Morgunblaðið - 22.06.2011, Side 8

Morgunblaðið - 22.06.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011 Stækkunarskrifstofa fram-kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins sendi fulltrúa sinn hingað til lands í gær til að flytja Íslend- ingum þau skilaboð að Ísland mætti ganga í sam- bandið á eigin forsendum. Þetta er því mið- ur ekki rétt því að ákveði Ísland að ganga í Evrópusambandið verð- ur það alfarið á forsendum sam- bandsins.    Talið um að forsendurnar séu Ís-lands var auðvitað til þess eins hugsað að hljóma vel í eyrum Ís- lendinga, sem Evrópusambandið hefur áttað sig á að hafa ekki allir áhuga á að láta stjórna sér frá Brussel.    Fulltrúi stækkunarinnar við-urkenndi raunar við sama til- efni að gengi Ísland inn yrði það ekki á íslenskum forsendum heldur forsendum Evrópusambandsins.    Þessi óbeina leiðrétting komfram í umræðum um sjáv- arútvegsmál, en um þau sagði sendiboðinn að það gæti tekið nokkurn tíma að aðlaga íslenskar reglur reglum Evrópusambandsins.    Það stendur nefnilega alls ekkitil að laga reglur ESB að reglum Íslands þó að stækir stuðn- ingsmenn aðildar tali iðulega á þann veg.    Gangi Ísland inn í Evrópusam-bandið, sem ótrúlegt er að nokkrum manni detti í hug þessa dagana miðað við ástandið innan sambandsins, verður íslenskur sjáv- arútvegur lagaður að reglum sam- bandsins. Þetta vita íslenskir áróð- ursmenn aðildar ekki síður en sendiboðinn þó að þeir séu síður hreinskilnir um þessa staðreynd. Aðlögun á forsendum ESB STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 10 heiðskírt Akureyri 9 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 12 skýjað Vestmannaeyjar 9 skýjað Nuuk 7 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 15 léttskýjað Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 18 skýjað Brussel 20 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 12 skúrir London 18 léttskýjað París 21 skýjað Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 18 skýjað Berlín 22 léttskýjað Vín 27 skýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 37 léttskýjað Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 32 heiðskírt Róm 27 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 22 alskýjað Montreal 25 skýjað New York 24 heiðskírt Chicago 28 skýjað Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:56 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 2:10 23:49 BAKSVIÐ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ekki sér fyrir endann á miklum flóðum við Manitobavatn í Kanada og óttast íbúarnir, sem að miklum hluta eru af íslenskum ættum, að ástandið eigi enn eftir að versna og flytja þurfi um 100.000 nautgripi í burtu. Öll fimm býlin á Reykjavíkur- skaganum við norðurhluta vatnsins hafa verið rýmd og ástandið er vægast sagt ískyggilegt á stöðum eins og til dæmis í Vogum, Eddy- stone, Steep Rock, Asham Point og Bay End. Kirkjugarðurinn í Reykjavík er undir vatni og eignir liggja undir skemmdum. Bændur geta ekki sáð og ljóst er að þeir standa frammi fyrir heyskorti í haust. Hræðilegt „Þetta er hræðilegt,“ segir Re- bekka Sigurðardóttir, sem hefur ásamt manni sínum Allan Johnson rekið nautgripabú á Reykjavíkur- skaganum síðan 1999. Þegar best lét voru þau með um 460 kýr en urðu að fækka þeim niður í um 250 í kjölfar kúariðu og slæmrar tíðar undanfarin ár. Kýrnar hafa verið fluttar vestur í Saskatchewan-fylki og Allan keppist við að flytja eigur þeirra á brott, en þau ætla ekki að gefast upp heldur ráðgera að hefja aftur búskap í Árnesi við Winni- pegvatn. Bókum og húsgögnum var komið fyrir í gámi sem var síðan fluttur til Eddystone og verið er að bjarga tækjum og tólum. „Það er allt á floti og rúmlega 30 sentimetr- ar af vatni á veginum að bænum. Ég hef aldrei séð annað eins en þegar ég flutti vestur var enn verið að tala um flóðin 1955. Bændurnir sögðust hafa siglt á seglbáti þvert yfir skagann og þá fluttu allir í burtu í tvö ár. Núna er útlitið þann- ig að við förum ekki aftur.“ Margir Íslendingar settust að við Manitobavatn á síðasta fjórðungi 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Eftir flóðin 1955 voru gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón af völd- um flóða úr vatninu, meðal annars reistir varnargarðar og útbúnar fráveiturásir. Hins vegar er mikill vöxtur í Assiniboine-á, sem rennur í gegnum Winnipeg úr vestri og sameinast Rauðá í miðborginni, og til að minnka hættu á flóði í Winni- peg hefur verið dælt vatni úr ánni í Manitobavatn. Það nær hins vegar ekki að renna með eðlilegum hætti úr vatninu, yfirborðið hækkar og stór landsvæði fara undir vatn. „Það fer þrisvar sinnum meira vatn í Manitobavatn en úr því eftir venjulegum leiðum,“ segir Re- bekka. Mikið tap Lorraine og Kelly Johnson eru með 230 kýr í Eddystone en bróðir hennar býr í Vogum þar sem langa- langafi hennar, Jón Jónsson þing- maður, settist að fyrir meira en 100 árum. „Flestir á þessu svæði eru af íslenskum ættum og fluttu hingað upphaflega frá Íslandi,“ minnir Lorraine á. „Nær allir sem við elskum eru við það að tapa öllu sem þeir eiga,“ segir hún. Ljósmynd/Lorraine Johnson Heimili Fjölskylda Lorraine Johnson hefur búið þarna í Vogum í meira en 100 ár en nú er útlitið svart. Býli rýmd í Reykjavík  Mestu flóð á Íslendingaslóðum við Manitobavatn í Kanada síðan 1955  Bændur sjá fram á endalok nautgriparæktar Vogar Ástandið í Vogum er slæmt og íbúarnir óttast hið versta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.