Morgunblaðið - 01.06.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 01.06.2011, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011 Á föstudagskvöld verða haldnir í Hörpu tónleikar undir yfirskrift- inni „Tenórarnir 3 og einn í útrás“. Þar koma fram tenórarnir Garð- ar Thór Cortes, Gissur Páll Giss- urarson, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson og Snorri Wium, en sér- stakir gestir þeirra eru Sigrún „Diddú“ Hjálmtýsdóttir, Óskar Pét- ursson og Óperukórinn í Reykjavík sem Garðar Cortes stjórnar. Tónlist Tenórarnir 3 og einn í útrás Sigrún Hjálmtýsdóttir Nú stendur í Hafnarborg sýn- ing á verkum eft- ir JBK Ransu og Guðrúnu Bergs- dóttur. Sýningin, sem hefur yfir- skriftina Ab- strakt, er haldin í samstarfi við listahátíðina List án landamæra. Í tilefni hátíðarinnar Bjartir dag- ar í Hafnarfirði verður boðið upp á listamannsspjall með Ransu sem mun spjalla við gesti og segja frá verkum sínum. Myndlist Listamanns- spjall Ransu JBK Ransu Í dag kemur út bókin Júní eftir Hörpu Árnadóttur, en í bókinni eru vatnslitamyndir og dagbókarbrot, sem eru afrakstur vinnustofudvalar Hörpu á gestavinnustofu á Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði í júní 2010. Í viðtali við Hörpu í Morgun- blaðinu fyrir stuttu sagðist hún hafa skrifað hugleiðingar um það sem fyrir augu bar meðan á dvöl- inni stóð í litlar minnisbækur og einnig málaði hún myndir upp úr upplifun sinni, bæði fyrir norðan og einnig eftir að heim var komið. „Þetta eru textarnir sem ég vann á vinnustofunni upp úr minnisbók- unum og vatnslitamyndir af því sem fyrir augu bar.“ Nú stendur í Listasafni ASÍ sýn- ingin Mýrarljós, þar sem sjá má myndverk og texta sem urðu til upp úr minnisbókunum, en einnig eru til sýnis málverk, innsetningar og verk sem unnin eru á staðnum. Efnt verður til móttöku í listasafninu frá 17:00 til 19:00 í dag í tilefni af út- komu bókarinnar. Crymogea gefur bókina út, Hildigunnur Gunnars- dóttir og Snæfríð Þorsteins hönn- uðu bókina og Sarah Brownsberger annast enska þýðingu. Harpa Árnadóttir er fædd árið 1965 á Bíldudal í Arnarfirði. Eftir háskólanám í sagnfræði og bók- menntum fór hún í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk fram- haldsnámi við Listaháskólann í Va- land, Gautaborg. Harpa hefur sýnt víða og eru verk hennar í eigu ým- issa opinberra safna og einkasafn- ara á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hef- ur hlotið verðlaun fyrir teikningar hjá Þjóðlistasafni Svíþjóðar. arnim@mbl.is Sumar Í dag kemur út bókin Júní eftir Hörpu Árnadóttur. Júní eftir Hörpu  Vatnslitamyndir og dagbókarbrot úr vinnustofudvöl á Bæ á Höfðaströnd Svíta nr. 1 fyrir flautu og djasspí- anótríó eftir Claude Bolling verður flutt á há- skólatónleikum í Hátíðasal HÍ í dag kl. 12:30. Flytjendur eru Áshildur Har- aldsdóttir flautu- leikari, Einar Scheving, slagverks- og trommuleik- ari, Neal Kirkwood píanóleikari og Richard Korn bassaleikari. Tónleik- arnir hefjast kl. 12.30 og eru haldnir í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík. Djasssvíta Claude Bollings var samin 1975. Þetta verða síðustu há- skólatónleikar skólaársins. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum. Djasssvíta í Hátíðasal Claude Bolling Vatn stendur fyrir einhvers konar hring- rás sem er mér mjög hug- leikin 32 » Díana Rós A. Rivera diana @mbl.is Edda Erlendsdóttir píanóleikari verður með einleikstónleika í Kalda- lóni, Hörpu, á uppstigningardag kl. 11:00. Fyrir tónleikana flytur Arndís Björk Ásgeirsdóttir, dagskrárgerð- arkona á tónlistardeild Rásar 1, fyr- irlestur um Eddu og efnisskrá tón- leikanna en þeir eru haldnir í tilefni 30 ára tónlistarafmælis Eddu. Á efnisskránni eru verk eftir Franz Schubert, Franz Liszt, Arn- old Schönberg og Alban Berg sem allir bjuggu og störfuðu í Vín á sín- um tíma. Á heimasíðu Listahátíðar segir að Austurríki, og þá sér- staklega Vínarborg, sé vagga heillar tónlistarhefðar og að tónleikarnir séu í anda Vínarskólanna svoköll- uðu. Edda segir að Vínarskólarnir tveir tákni ákveðin tímabil og stefnu í tónlist. Tónskáldin Schubert, Ha- ydn, Mozart og Beethoven tilheyri þeim fyrri en þau bjuggu öll í Vín og sömdu tónlist í klassískum stíl. Upp úr aldamótunum 1900 hafi svo Vín- arbúarnir Schönberg, Berg og We- bern farið að semja tónlist sem hafði öllu flóknara tónmál og er tónlist þeirra nefnd seinni Vínarskólinn. Ólík tónlist innan sömu hefðar Að sögn Eddu er tónlistin sem samin var á þessum tveimur tímabil- um eðlilega ólík en tilheyrir þó sömu tónlistarhefð. „Það svífur þessi Vín- arskólaandi yfir öllum þessum höf- undum,“ segir Edda. Hún bætir við að hún nýti Franz Liszt sem eins- konar brú á milli skólanna og segir að sér finnist spennandi að stefna þessum tveimur skólum saman á tónleikum. Eins og áður sagði á Edda 30 ára tónlistarafmæli um þessar mundir og segir hún það góða tilfinningu að vera enn þá að og hafa nóg að gera. „Þetta eru svolítil tímamót en samt ekkert stór tímamót fyrir mig. Ég fór samt aðeins yfir minn feril og ég hélt mína fyrstu tónleika 1981 hérna í Reykjavík,“ segir hún. Á föstudag heldur Edda meistara- námskeið í samstarfi við Íslands- deild Evrópusambands píanókenn- ara EPTA. Margir sóttu um og komust færri að en vildu. Nám- skeiðið er haldið í Kaldalóni, hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 19:00. Morgunblaðið/Ómar Vínartónlist Edda Erlendsdóttir fagnar þrjátíu ára tónleikaafmæli. Vínarskólum stefnt saman  Edda Erlendsdóttir heldur tónleika í Kaldalóni, Hörpu, á fimmtudag  Tón- leikarnir eru í anda Vínarskólanna Þrír áratugir af tónlist » Edda Erlendsdóttir lærði píanóleik við tónlistarskólann í Reykjavík og við Conservatoire National Superieur de de Musi- que í París. Hún hefur leikið á fjölda tónleika um allan heim. » Edda fagnar þrjátíu ára tón- leikafmæli í Hörpu á uppstign- ingardag. Sænski rithöfundurinn Kajsa Ingemarsson er gestur á höfundakvöldi Norræna húss- ins annað kvöld, en í dag kem- ur út ný bók eftir hana sem ber heitið Allt á floti. Fyrsta bók Kajsu Ingemarsson á ís- lensku var Sítrónur og saffr- an, sem kom út á íslensku á síðasta ári, en hún var mest selda bókin í Svíþjóð árið 2005. Höfundakvöldið í Norræna húsinu hefst kl. 20:00. Þórdís Gísladóttir, sem þýddi Allt á floti, ræðir við höfundinn og Silja Aðalsteinsdóttir les úr nýju bókinni. Kajsa Ingemarsson er fædd árið 1965. Hún lærði rússnesku, pólsku og stjórn- málafræði við Háskólann í Stokkhólmi. Að loknu námi vann hún hjá sænsku öryggis- lögreglunni, en starfaði síðan í nokkur ár sem dagskrár- gerðarmaður og leikkona. Fyrsta skáldsaga hennar kom út 2002 og síðan hafa fimm skáldsögur bæst við, eitt greinasafn og sjálfshjálpar- bók. Kajsa Ingemarsson gestur á höfundakvöldi Vinsæl Kajsa Ingemarsson er gestur á höf- undakvöldi annað kvöld. Græni Hatturinn Akureyri sími 461 4646 / 864-5758 Forsala á alla viðburðina hafin í Eymundsson Mið. 1. júní Karl Hallgrímsson - Útgáfutónleikar Tónleikar kl. 21.00 Fös. 3. júní Bang Gang Tónleikar kl. 22.00 Lau. 4. júní Jón Jónsson - Sérstakur gestur: Friðrik Dór Tónleikar kl. 22.00 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Tveggja tíma hláturskast...með hléi Húsmóðirin (Nýja sviðið) Mið 1/6 kl. 20:00 19.k Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Fös 10/6 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Þri 7/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega Faust (Stóra svið) Sun 5/6 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Örfár aukasýningar í maí og júní Klúbburinn (Litla sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 frumsýn Sun 5/6 kl. 18:00 3.k Mið 8/6 kl. 20:00 5.k Lau 4/6 kl. 20:00 2.k Þri 7/6 kl. 20:00 4.k Á Listahátíð - Leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órjúfanlega heild Eldfærin (Stóra sviðið) Sun 5/6 kl. 13:00 Sögustund með öllum töfrum leikhússins Klúbburinn frumsýndur á föstudag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.