Morgunblaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
Messur | á uppstigningardag - dagur aldraðra
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
ÁRBÆJARKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14, ath. breyttan messutíma. Prestar
safnaðarins þjóna fyrir altari. Krizstina K.
Szklanár organisti. Kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Sólrún Gunnarsdóttir
leikur á fiðlu. Einar Clausen einsöngur. Kon-
ur í Soroptimistaklúbbi Árbæjar bjóða í hátíð-
arkaffi í safnaðarheimili kirkjunnar eftir
messu.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14, athugið
breyttan messutíma. Séra Sigurður Jónsson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Áskirkju syngur, organisti Þóra V. Guð-
mundsdóttir. Safnaðarfélag Áskirkju býður
kirkjugestum til kaffiveislu í safnaðarheim-
ilinu að athöfn lokinni. Þar syngur Barnakór
Laugarnesskóla undir stjórn Huldu Guðrúnar
Geirsdóttur. Sóknarbörn og aðrir velkomnir
og hvattir til að taka með sér gesti af eldri
kynslóðinni. Sjá askirkja.is.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Gerður Guðmundsdóttir Bjarklind, útvarps-
kona, prédikar. Kór Kvenfélags Bústaða-
kirkju, Glæðurnar, syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur og Ágústa Dómhildur
leikur á fiðlu. Eftir messu er sýning á munum
úr starfi aldraðra í vetur. Veisluborð verður
framreitt og öldruðum boðið upp á veitingar.
Prestur sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 14. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar, sr. Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Dómkórinn
syngur, organisti er Kári Þormar. Að messu
lokinni er gestum boðið í kaffi í safnaðar-
heimilinu.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
14. Þórey Dögg Jónsdóttir nývígður djákni
Fella- og Hólakirkju prédikar en sr. Svavar
Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir
djákni þjóna fyrir altari. Gerðubergskórinn
syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Boðið verður
upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimili
kirkjunnar.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Prestur er séra Bryndís Valbjarnardóttir.
Anna Sigríður Helgadóttir, tónlistarstjóri og
Aðalheiður Þorsteinsdóttur, orgelleikari leiða
tónlistina ásamt Kór Fríkirkjunnar í Reykja-
vík. Kaffiveitingar eftir messu í boði Kven-
félags Fríkirkjunnar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Allir prestar safnaðarins þjóna.
Séra Úlfar Guðmundsson, fyrrv. prófastur,
prédikar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Ein-
söngur: Gissur Páll Gissurarson. Organisti:
Hákon Leifsson. Að lokinni guðsþjónustu er
kaffisamsæti á vegum sóknarnefndar og
safnaðarfélags Grafarvogskirkju. Handa-
vinnusýning eldri borgara.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10 og
bænastund 10.15. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Samskot í líknarsjóð safnaðarins.
Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur, organisti er Ásta Haraldsdóttir.
Prestur Ólafur Jóhannsson. Kaffi eftir
messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Út-
varpsmessa kl. 11. Séra Auður Inga Ein-
arsdóttir messar. Dómkórinn og Grundar-
drengir syngja og organisti er Kári Þormar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Messa
kl. 11. Efri áranna minnst í prédikun og
helgihaldi. Vöfflukaffi eftir messu. Prestur
séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn
Helgadóttir, kór Guðríðarkirkju syngur, með-
hjálpari Sigurður Óskarsson, kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 14. Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Bar-
börukórinn syngur. Kantor Guðmundur Sig-
urðsson. Hátíðarkaffi eldri borgara kl. 15 í
Hásölum í boði sóknarnefndar. Almennur
söngur, kórsöngur og einsöngur. Rútuferðir
frá: Sólvangi kl. 13.20, Hjallabraut 33 kl.
13.30, Hrafnistu kl.13.40.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt rev. Leonard Ashford. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti
er Hörður Áskelsson. Vorferð eldri borgara
Hallgrímskirkju að lokinni messu.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kríla-
söngvar undir stjórn Berglindar Björgúlfsdótt-
ur. Gerðubergskórinn undir stjórn Kára Frið-
rikssonar. Organisti Douglas A. Brotchie.
Eftir messu er framreidd súpa í safnaðar-
heimilinu. Elsa Kristjánsdóttir leikur á harm-
oniku. Berglind og Pálínurnar hennar syngja.
Lopadagur - allir sem geta sýna lopapeysur
eða plögg. Ullarvörur til sölu, bingó, ullar-
flíkur í verðlaun. Prestur Tómas Sveinsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14, með þátttöku eldri borgara úr Hveragerði
og Ölfusi. Hverafuglar leiða söng undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur, organista, prestur er sr.
Baldur Kristjánsson. Kaffi í Þorlákssetri.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Eldeyjarkórinn, kór eldri borgara syngur.
Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið. Sjálf-
boðaliðar bera fram kaffi og kruðerí að
messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafs-
son.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta upps-
tigningardag kl. 14, ath. breyttan messu-
tíma. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari
og sr. Þórir Stephensen prédikar. Félagar úr
máli dagsins leiða safnaðarsöng. Kaffi og
veitingar í safnaðarheimili að lokinni athöfn.
LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14, athugið tímann. Eldri borgurum sérstak-
lega boðið. Sr. Tómas Guðmundsson, fyrrv.
prófastur, flytur hugvekju. Eiríkur Hreinn
Helgason syngur. Organisti Ólafur W. Finns-
son. Kaffiveitingar. Handavinnusýning frá
prjónakvöldum í vetur.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Litli kórinn -
kór eldri borgara syngur undir stjórn Magn-
úsar Ragnarssonar organista. Sr. Sigurður
Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kaffiveitingar á Torginu eftir messu.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Bern-
harður Guðmundsson prestur og fv. rektor í
Skálholti prédikar. Sr. Óskar þjónar fyrir alt-
ari ásamt Eygló djákna. Léttur hádegisverður
á eftir í safnaðarheimili. Sjá selfosskirkja.is.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Dóra
Ingvarsdóttir, fyrrv. bankaútibússtjóri prédik-
ar og sr. Valgeir Ástráðsson þjónar fyrir alt-
ari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsönginn.
Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. Að lok-
inni guðsþjónustu býður Kvenfélag Selja-
kirkju til samsætis í safnaðarheimilinu. Eldri
borgarar eru sérstaklega hvattir til þátttöku.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Félagar úr Kammerkór kirkj-
unnar leiða tónlistarflutning undir stjórn Frið-
riks Vignis Stefánssonar organista. Þorbjörg
Pétursdóttir les ritningartexta dagsins.
Prestar eru sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr.
Sigurður Grétar Helgason. Eftir messu er
gestum boðið upp á léttar veitingar í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
ÚTSKÁLASÓKN | Fjölskylduvæn sundlaug-
armessa kl. 19.30 við sundlaugina í Garð-
inum. Messan er u.þ.b. 25-30 mín. Hægt að
taka þátt úr pottunum eða af bakkanum. Al-
mennur söngur. Eftir messu verður boðið
upp á grillaðar pylsur, Svala og gos. Bæjar-
stjórinn Ásmundur Friðriksson grillar. Prestur
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðs-
þjónusta kl. 14, sérstaklega tileinkuð eldri
borgurum. Gaflarakórinn syngur undir stjórn
Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur. Organisti: Áslaug
Bergsteinsdóttir Prestur: Sr. Bragi J. Ingi-
bergsson. Kaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu. Rúta fer frá Hjallabraut 33 kl. 13.30
og frá Hrafnistu kl. 13.40.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkels
Selfosskirkja
Verklag alþingis er
með eindæmum um
þessar mundir.
Kjarnamálum, grund-
vallarmálum sem
varða fjöregg þjóð-
arinnar er sleppt, mál-
um sem varða heim-
ilin, atvinnulífið,
atvinnusköpun og drif-
kraft. Og málum sem
varða smærri þætti,
en þó hvetjandi fyrir
land og þjóð, er líka sleppt, stungið
ofan í skúffu. Verklag ríkisstjórn-
arinnar undanfarin tvö ár hefur
byggst á því að henda inn í nefndir
þingsins algjörlega ófullburða frum-
vörpum, sem njóta ekki einu sinni
samstöðu ríkisstjórnarflokkanna í
fjölda mála og öllum stóru mál-
unum. Ríkisstjórnin hefur lagt kapp
á að skakklappast með ótal mál
gjörsamlega ófullburða. Auðvitað
kemur ekkert út úr því, enginn ár-
angur, aðeins bið, bið og meiri bið og
leiðindi.
Uppbygging, endurheimtur
og áræði
Síðastliðið haust lagði undirrit-
aður fram með stuðningi fjölmargra
þingmanna úr stjórn og stjórn-
arandstöðu 32 frumvörp og þings-
ályktunartillögur, reyndar á sama
deginum flest málin, en þetta eru
margfalt fleiri mál en gengur og
gerist á ári hjá þingmönnum. Hér er
um að ræða mál sem varða atvinnu-
mál, umhverfi, menntun, þjónustu,
ferðamál, nátúruvernd, félagsmál,
hafnir landsins, réttindi sjómanna,
Háskóla Íslands, réttarkerfið og
Schengen svo dæmi séu tekin.
Óvenjumikill tími þingsins hefur
farið í nefndastörf þar sem allri eðli-
legri forvinnu í ráðuneytum hefur
verið sleppt að stærstum hluta. Lín-
an virðist vera að spara eðlilega for-
vinnu í ráðuneytum og henda henni í
þingið. Á þessu sviði ríkir því stjórn-
leysi og ringulreið.
32 þingmál lögð
fram á einum degi
Þau mál sem und-
irritaður hefur lagt
fram og verður fylgt
eftir eru frumvarp um
réttindi sjómanna til
frádráttar frá skatti
vegna vinnu fjarri
heimili, eins og allir
landkrabbar hafa og því
fáránlegt ef sjómenn
verða skildir eftir á
köldum klaka í þeim
efnum, mál sem varða byggingu
stórskipahafna í Þorlákshöfn,
Grindavík og Vestmannaeyjum, að-
gengi að Þríhnjúkagígum með
stærsta helli í heimi fyrir ferða-
menn, hafnalög sem eiga að rétta
aftur hlut nánast allra hafna lands-
ins frá gildandi lögum sem settu
höfnum stólinn fyrir dyrnar í eðli-
legu viðhaldi, hvað þá uppbyggingu.
Mál sem varða afnám skemmt-
anaskatts á útihátíðum, prófessors-
embætti tengt nafni Jónasar Hall-
grímssonar og Byggðasafninu í
Skógum og Þórði Tómassyni. Mál
sem varða Vefmyndasafn Íslands
með neti vefmyndavéla á slóðum
helstu náttúruperlna landsins og
byggða þannig að hvar sem er í
heiminum geta fólk fylgst með dag-
legri stemningu á stað og stund, en
slíkt yrði stórkostleg markaðs-
setning á Íslandi.
Eitt frumvarpa minna sem 30 al-
þingismenn eru meðflutningsmenn
á varðar uppbyggingu Helguvík-
urhafnar og því að Reykjanesbær
njóti sömu réttinda og jafnræðis í
þeim efnum og allar aðrar hafnir
samkvæmt gildandi lögum, en
Helguvíkurhöfn hefur verið afskipt í
þeim efnum og málið er tafið í Sam-
göngunefnd af formanni nefnd-
arinnar, Birni Val Gíslasyni frá
Vinstri grænum.
Þá má nefna staðsetningu Nátt-
úrugripasafns Íslands á Selfossi, út-
tekt á aðgengi sjómanna að þjón-
ustukerfi landsins,
skipsstjórnarmenntun sem stendur
mjög höllum fæti til þarfa næstu
framtíðar, listasafn fyrir blinda sem
yrði einstakt og nýr möguleiki
ferðamennsku á heimsvísu, upp-
skurður og endurskoðun réttarkerf-
isins, bindindisfræðsla í skólum,
skólasöngur og ljóðakennsla,
kristni- og trúarbragðafræðsla, út-
tekt á kostum og göllum Schengen,
fornleifarannsóknir í Árnesi og end-
urbygging, fuglaskoðunarsetur í
Garðinum, stofnun íslenskrar hand-
verksdeildar og hönnunar í Listahá-
skóla Íslands, úttekt á hringsigl-
ingamöguleikum um Ísland í
farmflutningum, prestsþjónusta á
Þingvöllum, úttekt á túlkun reglna
EES sem oft á tíðum eru andstæðar
íslenskum hagsmunum og kaþólsk-
ari en páfinn, fiskiskipasafn Íslands
í Reykjanesbæ, sögukennsla í skól-
um, mannsæmandi uppbygging á
hverasvæði Geysis í Haukadal. Mál
sem varða kærur Íslendinga á hend-
ur Bretum, Nató og Evrópusam-
bandinu fyrir bein hryðjuverk og af-
skiptaleysi í kjölfar bankahrunsins,
en í þingsályktuninni er krafist 10
þúsund milljarða í skaðabætur af
Bretum fyrir órökstuddar árásir á
Ísland, m.a. þegar Brown forsætis-
ráðherra Bretlands gaf þá yfirlýs-
ingu um heimsbyggðina að Íslend-
ingar væru gjaldþrota og 500
milljarða krafa á EBS og Nató fyrir
að verja í engu hagsmuni Íslands á
þessum vettvangi. Þar gilti ekki allir
fyrir einn og einn fyrir alla eins og
hefur verið kjörorð Nató.
32 þingmál í vetur eru
innlegg mitt í uppbyggingu
á mörgum sviðum
Eftir Árna Johnsen
» Verklag ríkisstjórn-
arinnar undanfarin
tvö ár hefur byggst á því
að henda inn í nefndir
þingsins algjörlega
ófullburða frumvörp-
um.
Árni
Johnsen
Höfundur er alþingismaður.
Í kjölfar hruns
blésu ferskir vindar
uppbyggingar um ís-
lenskt samfélag. Há-
vær krafa er uppi um
breytt stjórnarfar og
endurskoðun á
grundvallarstoðum.
Störf stjórnlagaráðs
snúast um það að
leggja drög að nýrri
stjórnarskrá fyrir
lýðveldið Ísland,
verkefni sem á sér enga sögulega
hliðstæðu.
Stjórnlagaráðsfulltrúar verði
breytingin sem þeir vilja sjá
Eitt af því sem farið hefur verið
fram á er gagnsæi. Gagnsæi getur
dregið verulega úr líkum á spill-
ingu og eiginhagsmunapoti. Ég var
ein þeirra sem buðu fram krafta
sína til stjórnlagaþings. Í kosn-
ingabaráttunni lagði ég ríka
áherslu á samræmda hags-
munaskráningu frambjóðenda sem
eina leið til þess að sýna raunveru-
legt gagnsæi í verki. Mahatma
Gandhi sagði eitt sinn: „Vertu
breytingin sem þú vilt sjá í heim-
inum.“ Ég tek undir með Gandhi
og tel að ætli fólk sér að breyta
einhverju þurfi það að byrja hjá
sjálfu sér.
Talað fyrir daufum eyrum
Ég hef skrifað og fjallað talsvert
um mikilvægi hagsmunaskráningar
bæði í aðdraganda kosninganna og
eftir þær en talað fyrir daufum
eyrum. Ég ritaði opið bréf til
dómsmálaráðuneytis í aðdraganda
kosninganna sem og opið bréf til
stjórnlagaráðsfulltrúa þann 30.
mars sl. þar sem ég skoraði á full-
trúa stjórnlagaráðs að upplýsa
með samræmdum og opinberum
hætti um hagsmunatengsl sín. Ég
lagði til að notast yrði við þá að-
ferð sem alþingismenn nota nú
þegar og aðgengileg
er á vef Alþingis á eft-
irfarandi slóð: http://
www.althingi.is/vefur/
hagsmunaskran-
ing_reglur.html og að-
laga að stjórnlagaráði.
Einnig sendi ég ráðinu
formlegt erindi þann
13. apríl sl. varðandi
sama málefni. Ég tel
þá starfsferilsskrá sem
birt er á vef stjórnlag-
aráðs engan veginn
fullnægjandi þar sem
hún er ekki gerð með samræmdum
hætti og ekki er getið um fjár-
hagslega hagsmuni stjórnlagaráðs-
fulltrúa.
Ég hef engin formleg svör feng-
ið og get ekki séð af störfum
stjórnlagaráðs að til standi að
verða við athugasemd minni. Þann
19. maí síðastliðinn lagði B-nefnd
stjórnlagaráðs fram tillögur þar
sem ákvæði er um hagsmuna-
skráningu þingmanna og ráðherra
og fagna ég því en ekki er minnst
á hagsmunaskráningu stjórnlag-
aráðsfulltrúa sjálfra.
Ég spyr enn á ný, hvenær munu
stjórnlagaráðsfulltrúar ganga fram
fyrir skjöldu og hefja vegferð
breytinga hjá sjálfum sér með op-
inberri birtingu samræmdra upp-
lýsinga um hagsmunatengsl sín?
Stjórnlagaráðs-
fulltrúar gangi
fram fyrir skjöldu
Eftir Kristbjörgu
Þórisdóttur
Kristbjörg
Þórisdóttir
»Hvenær munu
stjórnlagaráðs-
fulltrúar ganga fram
fyrir skjöldu og hefja
vegferð breytinga hjá
sjálfum sér með birt-
ingu samræmdra upp-
lýsinga um hagsmuna-
tengsl sín?
Höfundur er kandídatsnemi
í sálfræði.