Morgunblaðið - 01.06.2011, Page 33

Morgunblaðið - 01.06.2011, Page 33
Bobfest í Hörpunni Ítilefni af sjötugsafmæli BobsDylans í síðustu viku skipu-lagði Óttar Felix Haukssontónleika í Silfurbergi Hörp- unnar með tónlist Dylans í flutningi margra helstu söngvara landsins. Gott framtak. Af sama tilefni, á sjálf- an afmælisdag Dylans, setti ég plöt- una Highway 61 Revisited í græj- urnar og skrúfaði í botn. Hvílík snilld! Fleiri plötur fylgdu, síðan myndefni og lesefni, af mörgu er að taka þegar Dylan er skoðaður. Samt er það svo að það er ekki fyrr en á allra síðustu árum að maður fattar hversu mikill snillingur og brautryðj- andi í rokktónlist Bob Dylan er. Hann innleiddi ljóðið í rokktónlistina, rafmagnaði þjóðlagatónlistina, varð óviljugur talsmaður mótmælakyn- slóðar. Ég held að auk tónlistarinnar og textanna, þá hafi Dylan gert fyrir mig þetta rokk og ról attitjút sem ekki er auðvelt að skilgreina eða orða, en má finna á öllum helstu plöt- um meistarans. Á Bobfestinu í Hörpunni var hátíð- legt og nánast settlegt yfirbragð á öllu, svona fullorðins afmælisveisla. Í heildina voru flutt 20 Dylan-lög, flest þau frægustu, s.s. Mr. Tambourine Man, Knockin’ On Heaven’s Door, Just Like A Woman, One More Cup Of Coffee og Forever Young. Sjálf- sagt hafa einhverjir saknað laganna Lay Lady Lay og Blowin in The Wind en af mörgu er að taka þegar lög eftir Dylan eru valin og allir eiga sín uppáhaldslög með Bob Dylan. Margir af fremstu söngvurum lands- ins spreyttu sig á lögunum, sem þeir höfðu valið sjálfir. Undirleikur var í öruggum höndum Memfismafíunnar. Skemmtilegur og fræðandi kynnir á milli laga var Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður. Helsti galli (og líka kostur) við umgjörðina var fjöldi söngvara sem sungu aðeins eitt lag í einu og síðan tók við kynning á næsta lagi og flytjanda. Þrátt fyrir smekk- legar kynningar Óla Palla tókst ekki að mynda samfellda stemningu í salnum, þó svo söngvarar og hljóm- sveit gerðu sannarlega sitt til að koma tónlistinni til skila. Meðal eldri flytjenda voru Bubbi, Björgvin Hall- dórs, Helgi Björns, KK (sem flutti fallega Girl From The North Country), Páll Rósinkrans (góður Hurricane). Allir útskrifaðir í Dylan- fræðum. Gaman var líka að heyra yngri flytjendur eins og Ólöfu Arn- alds, Sigurð Guðmundsson, Steina í Hjálmum (tilfinningaríkur í I Shall Be Released) og Lay Low sýna meistaranum virðingu með flutningi sínum. Ef frá er talin óvenjuleg söng- útgáfa systranna Ólafar og Klöru Arnalds af Mr. Tambourine Man, þar sem öllu undirspili var sleppt, héldu flytjendur sig við hefðbundnar leiðir í útsetningum og flutningi. Eftir hlé flutti Dylan tribute sveitin Slow Train tvö lög í beit og myndaði fína stemningu í salnum. Að lokinni klassískri útgáfu Björg- vins Halldórssonar á Forever Young og uppklappi tók sjálfur konserthald- arinn Óttar Felix Hauksson lagið Like A Rolling Stone. Var það vel til fundið hjá Óttari að ljúka þessari af- mælisveislu með einu frægasta rokk- lagi allra tíma, sex mínútna löngu lagi sem umbylti öllum venjum þegar það kom út árið 1965 og hafði ótrúleg áhrif á poppmenningu og rokktónlist. Lagið sem gerði Bob Dylan að popp- goði fyrir Bítlakynslóðina og marga fleiri. Fullkominn endir á ljúfu kvöldi. Harpa Heiðurstónleikar vegna 70 ára af- mælis Bobs Dylans bbbmn Tónleikar til heiðurs Bob Dylan sjötug- um. Hörpunni laugardaginn 28. maí ÖRN ÞÓRISSON TÓNLIST Ljósmynd/Jóhann Ísberg „How Does It Feel?“ Undir lokin leiddi Óttar Felix hersinguna í gegnum eitt frægasta rokklag allra tíma, „Like A Rolling Stone“. Vel til fundin endalok á ljúfu kvöldi að mati rýnis, Arnar Þórissonar. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011 RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! - IN TOUCH HHHH „MYNDIN ER FRÁBÆR: KYNÞOKKAFULL OG FYNDIN“ - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHH STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA! "Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt." JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS! STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDAR ÆVINTÝRAMYND MEÐ JOHNNY DEPP, PENÉLOPE CRUZ, IAN MCSHANE OG GEOFFRY RUSH “STÓRKOSTLEG! BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI” - L.S - CBS “BESTA ‘PIRATES’ MYNDIN” - M.P FOX TV HHHH “SANNKALLAÐUR GIMSTEINN! HIN FULLKOMNA SUMARMYND Í ALLA STAÐI. JACK SPARROW ER SANNARLEGA KVIKMYN- DAFJÁRSJÓÐUR” - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE “FRÁBÆR SKEMMTUN! JOHNNY DEPP OG PENÉLOPE CRUZ ERU TÖFRUM LÍKUST. EINSTAKLEGA ÞOKKAFULL” - D.S HOLLYWOOD CLOSE-UPS HHHH “SJÓNRÆN VEISLA” “STÓR SKAMMTUR AF HASAR” - K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÍSLENSKU TA LI DÝRAFJÖ R FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI HHHH “IT ACTUALLY IMPROVES ON THE JOKES” - TIME OUT NEW YORK “BANGKOK ADVENTURE IS NOT WITHOUT ITS SHOCKING, LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.” - HOLLYWOOD REPORTER 80/100 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í EGILSHÖLL FRUMSÝNING HHHH “EIGINLEGA NAUÐSYNLEGT FYRIR MIG AÐ SJÁ MYNDINA AFTUR...” “UM TÍMA KOMU BRANDARANIR Á FÆRIBANDI OG ÉG ER NOKKUÐ VISS UM MARGIR BRANDARAR HAFI HREINLEGA FARIÐ FRAMHJÁ MÉR ÞEGAR ÉG MISSTI MIG Í ÞESSI FJÖLMÖRGU SKIPTI.” - R.M. - BÍÓFILMAN.IS MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS THE HANGOVER 2 kl. 5:40-8-9:10-10:20 12 THE HANGOVER 2 kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 5 - 8 10 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 7 - 10 10 DÝRAFJÖR ísl. tal kl. 6 L SOMETHING BORROWED kl. 5:50 - 8 L FAST FIVE kl. 10:20 12 / ÁLFABAKKA X-MEN: FIRST CLASS kl. 5 - 8 - 10:45 14 THE HANGOVER 2 kl. 5:40-8-8:20-10:20-11 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 5 - 8 - 10:40 10 SOMETHING BORROWED kl. 5:30 L THE HANGOVER 2 kl. 5:50-6:50-8-9-10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 6 - 9 10 THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 6 - 9 10 DÝRAFJÖR 3D ísl. tal kl. 6 L THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 8 - 10:50 10 / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 8 10 AF GJÖRNINGI Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég fór með miklar vænt-ingar á tónleika á Listahátíðum liðna helgi þar sem tón- listarmennirnir Högni Egilsson kenndur við Hjaltalín og píanóleik- arinn Davíð Þór Jónsson frumfluttu eigið verk með þátttöku karlakórs- ins Fóstbræðra. Verkið heitir Min- ør/Pionér og vísar í nöfn þeirra tveggja eimreiða sem ekið var á Ís- landi á árunum 1913-1917. Þegar gengið var í salinn blasti við sviðsmynd myndlistarmannsins Hrafnkels Sigurðssonar þar sem tilkomumiklum haug af ryðguðu brota- járni hafði verið komið fyrir. Allt fór þetta vel af stað og lofaði góðu og greinilega mikið lagt upp úr heildarmyndinni, leikið var með ljós og liti í veggtjöld- unum og reykur liðaðist um sviðið. Það var flott að sjá karlakórs- meðlimina tínast inn á svalirnar fyr- ir ofan sviðið í vinnugöllum, dökk- bláum samfestingum, sumir í rauðum, m.a. kórstjórinn, Árni Harðarson. Og upphafslagið, And- aðu rótt, kallaði svei mér þá fram gæsahúð. Síðan vatt verkinu fram með ýmsum uppákomum og í raun var þetta einn allsherjar listgjörn- ingur, hljóð- og sjónrænn, heilmikil upplifun. Margt var afskaplega vel gert en annað fannst mér minna var- ið í. Textinn hans Atla Bollasonar skilaði sér ekki nógu vel, nema ein og ein setning, ég man t.d eftir að hafa heyrt: „Við étum kol.“    Ég velti fyrir mér um miðbiktónleikanna hvað þeir félagar væru að reyna að segja okkur með þessu öllu saman. Þegar Högni söng „Komdu og spurðu ekki neins“, þá flaug það vissulega í gegnum huga minn að maður á kannski ekki að spyrja, bara upplifa. Mér fannst til dæmis flott þegar Davíð Þór rauk í hauginn og fór að henda til ruslinu og kom þar í ljós hrörlegt píanó sem færði okkur hola málmtóna þegar hann spilaði á það og rak í það teina. En þegar Högni svo seinna kom með sleggju og barði á nótnaborðið, þá fannst mér það frekar hallærislegt. Stundum var þetta á mörkunum að vera tilgerðarlegt, ég fékk nettan aulahroll á köflum. Tónlistin var stundum hreint dásamleg en líka staglsöm og ég stóð mig að því að geispa þegar endurtekningarnar voru hvað mestar. Og mér fannst karlakórinn vannýttur. Vissulega var þetta heilmikið sjónarspil en ég velti fyrir mér hvort einfaldleikinn færi okkur kannski stundum miklu meira en flúrið og lætin. Einn tón- leikagesta notaði þá ágætu samlík- ingu að viðburðurinn hefði verið eins og þunglyndisleg finnsk bíó- mynd sem enginn veit um hvað er. Við étum kol » Tónlistin varstundum hreint dásamleg en líka staglsöm. Morgunblaðið/Ernir Flottir Högni Egilsson með nokkrum meðlima Karlakórsins Fóstbræðra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.