Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Samkomulag er enn ekki í aug- sýn í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Sam- taka atvinnulífs- ins, sem semur fyrir hönd Ice- landair. Kjara- deilunni var vís- að til meðferðar ríkissátta- semjara 8. júní sl. en boðað er til næsta sáttafundar í deilunni 23. ágúst vegna sumarleyfa, að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, formanns flugfreyjufélagsins. „Þá hef ég á tilfinningunni að hlutirnir fari að gerast,“ segir hún. Sigrún segir að haldnir hafi ver- ið sáttafundir á tveggja vikna fresti í sumar og þar fyrir utan hafa viðsemjendur komið saman á fundum, skipst á útreikningum og kastað á milli hugmyndum um endurnýjun samninga. Menn séu því að tala saman og segir hún deiluna alls ekki vera komna á það stig að farið sé að ræða aðgerðir til að knýja á um samkomulag. omfr@mbl.is Hæga- gangur í viðræðum Flugfreyjur og SA á sáttafund 23. ágúst Flug Enn ósamið við flugfreyjur. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Maður á þrítugsaldri var í Héraðs- dómi Suðurlands í gær úrskurð- aður í gæsluvarðahald þar til næst- komandi föstudag en hann er grunaður um að hafa nauðgað rúm- lega tvítugri konu við salernisað- stöðu í Herjólfsdal um verslunar- mannahelgina. Önnur nauðgun sem átti sér stað í Eyjum hefur einnig verið kærð til lögreglu en alls voru tilkynnt sex kynferðisbrotamál um helgina, fimm í Vestmanneyjum og eitt á Akureyri. Enn hefur enginn leitað til Stíga- móta vegna nauðgunar- eða kyn- ferðisbrotamála eftir helgina en Guðrún Jóns- dóttir, talskona Stígamóta, segir reynsluna hafa sýnt að þolendur leiti sér jafnan ekki aðstoðar fyrr en löngu seinna. „Það er of snemmt að segja til um hversu margar nauðganir voru framdar um helgina, því að oft leita stúlkur sér hjálpar löngu eftir að verkn- aðurinn er framinn. Þannig leituðu fjórtán stúlkur sér hjálpar hjá Stígamótum í fyrra vegna kynferð- isbrota sem áttu sér stað á útihá- tíðum en brotin gætu hafa verið framin einhverjum árum áður,“ segir Guðrún. Hún segir fjöldamargar konur aldrei leita sér hjálpar en engin einföld lausn sé til, erfitt sé að tryggja fullkomlega öruggar útihá- tíðir og segir Guðrún að taka verði á vandanum með víðtækari hætti. Þar nefnir hún m.a. að virkja karl- menn í baráttunni, að endurskoða hvernig réttarkerfið taki á kynferð- isbrotamálum og að stöðva klám- væðinguna sem kenni að það sé í lagi að koma illa fram við konur. Hvað sértæk úrræði varðandi útihátíðirnar varðar segir Guðrún að eftir Eldborgarhátíðina al- ræmdu hafi verið sett á laggirnar nefnd sem kom t.d. með tillögur um aukna lýsingu og löggæslu, auk þess sem Stígamót vildu aldurs- takmörk á hátíðirnar og aukna upplýsingaskyldu gagnvart gestum um öryggisgæslu og úrræði. Það plagg liggi væntanlega ennþá í skúffu einhvers staðar í innanrík- isráðuneytinu. En kemur til greina að Stígamót verði aftur til taks á útihátíðum í framtíðinni? „Ef eftir því yrði leitað og kostn- aður yrði greiddur myndum við skoða það mjög vandlega. Við myndum ekki skorast undan því ef við hefðum tök á því að sinna þeim málum almennilega,“ svarar Guð- rún. Víðtækra aðgerða er þörf  Maður úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um nauðgun  Sex kynferðisbrotamál tilkynnt eftir helgina en aðeins tvö kærð  Of snemmt að segja til um fjölda kynferðisbrotaþola helgarinnar Guðrún Jónsdóttir Ofbeldi og fautaskapur » Að minnsta kosti tvö kyn- ferðisbrota helgarinnar voru framin á almannafæri, að sögn Eyrúnar Jónsdóttur, verkefn- isstjóra á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis. » „Það, hvort fólk kæri svona brot eða ekki, segir ekkert til um alvöru þeirra. Þetta er of- beldi og fautaskapur og fjöldi þeirra sem kærir segir ekkert um fjölda þeirra sem verða fyr- ir þessu,“ segir hún. Rigningin og rokið í sumum landshlutum síðustu daga hefur vakið litla ánægju hjá gangandi veg- farendum, m.a. hjá ferfætlingunum sem vita margt skemmtilegra en að blotna. Enginn er verri þótt hann vökni, segir máltækið og þessir hvuttar í Hafnarfirði urðu að láta sér rigninguna lynda í gær enda bundnir til að bíða eftir eigand- anum sem skrapp inn í skjól frá veðuröflunum til að sinna nokkrum erindum. Morgunblaðið/Eggert Bíða þolinmóðir en hundblautir eftir eigandanum Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Það fjármagn sem kom inn í HS orku í kjölfar þess að Jarðvarmi slhf., sem er í eigu fjórtán lífeyr- issjóða, keypti 25% hlut í fyrirtæk- inu hefur að hluta farið í að borga forstjóra Alterra Power til baka lán sem hann veitti Alterra til kaupa á hlut í HS orku. Þessu heldur Ás- mundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, fram. Hann segir fráleitt að peningarnir sem lífeyrissjóðirnir hafi komið með inn í HS orku séu notaðir með þessum hætti til að greiða upp skuldir við eiganda fé- lagsins. „Þetta er lokahnykkurinn á svikamyllu Stein- gríms J. Sigfús- sonar í þessu Magma máli. Það var hann sem hafði úr að velja þá kaupendur sem gátu keypt hlut Geysis Green í HS á sín- um tíma,“ segir Ásmundur. Alterra Power hét áður Magma Energy og er að stórum hluta í eigu Ross Beaty, forstjóra félagsins. Al- terra á 75% hlut í HS orku. Félagið keypti hlutinn í umdeildri sölu Ís- landsbanka fyrir rúmu ári. „Ross Beaty keypti hlut sinn í HS orku með aflandskrónum og nú hefur fjármálaráðherra gefið þess- um manni leyfi til að flytja þessa 3,5 milljarða, sem lífeyrissjóðirnir ætl- uðu að leggja í atvinnulíf á Íslandi, í vasa þessa manns með margföldum hagnaði,“ segir Ásmundur. Hann hafi greinilega ekki trú á því að peningarnir ávaxtist best í HS orku. Kynnt á fundi Ásmundur segir umræddan gjörning ekki hafa komið á óvart því hann hafi verið kynntur á fundi í Garði í vor. Menn hafi þó ekki viljað horfast í augu við raunveruleikann. „Þegar Beaty var spurður að því hvort þeir peningar sem lífeyris- sjóðirnir kæmu með myndu ekki styrkja rekstur félagsins svaraði hann því til að þeir yrðu fyrst og fremst notaðir til að endurgreiða honum sjálfum. Það verður því væntanlega ekki til að styrkja fyr- irtækið,“ segir Ásmundur. Verið sé að flytja gjaldeyri úr landi. Ásmundur segir að þrír stjórnarþingmenn hafi setið fundinn í vor en ekkert aðhafst. Með því að samþykkja kaup Magma á HS orku á sín- um tíma hafi fjármálaráð- herra í raun verið að heimila umræddan útflutning á gjald- eyri. „Lokahnykkurinn á svikamyllu“  Alterra Power, áður Magma Energy, hefur endurgreitt forstjóra félagsins lán upp á tæpa þrjá milljarða  Alterra Power á meirihlutaeign í HS orku Ásmundur Friðriksson „Við höfum engar sérstakar áhyggjur af þessari endur- greiðslu til Ross Beaty,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þegar bærinn seldi hlut sinn í HS orku á sín- um tíma var það að hluta greitt með skuldabréfi sem kemur til greiðslu 2016. Umræddur gerningur hefur ekki áhrif á það að mati Árna en hugsanlega komi skuldabréfið fyrr til greiðslu. Engin áhrif á skuldabréf SKULDAR REYKJANESBÆ Árni Sigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.