Morgunblaðið - 01.06.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
1 2 3
5 6 4
1 3 6 7 4
8 3 1 2
8
3 6 2 4 8
8 3 5 6
2 5
2 1 6 9
5 6 3
7 5
8 9
9 3 6 8
2 4 1 3
3 1 2
5 8
4
4 2
5 8
5 3 6
3 4 9 6 8
9 8 5
3 7
8 9
7 2 6
5 2
2 9 4 5 1 8 7 3 6
6 1 7 3 9 4 5 2 8
8 5 3 7 6 2 4 9 1
1 4 2 8 7 6 3 5 9
9 3 6 4 2 5 1 8 7
5 7 8 9 3 1 6 4 2
4 6 5 2 8 7 9 1 3
3 8 1 6 5 9 2 7 4
7 2 9 1 4 3 8 6 5
9 5 6 3 8 4 7 1 2
8 4 1 7 6 2 9 3 5
3 7 2 1 5 9 4 6 8
1 9 3 4 2 5 6 8 7
6 8 7 9 3 1 2 5 4
4 2 5 8 7 6 1 9 3
5 3 9 6 4 7 8 2 1
7 6 8 2 1 3 5 4 9
2 1 4 5 9 8 3 7 6
3 7 4 5 1 8 2 9 6
8 5 2 4 9 6 1 7 3
9 6 1 2 7 3 8 5 4
5 3 6 7 8 4 9 2 1
4 2 7 1 5 9 3 6 8
1 9 8 3 6 2 5 4 7
2 8 3 9 4 7 6 1 5
6 4 5 8 2 1 7 3 9
7 1 9 6 3 5 4 8 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 1. júní,
152. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast . (Rm. 8, 18.)
Víkverji dagsins gætir þess yfir-leitt að vera innan dyra og fara
eftir hellulögðum gangstéttum og
malbikuðum stígum þegar hann þarf
að fara út. Víkverji hættir sér
ógjarnan út fyrir mannabyggðir.
Um helgina lét hann þó ginnast í
göngu upp um fjöll og firnindi og
verður að viðurkenna að göngugarp-
ar hafa nokkuð til síns máls þegar
þeir dásama útivist og náttúru.
Ferðinni var heitið upp á Fimm-
vörðuháls að skoða gígana Magna og
Móða og Goðahraunið, sem upp úr
þeim vall. Vönum fjallamönnum
finnst þessi göngutúr sjálfsagt ekk-
ert tiltökumál, en Víkverji er ekki í
þeim hópi. Hann lagði ásamt göngu-
félaga sínum upp frá Básum og brátt
kom að fyrstu hindruninni, Kattar-
hryggjum, hrikalegu einstigi með
hengiflug á báðar hliðar. Yfir það
skreið Víkverji og litla spörfugls-
hjartað barðist um í brjósti hans.
Eftir það var leiðin misbrött, en veð-
ur gott og blankalogn þótt staðið
væri á berangri í 900 metra hæð.
Þeir stikuðu yfir Morinsheiði, þar
sem fyrst sáust ferskar hraun-
tungur, enn rjúkandi þótt orðnar séu
ársgamlar, og fetuðu yfir snævi þak-
inn Heljarkamb.
x x x
Að koma inn á gossvæðið er einsog að stíga fæti á framandi
plánetu. Alls staðar rýkur upp úr
jörðinni. Yfirborðið er kolsvart, en
sárin eru rauð. Sums staðar gapir
jörðin við og er þá líkast því að opið
sé inn í iður jarðar. Víkverji átti
helst von á því að Jane Fonda stykki
fram í Barbarellubúningnum sínum
og mundaði afefnunarbyssuna sína.
Heiti á gömlu popplagi, Dagdraum-
ur á tunglöld, skaut upp í hugann og
þá rifjaðist upp að í þeim draumi
fríkuðu menn út. Enginn fríkaði þó
út í Goðahrauni. Uppi á Móða mátti
finna hvernig hitann lagði upp úr
jörðinni og hópur, sem hafði verið
skömmu áður á ferð, grillaði pulsur í
heitu náttúrugrilli gosstöðvanna.
Svo byrjaði allt í einu að snjóa og allt
í kring hvissaði þegar kaldir snjó-
kristallarnir lentu á snarpheitu
grjótinu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 glóra, 4 hrósum, 7
lífið, 8 ilmur, 9 kraftur, 11
ræfil, 13 sargi, 14 rándýr, 15
útflenntur, 17 skaði, 20 bók-
stafur, 22 setur, 23 æsir, 24
þekkja, 25 getur gert.
Lóðrétt | 1 skarpskyggn, 2
þaust, 3 fífls, 4 skraf, 5 dreg-
ur úr, 6 op, 10 jurtin, 12
veggur, 13 blóm, 15 óhrein-
skilin, 16 spilið, 18 land í As-
íu, 19 líkamshlutar, 20
áreita, 21 læra.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skapgóður, 8 fótur, 9 uggur, 10 ann, 11 mærin, 13 nýr-
að, 15 glans, 18 banar, 21 tel, 22 garfa, 23 aumum, 24 skap-
rauna.
Lóðrétt: 2 kætir, 3 peran, 4 ókunn, 5 urgur, 6 æfum, 7 bráð, 12
inn, 14 ýsa, 15 gagn, 16 afrek, 17 stamp, 18 blaka, 19 náman, 20
römm.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Horft til framtíðar. V-Allir.
Norður
♠ÁDG6
♥32
♦K107
♣ÁKD5
Vestur Austur
♠103 ♠9752
♥ÁKG109 ♥D64
♦DG6 ♦9842
♣G108 ♣74
Suður
♠K84
♥875
♦Á53
♣9632
Suður spilar 4♠.
Páll Valdimarsson var með hönd
suðurs í leik við Dani á Norður-
landamótinu í Örebro. Vestur vakti á
1♥ og Ragnar Magnússon í norður do-
blaði til úttektar. Austur passaði og
Páll átti leikinn.
Opnunardoblið biður um svar í
lengsta lit, en Páli þótt lítil framtíð í ní-
unni fjórðu í laufi og sagði frekar 1♠ á
þrílitinn. Spaðasögnin kom vel við
Ragnar, sem stökk nú áskorandi í 3♠.
Flestum þætti líklega nóg gert í suður,
en Páll lyfti í 4♠ út á höggspilin tvö.
Vestur tók á ♥Á-K og spilaði enn
hjarta í þriðja slag. Páll henti tígli úr
borði og hélt þannig valdi á spaðanum.
Hann aftrompaði síðan austur og tók
sína tíu upplögðu slagi: 620.
Á hinu borðinu létu N-S 3♣ duga.
Þar svaraði suður opnunardoblinu með
2♣.
1. júní 1935
Raftækjaeinkasala ríkisins tók
til starfa. Enginn nema hún
mátti flytja til landsins raf-
vélar, rafala, rafhitunartæki,
rofa, raflampa, rafhlöður o.fl.
Einkasalan var lögð niður í
ársbyrjun 1940.
1. júní 1968
Sundlaugin í Laugardal í
Reykjavík var vígð og opnuð
almenningi. Gömlu sundlaug-
unum í Laugardal var þá lok-
að.
1. júní 1976
Síðasta þorskastríðinu lauk
með samkomulagi við Breta,
en samningaviðræður fóru
fram í Ósló. Þar með viður-
kenndu þeir í reynd fiskveiði-
lögsöguna sem var færð út í
200 mílur 15. október 1975.
„Stórsigur fyrir málstað Ís-
lands,“ sagði á forsíðu Morg-
unblaðsins.
1. júní 1983
Framfærsluvísitalan hækkaði
um 25% á þremur mánuðum.
Hækkun lánskjaravísitölu
milli mánaða sýndi 159% verð-
bólgu á ári, sem mun vera met.
1. júní 1999
Veðurstofan tók upp mæliein-
inguna metra á sekúndu í stað
vindstiga. Tæpu ári síðar var
naumlega felld á Alþingi til-
laga um að taka vindstigin
upp aftur.
1. júní 2000
Elton John hélt tónleika á
Laugardalsvelli í Reykjavík.
„Tónleikagestir yljuðu sér við
dúnmjúkan söng poppgoðsins
fræga,“ sagði DV.
Þetta gerðist…
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
„Planið er að fara vestur á Snæfellsnes og ganga á
Snæfellsjökul en því miður er veðurspáin ekkert
allt of góð, svo það gæti breyst,“ segir Jörundur
Áki Sveinsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks
FH í knattspyrnu, en hann fagnar 40 ára afmæli í
dag. Hann hefur aldrei áður reynt við jökulinn og
viðurkennir að það yrði svekkjandi að komast
ekki vegna veðurs. Jörundur reiknar þó með að
fara vestur samt sem áður en með í för verða Þóra
Lind, sambýliskona hans, og tíkin Hekla.
„Við munum reyna að gera gott úr ferðinni þótt
veðrið verði ekki hið besta en við ætlum að eyða
nóttinni á Hótel Búðum.“
Jörundur þarf ekki að biðja um frí frá vinnu á afmælisdaginn þar
sem nú er hlé í fótboltanum. Hann segir þjálfun meistaraflokks FH
ganga vel þótt tímabilið hafi farið heldur verr af stað en reiknað hafi
verið með en nú stefni allt í rétta átt.
„Útlitið er ágætt fyrir sumarið og við erum vonandi að komast í gír-
inn eins og við erum vanir. Það er nægur tími til stefnu.“ Talsverð
pressa er á Hafnarfjarðarliðinu þar sem því hefur verið spáð toppsæt-
inu í Pepsi deildinni í sumar. hjaltigeir@mbl.is
Jörundur Áki Sveinsson, íþróttakennari, 40 ára
Fer vestur á Snæfellsnes
Hlutavelta
Nýlega héldur
þeir vinirnir
Þorgeir og Jó-
hann Daði tom-
bólu fyrir utan
verslun 10-11
við Laugalæk.
Þeir söfnuðu
3.095 kr. sem
þeir færðu
Rauða krossi
Íslands.
Flóðogfjara
1. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.02 0,7 6.04 3,4 12.09 0,6 18.21 3,8 3.23 23.29
Ísafjörður 2.12 0,5 8.04 1,8 14.13 0,3 20.19 2,1 2.42 24.20
Siglufjörður 4.15 0,2 10.40 1,1 16.21 0,3 22.37 1,2 2.22 24.05
Djúpivogur 3.14 1,8 9.17 0,5 15.38 2,1 21.52 0,6 2.43 23.09
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þótt aðrir reyni að leggja stein í götu
þína muntu ná því markmiði sem þú ætlar þér
ef þú ert nógu ákveðinn. Svalaðu lyst þinni fyr-
ir fegurð, lúxus og gæðum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert að glíma við verkefni sem krefst
mikils af þér. Dómharka þín endurspeglar í
raun efasemdir þínar um sjálfan þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vinur kemur þér á óvart í dag. Ef
ósamkvæmar upplýsingar eru bornar á borð
fyrir þig áttu að treysta skilningarvitunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Atburðarásin mun taka öll völd úr
höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum. Vertu því ekki að rök-
ræða málin þegar niðurstaða er fengin.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að hafa mikið fyrir hlutunum
sem er allt í lagi ef þú gætir þess að skila vel
unnu verki. Gefðu þér tíma til þess að skipu-
leggja hlutina og þá muntu ná betri árangri.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú kemst ekki hjá því að vinna ákveðið
verkefni í samstarfi við aðra. Andaðu, haltu
höndunum opnum, öxlunum slökum og láttu
fara vel um þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þótt verkefni þitt virðist lítilfjörlegt þá
mun lausn þess samt færa þér frama. Viður-
kenndu hvað þú virkilega vilt og fólkið sem
getur veitt þér það birtist skyndilega.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er gefandi að taka áhugamál
sín alvarlega. Þú ert létt/ur í lund, ærslafull/ur
og til í að lyfta þér upp.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Segðu ekkert nema að vandlega
athuguðu máli því annars gætirðu sært fólk
sem þér þykir vænt um. Innihald þess sem þú
segir skiptir meira máli en framsetningin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þig dreymir um að flytja á lands-
byggðina, eða alla vega rétt út fyrir bæinn.
Haltu þínu striki og notaðu verkfærin sem þú
hefur til ráðstöfunar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú heldur að það sé ekki heillavæn-
legt að láta skrýtinn draum rætast eða nota
sköpunarkraftinn. Hvort sem hann örvar, róar
eða skemmtir, hefur hann aðdráttarafl.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fullt af fólki gerir það sem þú segir. Þig
er farið að þyrsta í ferðalög. Að öðrum kosti
máttu eiga von á vandræðum.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4 5.
Bg5 Rbd7 6. cxd5 exd5 7. Dc2 0-0 8. e3
c5 9. Bd3 Da5 10. 0-0 c4 11. Be2 He8 12.
Rd2 h6 13. Bh4 Bxc3 14. bxc3 Re4 15.
Rxe4 Hxe4 16. Bg3 Rb6 17. Bf3 He6 18.
a4 Bd7 19. Hfb1 Bc6 20. Bc7 Da6 21. a5
Rd7 22. Bg4 Hee8 23. Bf5 Rf8 24. Dd2
Re6 25. Bg3 Had8 26. f3 Bd7 27. Bc2
Rg5 28. Bc7 Hc8 29. Bf4 Re6 30. Bg3
Rg5 31. Bh4 Hc7 32. Bg3 Hcc8 33. Kh1
He7 34. Be5 Hce8 35. Df2 f6 36. Bf4 Re6
37. Bg3 Rf8 38. e4 Bf5 39. exf5 He2
Staðan kom upp í blindskákarhluta
Amber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Alexander Grischuk (2.747)
hafði hvítt gegn Vladimir Kramnik
(2.785). 40. Ba4! Hxf2 41. Bxe8 Hd2 42.
h4! g6 43. fxg6 He2 44. Bf7+ Kg7 45.
h5 Dc6 46. He1 Hxe1+ 47. Hxe1 og
hvítur innbyrti vinninginn skömmu síð-
ar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.