Morgunblaðið - 22.06.2011, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Þingið í Aþenu í Grikklandi samþykkti í gær-
kvöldi traustsyfirlýsingu við ríkisstjórn Georg
Papandreou, forsætisráðherra og sósíal-
istaflokksins Pasok en þar hafa orðið miklar
mannabreytingar. Forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso,
sagði Grikki verða að sýna að þeir væru reiðu-
búnir að herða mittisólina. Eftir að ljóst er orðið
að ríkisstjórnin heldur velli verður næsta skrefið
að fá þingið til að samþykkja nýjustu niður-
skurðartillögurnar, upp á 28 milljarða evra.
„Það er ekki hægt að hjálpa neinum gegn
vilja sínum,“ sagði Barroso. „Næsta vika er
stund sannleikans, þá verða Grikkir að sýna að
þeir séu í einlægni staðráðnir í að styðja metn-
aðrfulla áætlun um frekari aðgerðir í ríkisfjár-
málum og einkavæðingu sem stjórn Pap-
andreous hefur lagt fram.“
Nokkrir af þingmönnum Pasok hafa að und-
anförnu sagt sig úr flokknum og hefur Pap-
andreou því nauman meirihluta á þingi, 155 sæti
af 300. Öflugasti stjórnarandstöðuflokkurinn,
Nýtt lýðræði, er hægrisinnaður og vill semja á
ný við evruríkin og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um
aðstoð við Grikkland sem er efnahagslega á helj-
arþröm. Ríkið fékk í fyrra 110 milljarða evra að-
stoð en nú hafa evruríkin frestað að greiða síð-
asta hluta lánsins. Þau krefjast þess að Grikkir
samþykki róttækar niðurskurðartillögur rík-
isstjórnarinnar.
Ráðherrafundur evruríkja 3. júlí
Samþykkja þarf tillögurnar í lok mánaðar-
ins vegna þess að fjármálaráðherrar evruríkj-
anna munu hittast á fundi 3. júlí og taka ákvörð-
un um frekari aðstoð. Fái þeir hana ekki bendir
allt til þess að greiðslufall, öðru nafni ríkisgjald-
þrot, verði næsta skref. En framhaldslánið verð-
ur skammgóður vermir, rætt er um að bæta
þurfi við öðrum 110 milljörðum evra til að
tryggja efnahag landsins næsta árið.
David Hannan, breskur íhaldsmaður á þingi
ESB, sagði að fjárhagsaðstoðin við Grikki myndi
ekki verða grísku þjóðinni neinn bjarghringur.
Ætlunin væri að láta skattgreiðendur bjarga
bönkum og eigendum skuldabréfa. „Því fer fjarri
að Grikkjum sé hjálpað, þeim er fórnað til að
bjarga evrunni,“ sagði Hannan.
Ríkisstjórn Papandreou hélt velli
Gríska þingið samþykkti í gærkvöldi yfirlýsingu um stuðning við ríkisstjórn hans
Barroso segir að vegna skuldavandans standi Grikkir frammi fyrir „stund sannleikans“
Reuters
Reiði Starfsmenn vopnafyrirtækja gríska
ríkisins hrópa slagorð við þingið í gær.
Andstaða hjá almenningi
» Liðlega 47% aðspurðra í
Grikklandi í nýrri könnun sögð-
ust vera á móti aðhalds-
tillögum ríkisstjórnarinnar og
vilja nýjar kosningar. Nær 35%
sögðust sammála tillögunum.
» Stéttarfélög hafa hvatt til
verkfalla vegna aðgerðanna.
Samband starfsmanna í ríkis-
orkuveitunni stóð fyrir fyrsta
af áætluðum tveggja sólar-
hringa verkföllum sínum í gær.
» Orkuveitan varð að grípa
til áætlunar um tímabundin
raforkustopp til að koma í veg
fyrir allsherjarlokun fyrir raf-
magn.
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íbúar í sunnanverðu Súdan fögnuðu
ákaft í ársbyrjun þegar niðurstaða
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
var ljós: um 99% höfðu valið sjálf-
stæði. Loksins yrði okinu létt af
kristnu fólki sem svo lengi hafði þurft
að una ofríki íslömsku arabanna í höf-
uðborg þessa geysistóra lands, Kart-
úm. Ákveðið var að nýja ríkið yrði
stofnað 9. júlí.
Hjá mörgum hefur fögnuðurinn nú
vikið fyrir ótta við að allt fari á ný í bál
og brand, hundruð manna hafa fallið í
innbyrðis átökum síðustu mánuði
enda búa fjölmörg þjóðarbrot í suður-
hlutanum. Allt að tvær milljónir
manna féllu auk þess í áratuga löngu
borgarastríði norðurs og suðurs sem
lauk með friðarsamningum 2005.
Því fer fjarri að leyst hafi verið
mörg erfið deilumál um landamæri,
bithaga og það sem getur ráðið úrslit-
um, skiptingu tekna af olíu. Þær
skipta milljörðum dollara á ári. Lind-
irnar eru að mestu í suðri en stjórnin í
Kartúm hefur ráðstafað þeim.
Margt bendir til þess að Omar
Hassan al-Bashir forseti sjái sitt
óvænna og ætli að beita hefðbundn-
um aðferðum til að tryggja hagsmuni
sína og valdaklíkunnar. Um miðjan
maí lét hann hermenn sína ráðast inn
í landamæraborg, Abyei í samnefndu
héraði, sem er mjög frjósamt og auð-
ugt að vatni, andstætt megninu af
norðursvæðum Súdans. Að sögn
Sameinuðu þjóðanna hafa yfir 100
þúsund manns flúið heimili sín vegna
átakanna.
Reyndir menn að verki
Ekki er víst að ný málamiðlun um
Abyei haldi og eftir er að stöðva blóð-
ug átök í olíuhéraðinu Suður-Kor-
dorfan, rétt norðan við væntanleg
landamæri. Þar býr um milljón bláfá-
tækra Núbíumanna sem hafa margir
barist með kristnum sunnanmönnum
gegn harðstjórn arabanna þótt þeir
séu sjálfir múslímar.
Nýlega krafðist landstjóri S-Kor-
dofan, Ahmed Haroun, þess að fyrr-
verandi liðsmenn uppreisnarhers
sunnanmanna meðal Núbíumanna af-
hentu vopn sín. Þeir neituðu. Hér-
aðinu hefur verið lokað, þangað mega
hvorki fréttamenn né hjálparsamtök
fara. Og hroðalegar frásagnir berast
af framferði stjórnarhermanna sem
sagðir eru skjóta Núbíumenn á færi.
Haroun hefur reynsluna. Hann er
ásamt Bashir forseta eftirlýstur í
Haag vegna glæpaverka sinna í Darf-
ur-héraði.
Nýtt ríki inn í skuggalegan heim
Ofsóttir Núbíumenn í Súdan.
Skilnaðurinn milli kristinna sunnanmanna og valdaklíku múslíma í Súdan verður ekki átakalaus
Stjórn Bashirs beitir hrottalegum aðferðum til að tryggja sér olíulindir í einu landamærahéraðinu
Stuðningsmenn Bashars al-Assad Sýrlandsforseta
halda á loft þjóðfánanum með mynd af forsetanum á
útifundi í Damaskus í gær. Ríkisfjölmiðlar landsins
sögðu að milljónir manna víða um Sýrland hefðu tekið
þátt í fundum til stuðnings leiðtoganum. Assad gaf í
gær út nýja tilskipun um almenna sakaruppgjöf og hét
víðtækum umbótum en orðalagið var sagt óljóst. Mót-
mælin gegn forsetanum og stjórn hans hafa kostað yfir
þúsund manns lífið undanfarna þrjá mánuði, aðallega
óvopnaðra borgara.
Reuters
Dyggir stuðningsmenn Sýrlandsforseta
Keisaramörgæs
frá Suðurskauts-
landinu virðist
hafa tekið ranga
beygju í leit sinni
að smokkfiski og
kríl. Hún hafnaði
fjarri heimkynn-
um sínum, nánar
tiltekið á Nýja-
Sjálandi, að sögn
BBC. Fuglinn mun vera ungur, um
10 mánaða gamall og 80 sm að
hæð. Tegundin er stærst allra mör-
gæsa, metið er 122 sm og liðlega 75
kg.
„Ég sá þessa skjannahvítu, upp-
réttu veru og hélt að ég sæi ofsjón-
um,“ sagði Christine Wilton sem
var á gangi með hundinn sinn á Ka-
piti-ströndinni. Fólk hefur flykkst á
staðinn til að berja gestinn augum
en er varað við því að styggja hann
og sagt að hafa hunda sína í bandi.
Stysta vegalengdin frá Nýja-Sjá-
landi til Suðurskautslandsins er um
6000 km og er þá miðað við beina
fluglínu. 44 ár eru síðan mörgæs
flæktist síðast til Nýja-Sjálands.
kjon@mbl.is
Keisaramör-
gæs ruglast
í ríminu
Synti alla leið
til Nýja-Sjálands
Keisaramörgæs
Suðurhlutinn nær yfir þriðjung
landsins en þar er megnið af ol-
íunni og bestu landbúnaðar-
svæðin. Fátæktin er miklu meiri
í suðurhlutanum, barnadauði
tvöfalt tíðari en í norðri.
Lítill minnihluti hefur aðgang
að rennandi vatni og salerni í
suðri, í norðri er hlutfallið hins
vegar um tveir þriðju. Allt að
helmingur barna í norðri lýkur
grunnskólanámi en í verst settu
héruðum sunnanmanna er hlut-
fallið innan við 1%.
Blásnauðir
SKIPTING OLÍUTEKNANNA
Tveir grímuklæddir menn rændu
tveimur smábörnum í Brandbu á
Hadeland, norður af Ósló í Noregi, í
gærmorgun. Síðdegis voru menn
sem taldir eru sökudólgarnir stöðv-
aðir og handteknir á þjóðvegi
skammt frá Sarpsborg en engin
börn voru í bláum Saab-bíl þeirra
sem skrásettur er í Svíþjóð.
Mennirnir beittu táragasi og raf-
byssum þegar þeir rændu börn-
unum, eins og þriggja ára stúlkum,
þar sem þær voru ásamt móður
sinni á skrifstofu barnaverndaryf-
irvalda í Brandbu. Móðirin og
starfsmaður barnaverndareftirlits-
ins fundust meðvitundarlaus þegar
að var komið. Konan sætir eftirliti
yfirvalda en hefur takmarkaðan
umgengnisrétt við börnin.
Ræningjarnir eru Kúrdar, móð-
irin er frá Írak, að sögn Aftenpost-
en. Faðirinn er sagður búa í Östfold
en þar voru mennirnir voru stöðv-
aðir. Lögreglan stöðvaði síðar í
gær svartan Volvo-skutbíl sem
Kúrdi ók, tveir barnastólar voru í
aftursætinu og bíllinn var talinn
tengjast málinu en stúlkurnar voru
ekki í honum. kjon@mbl.is
Tveim börn-
um rænt
í Noregi
Móðurinni
var hótað ofbeldi