírusum, eins og þeim sem valda
hvítblæði í dýrum, líktist frekar hæggengum veirum eins og visnu.“
Mannfjöldi á Íslandi verður á
bilinu 384.000 til 491.000 árið 2060
samkvæmt spá Hagstofunnar, en
miðspá hennar gerir ráð fyrir því
að á Íslandi muni búa um 433.000
manns á því ári.
Aldurskipting landsmanna
breytist mjög á tímabilinu sam-
kvæmt spánni, sem gefin var út í
gær. Fjöldi þeirra sem eru 65 ára
og eldri eykst mjög í hlutfalli við
fólk á vinnualdri (20–64 ára) en
yngra fólki fækkar.
Fleiri flytji til landsins en frá
Í öllum spáafbrigðum er gert
ráð fyrir jákvæðum flutningsjöfn-
uði til langs tíma, þ.e. að fleiri
flytji til landsins en frá því. Sá
flutningsjöfnuður er borinn uppi
af erlendum ríkisborgurum, en til
lengri tíma litið flytja jafnan fleiri
íslenskir ríkisborgarar til útlanda
en snúa heim. Ef gert er ráð fyrir
engri nettófjölgun erlendra rík-
isborgara í landinu yrði mann-
fjöldaþróunin hér á landi allt önn-
ur en gert er ráð fyrir í spá
Hagstofunnar. Mannfjöldinn
myndi þá mestur verða árið 2035
eða rúmlega 343 þúsund ein-
staklingar en falla síðan til 2060
þegar íbúar landsins yrðu álíka
margir og í upphafi tímabilsins.
Þetta sést nánar á meðfylgjandi
línuriti hér til hliðar.
„Búferlaflutningar til og frá
landinu skipta miklu máli, einkum
um mannfjöldaþróun til næstu ára.
Sterk fylgni er við mikilvægar
hagstærðir, þ.e. verga landsfram-
leiðslu og atvinnuleysi, en misjafnt
eftir kyni og ríkisfangi. Þá skiptir
sókn íslenskra ríkisborgara í nám
erlendis, eða einfaldlega æv-
intýraþrá ungs fólks, miklu máli,“
segir m.a. í frétt Hagstofunnar.
Í mannfjöldaspánni er stuðst við
stærðfræðileg líkön þar sem
hermt er eftir þessum áhrifum, en
notuð er síðasta þjóðhagsspá Hag-
stofunnar vegna spár um hagvöxt
og atvinnuleysi fram til ársins
2016.
Íslendingar stefna í 433 þúsund
Mannfjöldaspá 2011-2060
ef engir erlendir ríkisborgarar myndu setjast hér að
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
Fj
öl
di
1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 2030 2040 2050 2060
Engin áhrif erl. ríkisborgara
Lágspá Miðspá
Fólksfjöldaþróun
Mannfjöldaspá
Heimild: Hagstofan
Hagstofan með nýja mannfjöldaspá til ársins 2060 65 ára og eldri fjölgar
mjög en yngra fólki fækkar Allt önnur þróun án erlendra ríkisborgara
Francoise Barré-Sinoussi er 63 ára og stýrir
deild smitandi retrovírus-sjúkdóma við Pas-
teur-stofnunina í París. Hún er veirufræð-
ingur að mennt og varð fyrst til að finna og
greina HIV-veiruna sem veldur alnæmi. Árið
2008 hlaut hún Nóbelsverðlaunin í líf- og
læknavísindum ásamt þeim Luc Montagnier
og Harald zur Hausen fyrir afrek sín.
Barré-Sinoussi hóf störf hjá Pasteur-
stofnuninni á áttunda áratugnum og hóf fljót-
lega rannsóknir á retrovírusum sem valda
ýmsum sjúkdómum. Hún er þekktur
fyrirlesari, hefur verið ráðgjafi
hjá Alþjóðaheilbrigðisstofn-
uninni, WHO og hefur ýtt úr
vör samstarfsverkefnum
með þróunarríkjunum en
HIV-veiran hefur einkum
valdið usla í Afríku.
Fann veiruna sem
veldur alnæmi
NÓBELSVERÐLAUNAHAFI Í HEIMSÓKN
Á milli 25 og 30 milljónir króna
hafa safnast í fjársöfnun meðal fyr-
irtækja í landinu vegna eldgossins í
Grímsvötnum. Söfnunin fer fram í
samráði við Samtök atvinnulífsins
en myndaður hefur verið sjóður til
að veita bændum og þeirri starf-
semi sem fyrir er á þessu svæði,
fjárhagslegan stuðning eftir því
sem söfnunarfé hrekkur til og hægt
er að bæta með fjárstyrkjum
Fjögurra manna verkefnisstjórn
hefur verið valin til að hafa umsjón
með söfnuninni, skipuleggja hana
og móta reglur. Verkefnisstjórnin
mun vinna með heimamönnum að
þessu viðbótar-hjálparverkefni.
Miðað er við upphæðir frá fyrir-
tækjum á bilinu 100 þúsund krónur
til ein milljón.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Hreinsun Vel hefur gengið að hreinsa víð-
ast hvar á öskusvæðinu, þó nóg sé eftir.
Söfnun vegna eld-
goss gengur vel
HIV-veira að störfum.