Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Við Sólfarið Votviðrasamt hefur verið í Reykjavík síðustu daga. Erlendir ferðamenn láta það lítið á sig fá þegar þeir rölta um borgina með myndavélina á lofti, enda búnir fyrir hvað sem er. Kristinn Voðaverkin í Noregi eru sláandi áminning um að ekkert samfélag er algjörlega óhult fyrir árásum af því tagi sem áttu sér þar stað. At- burðir sem þessir varpa kastljósi á örygg- ismál og hvort lögregla og aðrar viðbragðs- stofnanir séu í stakk búnar til þess að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Að sjálfsögðu er aldrei hægt að fá fullkomið öryggi en með ábyrgri öryggisstefnu er hægt að loka glufum í öryggiskerfinu. Frá efnahagshruni hafa framlög til löggæslumála á Íslandi verið skorin niður mjög harkalega, svo harkalega í rauninni að af fullri alvöru má bera fram þá spurningu hvort íslenska rík- ið sé að sinna því lykilhlutverki sínu að tryggja öryggi borgara sinna. Ekki er t.d. langt síðan þær fréttir bárust frá Vestmannaeyjum að þar þyrfti lögreglan að loka lögreglustöð- inni hluta úr sólarhring vegna nið- urskurðar. Vestmannaeyingar þurfa þess vegna að sætta sig við sama lög- gæslustig og fyrir mörgum áratugum á sama tíma og aldrei hefur verið eins mikil umferð af fólki um eyjuna fögru. Herjólfur hefur flutt yfir 80 þúsund manns til og frá Eyjum síðan siglingar hófust aftur í Landeyj- arhöfn í byrjun sumars. Ástand lög- gæslumála er heldur ekki upp á marga fiska í mörgum af smærri bæj- um á landsbyggðinni þar sem ekki er í raun um neina skipulagða löggæslu að ræða. Má t.d. nefna bæi eins og Bolungarvík þar sem lögreglustöð- inni var einfaldlega lokað og engin staðarlöggæsla er. Þá hefur ekki farið framhjá þeim sem fylgjast með lög- gæslumálum hversu undirmönnuð lögreglan er á höfuðborgarsvæðinu, en núna eru um 50-60 færri lög- reglumenn að störfum á höfuðborg- arsvæðinu heldur en árið 2007. Svip- aður fjöldi lögreglumanna vinnur nú á öllu höfuðborgarsvæðinu eins og var bara í Reykjavík fyrir sameiningu embættanna árið 2007. Ef farið er út í samanburð við nágrannalönd þá stendur íslenska lögreglan einnig mjög höllum fæti. Samanburður við Noreg, sem dæmi, er ekki hughreyst- andi. Nýlega var á það bent að ef lög- reglumenn á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni væru hlut- fallslega jafnmargir og í Ósló væru lög- reglumennirnir 700-800 en ekki 350. Þegar lögreglulið er fjársvelt og undir- mannað er ekki hægt að ætlast til þess að það geti sinnt miklu meira en viðbragðslöggæslu, enda hefur ríkislög- reglustjóri bent á að frumkvæðisvinna lög- reglu hefur minnkað samfara minni fjárútlátum og fyrir- byggjandi- og verkefnamiðuð lög- gæsla hafi þurft að sitja á hakanum fyrir vikið. Það er sorgleg þróun en staðreynd engu að síður að Íslendingar standa frammi fyrir erfiðum og krefjandi verkefnum á sviði löggæslu. Hér á landi hefur skipulögð glæpastarfsemi náð fótfestu og ljóst þykir að slíkri starfsemi fylgir mikil samfélagsvá í öllum þeim löndum sem hún hefur náð að skjóta rótum af einhverju afli. Þá hefur verið bent á að mansal þríf- ist hér undir yfirborðinu og að lög- reglan hafi einfaldlega ekki nægileg- an mannafla eða fjármagn til að bregðast við þeirri þróun eins og staðan er enda séu slík mál bæði mannafla- og tímafrek. Það sýnir sig hvað eftir annað að Íslendingar treysta lögreglunni vel, síðustu kannanir benda til þess að 92% þjóðarinnar treystir lögreglunni, hlutfall sem er líklega einsdæmi í heiminum. Það er skylda hverrar rík- isstjórnar að tryggja að borgarar rík- isins njóti viðunandi löggæslu. Þegar tekið er til við að loka löggæslu tíma- bundið og nær öll frumkvæðisvinna er horfin sökum mannafla- og fjár- skorts þá er augljóst að þróunin er orðin hættuleg og að öryggi borgara er teflt í tvísýnu. Eftir Tryggva Hjaltason »Ekki er t.d. langt síð- an þær fréttir bár- ust frá Vestmanna- eyjum að þar þyrfti að loka lögreglustöðinni hluta úr sólarhring vegna niðurskurðar Tryggvi Hjaltason Höfundur er öryggismála- og greiningarfræðingur. Er lögreglan fjársvelt? Það er hagur allra, jafnt þeirra sem eru aðilar að evrusvæðinu og hinna, sem standa utan þess, að evran þróist í átt til jafn- vægis og geti orðið stöðugri gjaldmiðill í raun en hún virðist vera nú. Gjaldmiðlar í ójafnvægi, ekki síst hrynjandi gjaldmiðlar, skapa glundroða víðar en á heimaslóðum. „Dalurinn er gjaldmiðill okkar en vandamál ykk- ar,“ sagði fjármálaráðherra Banda- ríkjanna John Connally árið 1971 við evrópska sendinefnd. Var athugasemdin eflaust tengd þeim áformum Bandaríkjanna að leggja niður gullfót dalsins. Þegar dal- urinn veikist bæta Bandaríkin viðskiptastöðu sína með því að gera vandræði sín að útflutningsvöru rétt eins og aðrar þjóðir, sem hafa vald yfir gjaldeyri sínum (formúlan heitir á ensku: „export one’s way out of trouble“). Það er ekki líklegt að Íslend- ingar muni sækja sér efnahags- legan styrk með aðild að gjaldeyr- issvæði evrunnar. Grunnur evrusvæðisins er ótraustur. Þar koma saman þjóðir, sem hafa mjög ólíka afstöðu til grundvallarþátta efnahagsstjórnunar. Sum þeirra setja á oddinn jafnvægi í rík- isrekstri og viðskiptum. Önnur sýna slíkum dyggðum tómlæti og halda uppi viðamikilli samfélags- þjónustu með skuldsetningu. Það væri tómlæti gagnvart íslenskum hagsmunum að hengja þá aftan í svo annarlegt farartæki. Í nánast öllum stærstu ríkjum evrusvæðisins hefur búið um sig viðvarandi atvinnuleysi stórs hluta vinnufærra manna, einkum ungs fólks. Fyrir lánsfjárkreppuna var atvinnuleysi að meðaltali 8% í Frakklandi en meðal ungs fólks frá 18 til 28 ára nam það um 20%. Fyr- ir nokkrum árum deildi ég vinnuað- stöðu með ungum og vel menntuð- um Spánverja, sem var að ljúka doktorsnámi í hagfræði við Robert Schuman Institute í Flórens. Áður skildist mér að hann hefði lokið tveimur mastersprófum. Hann sagði mér að sín biði ekki starf í Madríd, heldur námskeið fyrir at- vinnulausa. Þetta var árið 2004. Þeir sem fylgjast með fréttum vita hvernig ástandið er á Spáni í dag. Atvinnuleysi er orð- ið svo mikið á evru- svæðinu að það grefur undan framtíð- arhorfum heilla kyn- slóða ungs fólks. Ég átti þess kost að ræða nokkuð ítarlega við ítalskan prófessor og sérfræðing í orku- málum við Evrópsku háskólastofnunina í Flórens (Eropean Uni- versity Institute) um atvinnuleysi á Ítalíu og innan ESB. Það vakti athygli mína að prófessorinn leit á atvinnuleysi sem samfélags- legt viðfangsefni sem hyrfi, ef veitt- ar væru viðunandi atvinnuleys- isbætur. „Hvar er þetta vandamál sýnilegt?“ spurði hann. „Sérðu betl- ara á götum Flórens?“ Ég varð einnig var við að þetta sjónarmið var útbreitt meðal franskra stjórn- málamanna. Atvinnuleysi er hins vegar umfram allt siðferðilegt vandamál. Þegar atvinnuleysi er farið að snerta fimmta hvert ung- menni er málið löngu orðið að sið- ferðilegri meinsemd. Atvinnuleysið, sem umlykur unga fólkið, eyðileggur sjálfsvirðingu þess og brýtur niður innviði sam- félagsins. Vandamálið er við- urkennt innan ESB í orði en ekki á borði. Hagvöxtur Evrópusambands- ins er að meðaltali mjög takmark- aður og kreistur fram með ódýru lánsfé. Sambandið er þungt og svifaseint í viðbrögðum við alvar- legasta vanda samtímans og virðist líta á hann sem tæknilegt milli- færsluvandamál. Nú væri ósanngjarnt að kenna Evrópusambandinu sem stofnun um mikið og landlægt atvinnuleysi hjá mörgum aðildarríkjum. At- vinnusköpun er fyrst og fremst við- fangsefni aðildarríkjanna sjálfra. ESB hefur þó verið að færa sig æ meira inn á svið atvinnumála. Ábyrgð sambandsins hefur því far- ið vaxandi. Þótt atvinnumál hafi frá upphafi verið ofarlega á lista yfir áherslur Evrópusamstarfsins urðu á því breytingar 1997 með Amsterdam- samningnum, sem gerði tilraun til að samræma atvinnustefnu ESB- landanna. Sama ár var kynnt at- vinnustefna Evrópu sem kennd var við Lúxemborg. Á leiðtogafundi í Lissabon árið 2000 var sett á lagg- irnar áætlun um nýmæli í efna- hagsmálum, þar sem ESB var falið að skapa skilyrði til að vinna bug á atvinnuleysi og styrkja félagslega samræmingu. Svo virtist í fyrstu, sem þessi skref hefðu haft í för með sér já- kvæð áhrif. Um 2001 hafði atvinnu- leysi mjakast niður á við miðað við árið 1997. En það stóð stutt og um 2004 hafði atvinnuleysi aukist aftur. Lítill hagvöxtur og ósveigjanlegur vinnumarkaður héldu aftur af atvinnusköpuninni. Sérstaklega var þessi glíma átak- anleg í Frakklandi, þar sem þung- lamalegt regluverk og ósveigjan- legur vinnumarkaður hafa einkennt atvinnulífið og landið lengi verið þjakað af verkföllum. Tímabundnar tilslakanir í vinnulöggjöf kunna að hafa dregið aðeins úr atvinnuleysi um tíma, en vísbendingar eru um að þessar sömu tilslakanir hafi leitt til minnkandi framleiðni. Evrópusambandið verður ekki sakað um að hafa ekki reynt að ráðast gegn atvinnuleysinu. En yf- irlýsingar og útblásin markmið hafa ekki sömu þyngd og raunveru- leikinn. Evrópusambandið er einnig mjög upptekið af ýmsum málum, sem ekki snerta velferð borgaranna innan sambandsins eins beint og at- vinnumál gera. Það sem ESB er einkum upptekið af er það sjálft. Það er önnum kafið við að laga stofnanakerfið, koma sér upp sterk- ara framkvæmdavaldi og finna lausn á svokölluðum lýðræðishalla Evrópubyggingarinnar. Andvaraleysið, sem Evrópusam- bandið sýnir í raun atvinnuleysinu, þessu mikla vandamáli, er hluti af fjarlægð og firringu. Forystumenn og embættismenn sambandsins eru komnir mjög langt frá fólkinu, sem sambandið var stofnað til að veita öryggi, frið og velsæld. Það er meginástæðan fyrir því að Evr- ópubúar hafa lítinn áhuga á Evr- ópusambandinu. Þátttaka í kosn- ingum til Evrópuþingsins fer minnkandi ár frá ári. Eftir Tómas Inga Olrich » Það er ekki líklegt að Íslendingar muni sækja sér efna- hagslegan styrk með aðild að gjaldeyr- issvæði evrunnar. Grunnur evrusvæð- isins er ótraustur. Tómas Ingi Olrich Höfundur er fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Sækjum við styrk til ESB?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.