Morgunblaðið - 22.06.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ER HÆGT AÐ
VERA MEIRA
PIRRANDI!? SVONA
KLÓRAÐU
MÉR
ÞAÐ
ER
MIKILVÆGT
AÐ GETA
SAGT
EITTHVAÐ
FALLEGT
VIÐ ALLA
SÆLL KALLI BJARNA, ERTU Á
LEIÐINNI Á BÓKASAFNIÐ?
JIB!
EIGÐU
GOTT
BÓKA-
SAFN!
SAMA HVAÐ VIÐ SEGJUM EÐA GERUM ÞÁ
NEITAR HANN AÐ SEGJA NOKKUÐ. HANN ER SAMT
FARINN AÐ SÝNA VEIKLEIKAMERKI
HVAÐA
MERKI ERU
ERU ÞAÐ
EIGINLEGA?
HANN SPURÐI
OKKUR HVAÐ VÆRI Í
KVÖLDMATINN
MAMMA,
ERU KETTIR
KOMNIR AF
ÖPUM?
NEI
ELSKAN,
HVAR
HEYRÐIRÐU
ÞAÐ?
MAMMA
SAGÐI AÐ
SVO VÆRI
EKKI
SPURÐU
HANA HVORT ÞIÐ
SÉUÐ KOMNIR AF
ÖSNUM
KORTA-
REIKN-
INGURINN ER
ENNÞÁ OF
HÁR
ÉG
REYNDI AÐ
EYÐA MINNU Í
ÚTLITIÐ EN ÞAÐ
GEKK EKKI
HVAÐ
MEÐ AÐ ÞÚ
REYNIR AÐ EYÐA
MINNU ÞEGAR ÞÚ
FERÐ ÚT MEÐ
FÉLÖGUNUM
ÉG
EYÐI EKKI
MIKLU
ÞEGAR ÉG ER
MEÐ ÞEIM
ÆTLARÐU EKKI
AÐ FÁ ÞÉR NEITT?
*AND-
VARP*
ÞÚ
LÉKST Á MIG
PADDAN ÞÍN!
ÞAÐ ERU ENGIR
PENINGAR!
ÞÚ BAUÐST
UPP Á ÞETTA
EN ÞÚ
GETUR EKKI
KLÓFEST MIG
ÉG
BREYTI MÉR
BARA Í SAND OG
LÆT VINDINN
BERA MIG
MIG GRUNAÐI AÐ ÞÚ MYNDIR
REYNA AÐ GERA ÞAÐ
RYKSUGA?
Tvískinnungur
forsætisráðherra
Allsérkennilegt, jafn-
vel sorglegt, var að
hlýða á forsætisráð-
herra, Jóhönnu Sig-
urðardóttur, á 17.
júní, standa og mæra
Jón Sigurðsson, hina
miklu sjálfstæðishetju
okkar, þegar hin sama
kona gengur fram af
mikilli elju að koma
landinu undir erlend
yfirráð. Virðist þetta
vera hennar eina
markmið. Kallast
þetta ekki tvískinn-
ungur? Megi Ísland vera sjálfstætt
og fullvalda um ókomin ár.
Ásta, Garðabæ.
Athugasemd um styttu Jóns
Styttan af Jóni forseta á Aust-
urvelli er andspænis Alþingishúsinu
en ekki tjörninni eins
og kom fram í orðum
fjallkonunnar 17.
júní.
Pálmi
fæst gefins
Stór og flottur
kentia-pálmi fæst
gefins. Uppl. í síma
567 4327.
Sigrún Pálína
og biskupinn
Vegna skrifa Jóhönnu
Björnsdóttur í Vel-
vakanda 21. júní vil
ég segja að mikið af-
skaplega er ég fegin að einhver hef-
ur haft einurð í sér til að skrifa af
viti um þetta yfir 30 ára gamla mál.
SM.
Ást er…
… kristaltær.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handav./smíði/útskurður
kl. 9. Heilsugæsla kl. 10/11.30. Opinn
púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Tískusýning, sölu-
sýning 30. júní kl. 13. Föt frá heild-
versluninni LOGY. Ragnar Levý kemur
með harmonikkuna. Gott með kaffinu.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9,
verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fé-
lag eldri borgara og Heimilisiðn-
aðarfélag Ísl. standa fyrir Jóns-
messugleði í Árbæjarsafni 23. júní kl.
19.30, Blásarasveit, kór FEB, fjölda-
söngur, danssýning, þjóðbúningasýn-
ing, Vinabandið ofl. Dagsferð þriðjudag
28. júní, farið verður um Árnessýslu.
Uppl. og skráning s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, botsía kl. 10.30, fé-
lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opið í Jónshúsi kl. 9.30-16, brids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Seltjarn-
arnesi | Molasopi og spjall í Króknum
kl. 11. Handavinnudagur án leiðsagnar.
Púttvöllur. Vatnsleikfimi kl. 18.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Handavinna
og tréútskurður kl. 9. Frá hádegi er
spilasalur opinn.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Kaffi og rabb kl. 10. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 11. Brids kl. 13, kaffi og
samvera.
Hraunbær 105 | Púttvöllurinn opinn
alla daga. Handavinna kl. 9, Helga fóta-
fræðingur á staðnum, tímap. í s.
6984938, hárgreiðslustofan opin, tíma-
pant. í s. 8946856, farið verður í Jóns-
messukaffi frá Hraunbænum kl. 13,
skráning og greiðsla er nauðsynleg fyr-
ir ferðina, grillpartý 24. júní, skráning á
skrifstofu eða síma 4112730.
Hraunsel | Bingó kl. 13.30, vatns-
leikfimi kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin
opin kl. 8-16. Létt gönguferð um ná-
grennið kl. 14.
Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl.
8.50. Ferð í Blómabæinn Hveragerði í
tilefni hátíðarhaldanna Blóm í bæ. Lagt
af stað kl. 12.30 23 júní. Kaffiveitingar
á Hótel Örk. Síðasti pöntunardagur í
dag. Hæðargarður er lokaður frá 4. júlí
til 3. ágúst.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó á æf-
ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kemur kl. 10.30, bingó
kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Félagsvist alla mið-
vikudaga kl. 14 í Norðurbrún 1.
Skemmtifélag eldri borgara | Jóns-
messukaffi Ólafs B. 22. júní, skemmti-
atriði, kaffihlaðborð og dans. Farið frá
Hraunbæ kl. 13, Mjódd kl. 13.05, Afla-
granda kl. 13.20, Vesturgötu kl. 13.25,
Lækjartorgi 13,30. Pantanir í s. 775
1340.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Félags-
miðstöðin opin, hárgreiðslu- og fótaað-
gerðastofur opnar. Dönsum í dag kl.
14. Dagsferð til Vestmannaeyja 30.
júní, rúta frá Vitatorgi kl. 7.15 Matur og
kaffi í Eyjum, fararstjóri bæði á leið
austur og í Eyjum. Uppl. í síma 411
9450.
Hjálmar Freysteinsson fylgdistmeð deilunum um Dyrhóla-
ey og reyndi að setja sig inn í að-
stæður eins málsaðila:
Ég forðast þref en þrái frið
og þykist vera meinlaust grey.
Ekki vildi ég vera hlið
á veginum í Dyrhólaey.
Kristbjörg F. Steingrímsdóttir í
Aðaldal sá til sólar í gærmorgun
og kastaði fram vísu af því til-
efni:
Vaknar að nýju von um þann yl
er venjuleg sumur gefa
eg sá í morgun að sólin er til
sem ég var farin að efa.
Ágúst Marinósson skrifar um
skemmtilega kveðju: „Afi minn,
Gísli Helgason í Skógargerði, orti
um mig á jólum 1961. Er það
fyrsta vísan sem mér er tileinkuð
sérstaklega. Fyrriparturinn er
auðskilinn og orð í tíma töluð.
Hefði betur haft hann í huga á
ýmsum tímum ævinnar. Seinni-
parturinn er hinsvegar svolítið
torráðinn og mér hefur aldrei
fundist mikið atriði að ganga
gegn straumi, hvorki í eiginlegri
né óeiginlegri merkingu.
Vel má Gústi vara sig
að villast ekki í glaumnum.
Gakktu jafnan gæfustig
glaður – á móti straumnum.“
Björn Ingólfsson leggur út af
þessari sögu:
Það gildir þótt framundan gatan sé
breið
að gleyma ekki haldinu á taumnum,
að finna sér sjálfur í lífinu leið
en láta ekki berast með straumnum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vísdómi og fyrstu vísu
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is