Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 215. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Þræla sér út í Noregi 2. Koma naktar fram á dagatali 3. Misstu af 1,5 milljörðum 4. „Við erum slegin yfir þessu“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndin Á annan veg verður frumsýnd 2. september á höfuðborg- arsvæðinu og á Akureyri. Um er að ræða grínmynd í leikstjórn Hafsteins G. Sigurðssonar. Á annan veg verður frumsýnd í september  Í kvöld fara fram raftónleikar á skemmtistaðn- um Barböru og hefjast þeir kl. 20. Nokkrir vel valdir úr íslenskri raf- tónlistarsenu koma þar fram, TechSoul, Steve Sampling, Skurken, HaZar og Tha Dark Stranger. Raftónleikar með öllu tilheyrandi á Barböru Jussaman da Silva í brasilískri sveiflu  Brasilíska söng- og leikkonan Jus- saman da Silva flytur bossa nova og sömbur frá Bras- ilíu í Deiglunni á Akureyri á morgun, á heitum fimmtudegi Jazzklúbbs Akureyrar. Á fimmtudag Austan 8-13 m/s og rigning með köflum, einkum sunnanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast í innsveitum á Norðurlandi. Á föstudag og laugardag Ákveðin norðaustlæg átt og rigning, en þurrt að kalla suðvestanlands. Hiti 8 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG A og NA 5-10 m/s. Rigning með köflum norðanlands og sunnanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast N-lands. VEÐUR „Hann sagði að það yrði auðvelt að skera nokkrar sekúndur af tímanum sem ég syndi á og er mjög bjart- sýnn á að í lok þessa árs verði ég komin vel undir lágmörk fyrir Ólympíuleika. Hann segir að það sé mjög einfalt,“ sagði Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottn- ing um nýja þjálfarann sinn, Wayne Riddin, sem hún mun æfa hjá í Suður-Afríku. »1 Ragnheiður til æf- inga í S-Afríku „Ég var í þessu tvö sumur og það var mjög gaman. Í kjöl- farið fór ég í klúbb- inn og missti mig nánast í golf- inu. Ári síðar fór ég yfir í fjölskyldu- setrið í Keili í Hafnarfirði,“ segir Axel Bóasson, Ís- landsmeistari í höggleik í golfi, í samtali við Morgunblaðið en farið er yfir árang- ur hans um leið og litið er í golfpok- ann hjá meist- aranum. »4 „Missti mig nánast í golfinu“ Körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson hefur samið til eins árs við spænska úrvalsdeildarliðið CAI Zaragoza. „Þeir eru búnir að styrkja hópinn og ef við náum vel saman gæti liðið komist í úrslitakeppnina,“ segir Jón Arnór sem hafnaði til- boðum frá ítölskum og spænskum fé- lagsliðum og tilboð frá stórliði á Spáni gekk honum úr greipum. »1 Jón Arnór semur við CAI Zaragoza á Spáni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á María Elísabet Pallé mep@mbl.is Somen Debnath, 28 ára gamall, frá þorpinu Basanti í Sunderban-héraði í Vestur-Bengal á Indlandi, hefur frá 27. maí 2004 ferðast um heiminn á reiðhjóli til að vekja vitund fólks um alnæmi (AIDS) og til að kveikja áhuga á indverskri menningu. Debnath kom til Íslands 21. júlí síðastliðinn frá Færeyjum en hann hefur ferðast undanfarin 7 ár um Austurlönd, Austur-Evrópu og Norðurlönd. „Ísland er eins og draumaland fyrir mig, ég vildi ferðast til enda heimsins, þannig að þegar ég fékk vegabréfsáritun til að ferðast til Evrópu ákvað ég að láta drauminn rætast.“ Áhuginn kom snemma Sem unglingur fékk Debnath áhuga á að kynna sér alnæmi þegar maður nálægt þorpi hans lést af völdum sjúkdómsins. Hann las síðar grein í dagblaði þar sem stóð að al- næmi væri hættulegri sjúkdómur en krabbamein. Aðeins 16 ára gamall fékk hann þjálfun hjá rannsókn- arstofnun um alnæmi í Vestur- Bengal. Stuttu síðar byrjaði hann að ferðast í sínu eigin heimalandi. „Ég elska þetta líf og þegar fólk hefur frið og hamingju eins og ég hef, þá getur það náð markmiðum sínum, við viljum öll skapa nýja hluti í þess- um heimi.“ Síðan þá hefur hann verið ákveð- inn í að verja 16 árum af ævi sinni í ferðalög til að vekja fólk til umhugs- unar um alnæmi. Hann var 21 árs og nýútskrifaður með háskólapróf í dýrafræði frá Háskólanum í Kal- kútta þegar hann hóf heimsreisuna. Mikill stuðningur frá Indlandi Indversk sendiráð og brottfluttir Indverjar hafa aðstoðað hann á ferðalaginu. Debnath stefnir á að ferðast til allra heimsálfa og sem flestra landa í heiminum fyrir árið 2020 en þá mun hann hafa hjólað um 200.000 kílómetra. Debnath hefur skipulagt ferðir sínar gaumgæfilega. Hann fer næst til Grænlands og síðan fer hann yfir á meginland Evrópu þar sem hann ætlar að heimsækja öll lönd álf- unnar. Á árunum 2011-2015 mun hann ferðast um Afríku og þá mun BBC-sjónvarpsstöðin og þýsk sjón- varpsstöð fylgja honum. Þegar hann hefur ferðast um mestalla Afríku mun hann fara til Suður-Ameríku og á milli áranna 2015 og 2017 mun hann ferðast um alla Norð- ur-Ameríku. Eftir það er leið- inni heitið til Austurlanda fjær, Ástralíu og aftur til Indlands ár- ið 2020. Hægt er að styðja Deb- nath með framlögum. Allar upp- lýsingar um ferðalag Debnaths og framlög eru á vefsíðu hans, www.somen2020world.com. Í kringum hnöttinn á 16 árum  Vekur til umhugs- unar um alnæmi og indverska menningu Morgunblaðið/Sigurgeir S. Markmið Somen Debnath mun hjóla um allan heim til að vekja athygli á alnæmi og indverskri menningu. Þegar Debnath hefur lokið ferðalagi sínu vill hann stofna alþjóðlegt þorp þar sem allt að 100 manns munu búa saman. Þar verða munaðarleys- ingjahæli, endurhæfingarstofnun, sjálfshjálparhópar og skóli sem mun kenna umhverfisfræði. „Mér finnst mjög mikilvægt að vinna að umhverfismálum því að við erum umhverfið.“ Debnath vinnur nú að bók sem hann stefnir á að klára árið 2013, með hjálp nokkurra vina sinna. Hann skrifar um reynslu sína og hvetur fólk til að ferðast eins og hann hefur gert. Þegar hann byrjaði að ferðast átti hann aðeins 17 bandaríkjadali. „Ég trúi því að ef fólk gefur af sér í þágu samfélagsins muni sam- félagið hjálpa því að uppfylla drauma sína.“ Deb- nath finnst Íslendingar vera rólegir og yfirvegaðir. ,,Ísland er ís, vatn, bátar og vingjarnlegt fólk.“ Fólk getur ferðast fyrir lítið HEIMSREISA MEÐ TILGANG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.