Morgunblaðið - 22.06.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 22.06.2011, Síða 29
Djasshátíð Frá opnunartónleikum Djasshátíðar Egilsstaða 2008; dansað í aðgöngum Kárahnúkavirkjunar. Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Djasshátíð Egilsstaða á Austurlandi verður haldin 23.-26. júní næstkom- andi. Hátíðin er elsta djasshátíð á Ís- landi en hún fór fyrst fram árið 1988. Að sögn Jóns Hilmars Kárasonar má segja að náttúrufegurðin fyrir austan hafi átt stóran þátt í stofnun hátíðarinnar. Á Steinþór Stein- grímsson píanóleikari að hafa sagt við Árna Ísleifsson félaga sinn úr KK-sextettnum: „Hér þyrfti að leika djass, hér er svo fallegt,“ síðla sum- ars á Egilsstöðum árið 1987. Ári seinna setti Jón Múli Árnason þessa fyrstu djasshátíð landsins og síðan þá hefur fjöldi listamanna sótt hana heim. Neskaupstaður og Seyðis- fjörður slást í hópinn Til að byrja með fór hátíðin ein- ungis fram á Egilsstöðum en nú hafa Neskaupstaður og Seyðisfjörður bæst í hópinn. Jón Hilmar segir það hafa verið gert til þess að færa hátíð- in nær sem flestum íbúum fjórð- ungsins. „Þetta var bara tilraun, við vildum færa hátíðina nær fólkinu því þetta eru miklar veglengdir sem þarf annars að fara,“ segir Jón Hilm- ar og bætir við að þeir hafi einnig létt hátíðina á vissan hátt þar sem hún er ekki lengur einskorðuð við djass. „Þetta er tónlistarveisla í rauninni.“ Í kynningu segir að Austurland sé sannkölluð paradís tónlistarunnenda þar sem hver tónlistarhátíðin reki aðra. Jón Hilmar telur að þennan mikla tónlistaráhuga Austfirðinga megi meðal annars rekja til þess hversu einangraðir þeir voru. „Menn þurftu bara að sjá um sig sjálfir og unga út tónlistarmönnum til að skemmta Austfirðingum. Svo þegar síldarárin voru og hétu var líka nóg að gera í spileríi,“ segir hann. Upplýsingar um dagskrá hátíð- arinnar og þá listamenn sem koma fram má finna á heimasíðu hátíð- arinnar, jea.is. Djasstónlistarveisla fyrir fólkið á Austfjörðum Djasshátíð » Djasshátíð Egilsstaða er elsta djasshátíð hér á landi. » Hún var fyrst haldin árið 1988.  Djasshátíð á Egilsstöðum, Neskaupstað og Seyðisfirði Morgunblaðið/Sigurgeir S. Þriðja ljóðabók Ólafar M. Þor- steinsdóttur, Dansað eitt spor, er komin út hjá Bókaútgáfunni Holti. Dans kemur fyrir bæði í titl- inum og oftar en einu sinni í ljóð- unum. Spurð að því hvort dansinn sé þema bókarinnar segir Ólöf að það megi alveg segja það. „Ég er að yrkja um lífsdansinn og svona bæði ímyndaða tilveru og tilveruna sjálfa. Það að vera með eða vera ekki með, „with or witho- ut“. Lífið er nú fallegra ef þú dansar með og dansar alla ævi frekar en situr hjá og ert til- hæfulaus bara,“ segir hún. Á bókarkápunni er mynd eftir Ólöfu sem vísar í yrkisefni ljóðanna, lífsdansinn. Á myndinni eru tvær verur innan hrings og ein stendur fyrir utan hann. „Þetta er dans innan hringsins eða utan og þú tekur einhver skref eða spor. Þú tekur auðvitað fleiri en eitt spor í lífinu svo titill bók- arinnar er hálfgerð öfugmæli,“ segir hún. Af og til yrkir Ólöf á ensku, ým- ist er það ein eða fleiri lína í ljóði en heilt ljóð á ensku kemur líka fyrir í bókinni. „Þetta er nú svona enskusletta bara til gamans. Ég nota enskuna til að bæta upp ljóð- ið, stundum er þetta skilningsrík- ara á henni og mér fannst þetta koma betur út þannig.“ Að sögn Ólafar er hún ekkert að semja þessa dagana. „Þetta er þriðja bókin mín og það má segja að ég sé núna komin í skálda- pásu,“ segir hún og játar því að stundum sé það alveg nauðsynlegt. Það er fallegra að dansa með  Þriðja ljóðabók Ólafar M. Þorsteinsdóttur, Dansað eitt spor, gefin út Lífsdans Ólöf M. Þorsteinsdóttir með ljóðabók sína Dansað eitt spor. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Húsmóðirin (Nýja sviðið) Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega Húsmóðirin - HHHH E.B. Fbl Á norðurstrandlengju Reykjavíkur er nokkuð af útilistaverkum og hefur fjölgað undanfarin ár. Á fimmtudag kl. 20:00 leiðir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kvöldgöngu við Sæbrautina og segir frá verkunum sem þar eru. Gangan tekur um klukkustund, en lagt er upp frá Grófinni. Verkin sem verða skoð- uð í kvöldgöngunni eru Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, Íslandsvarðan eftir Jóhann Eyfells, Samstarf eftir Pétur Bjarnason og Fjöruverk eftir Sigurð Guðmunds- son. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Myndlist Útilistaverkaganga Sólfar Jóns Gunnars Á sunnudag halda Elín Ósk Ósk- arsdóttir sópransöngkona og Jónas Þórir píanóleikari tónleika í sumar- tónleikaröð Gljúfrasteins. Á efnis- skránni eru lög úr óperum á borð við Toscu og söngleikjum, auk þekktra ís- lenskra dægurlaga. Tónleikarnir hefj- ast kl. 16:00. Elín Ósk hefur sungið fjölda óperu- hlutverka innanlands og erlendis og fengið ýmsar viðurkenningar og til- nefningar fyrir söng sinn, meðal ann- ars á Ítalíu. Jónas Þórir er kantor og kórstjóri hjá Bú- staðakirkju og kennari við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Tónlist Söngur á Gljúfrasteini Elín Ósk Óskarsdóttir The Tiny Trio heldur tónleika í Gerðubergi í hádeginu á fimmtu- dag. Á tónleikunum, sem hefjast kl. 12:15 og standa til 13:00, verður leikin djasstónlist í anda Chet Ba- ker en auk þess flytur tríóið íslensk dægurlög. The Tiny Trio var stofnað fyrir fimm árum af Jóhannesi Þorleiks- syni í tengslum við djasskvöld sem haldin voru í hverri viku á Thor- valdsen barnum í Reykjavík. Tríóið er nú skipað Jóhannesi Þorleiks- syni á trompet, Leifi Gunnarssyni á kontrabassa og Hirti Steinarssyni á gítar. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa allir stundað nám við Tónlist- arskóla FÍH. Undanfarna mánuði hefur tríóið legið í dvala vegna náms Leifs við tónlistarháskólann Rytmisk Mus- ikkonservatorium í Kaupmanna- höfn, en hefur nú sumarstarf sitt. Sumarstarf The Tiny Trio; Jóhann- es, Leifur og Hjörtur. Tiny Trio leikur í Gerðubergi  Djasstónlist í anda Chet Baker og íslensk dægurlög Í frétt af ljósmyndasýningum Svavars Jónatanssonar, Innland/ Útland, var ekki farið rétt með nöfn tónlistarhöfunda. Rétt er að Daníel Ágúst Haraldsson frum- samdi alla tónlist við verkin þrjú, en í sumar eru síðan tvö verk til sýningar (Innland/ Útland-Ísland og Innland- Vatnajökull og Innland- Snæfellsjökull). Honum til að- stoðar við Innland/Útland-Ísland var Þórður Hermannsson selló- leikari, við Innland-Vatnajökull voru Davíð Þór Jónsson og Matti Kallio harmonikkuleikari, við Innland-Snæfellsjökull var Borg- ar Magnússon kontrabassaleik- ari. Innland/ Útland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.