Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 6
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
Einn vinsælasti ferðamannastaður í
Bláskógabyggð, Strokkur, er um-
kringdur litskrúðugum ferðamönn-
um víðsvegar að úr heiminum nær
allt árið um kring. Oftast er fullt til-
efni til að klæðast hlífðarjökkum eða
regnfatnaði.
Ferðamönnum, sem Morgun-
blaðið tók tali við Strokk, leist mis-
vel á veður og matinn á Íslandi en
allir voru þeir einhuga um fegurð
landsins.
Vildu smakka lamb og fisk
„Rigning,“ var allt sem John
Maltesen frá Roskilde í Danmörku
hafði að segja um Íslandsferðina
hingað til en hann og konan hans
vonast til þess að fá að gæða sér á ís-
lensku lambakjöti og fiski. Það stóð
hins vegar ekki til að smakka
hrefnu. Isabella og Christi-
an Boris frá Frakklandi
sögðu ferðina hafa komið
á óvart. „Það er mjög
friðsælt hérna en
Reykjavík er mjög
lítil borg miðað við
að þetta er höfuð-
borgin ykkar,“
sögðu þau og bættu
við að landslagið
væri mjög sérstakt.
„Eflaust hefur verið erfitt að lifa á
landinu áður fyrr, fólk bjó við erfiðar
aðstæður.“ Ole Goderstad frá Nor-
egi og Joakim Pettersson frá Sví-
þjóð voru bjartsýnir og hlökkuðu til
að fara í hvalaskoðun frá Húsavík og
smakka hákarl og brennivín. Veg-
irnir hafi verið það versta við ferðina
hingað til. Ef til vill er hluti skýring-
arinnar sú að þeir leigðu sér „léleg-
asta bíl sem er til,“ að sögn Ole.
Joakim hughreysti félaga sinn og
sagðist bara vona „að lenda ekki í
stærstu holunum.“
Í Bláskógabyggð og uppsveitum
Árnessýslu er því iðandi ferðaþjón-
usta og að sögn Ásborgar Arnþórs-
dóttur, ferðamálafulltrúa uppsveita
Árnessýslu, hefur ferðatímabilið sí-
fellt verið að lengjast og umferð
ferðamanna detti aldrei alveg niður.
Þar er að finna fjölbreytta ferða-
mannaþjónustu og á hverju ári bæt-
ast við frumkvöðlar í greininni.
„Við segjum oft hérna að við séum
öll í ferðamannaþjónustu hvort sem
okkur líkar betur eða verr,“ bætir
Ásborg við.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ferðamenn Upplifun ferðamannanna við Strokk er eins misjöfn og þeir eru margir.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sendi í gær Annie Mist
Þórisdóttur hamingjuóskir með sig-
ur hennar í Heimsleikum í crossfit. Í
tilkynningu frá forsetaembættinu
kemur fram að í kveðjunni áréttaði
forseti að hún hefði sýnt ungu fólki
hve langt væri hægt að ná með aga,
þjálfun og einbeitingu. Mikilvægt
væri að æska landsins ætti slíkar
fyrirmyndir.
Annie Mist er á 22. aldursári og er
yngsti keppandinn sem hefur unnið
heimsleikana.
Foreldrar Annie Mistar fylgdust
með keppninni í Los Angeles. „Ég er
að rifna úr stolti, þetta var bara stór-
kostlegt,“ sagði Agnes Viðarsdóttir,
móðir hennar, í samtali við Mbl
Sjónvarp eftir að úrslit lágu fyrir.
Keppnin var æsispennandi og sagði
Þórir Magnússon, faðir hennar, að
erfitt hefði verið að fylgjast með síð-
ustu greininni. Maður var bara hálf-
skælandi, bætti Agnes við hlæjandi
og glöð.
Forseti Íslands sendi
Annie Mist heillaóskir
Mikilvæg fyrirmynd fyrir æskufólk
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Öflug Annie Mist Þórisdóttir er fíl-
hraustur heimsmeistari.
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Íslensk stjórnvöld munu ekki gera
athugasemdir við löndunarbann
Norðmanna á makrílafla íslenskra
fiskiskipa. Sambærilegt bann gildir
við löndun erlendra fiskiskipa, þ.á m.
norskra skipa, á makríl hér á landi.
Tómas H. Heiðar, aðalsamninga-
maður Íslands í viðræðum um mak-
rílveiðar, segir að íslensk lög banni
sjálfkrafa löndun erlendra fiskiskipa
í íslenskum höfnum á afla úr sameig-
inlegum stofnum
sem samkomulag
hafi ekki tekist
um stjórnun á.
Sambærileg lög-
gjöf sé í gildi í
Noregi.
Tómas gefur
lítið fyrir nýlegar
fullyrðingar ESB
og Noregs um
allsherjarinn-
flutningsbann á íslenskum og fær-
eyskum sjávarafurðum.
„Við göngum út frá því að ESB og
Noregur virði reglur þjóðaréttar um
milliríkjaviðskipti í hvívetna,“ segir
Tómas. Slíkt allsherjarbann bryti í
bága við EES-samninginn, meðal
annars bókun 9, og samninga Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO).
Vilja semja um veiðarnar
„Það sem nú er brýnast er hins
vegar er að Noregur og ESB,
stærstu hagsmunaaðilarnir í makríl-
veiðum, axli þá ábyrgð sem því er
samfara og leggi sitt af mörkum til
að samkomulag náist um stjórnun
veiðanna.“ Tómas segir mikilvægt að
koma í veg fyrir ofveiði og tryggja
sjálfbærar veiðar. Ísland hefur lýst
yfir vilja til að funda á ný með hinum
strandríkjunum um stjórn makríl-
veiðanna. „Við erum reiðubúin til að
vinna að lausn málsins ásamt Noregi
og ESB og gerum ráð fyrir að aðilar
fundi fljótlega eftir sumarfrí,“
segir
Tóm-
as.
Löglegt löndunarbann
Norðmenn mega heldur ekki landa makríl á Íslandi Ólíklegt að Noregur og
ESB setji allsherjarinnflutningsbann á íslenskar og færeyskar sjávarafurðir
Um 80 til 90 prósent allra erlendra ferðamanna sem koma til landsins
fara um uppsveitir Árnessýslu. Þar hefur sprottið upp umfangsmikil
ferðaþjónusta sem nú er orðin helsta atvinnugrein sýslunnar, að
sögn Ásborgar Arnþórsdóttur, ferðamálafulltrúa uppsveita Ár-
nessýslu.
Hún segir að mikil uppbygging og fjölbreytileiki einkenni
þessa ört vaxandi atvinnugrein. Auk mikils fjölda erlendra
ferðamanna eru þar einnig um 5.000 sumarbústaðir en
miklu færri íbúar í strjálbýli í sýslunni. Allt skapar þetta
fjölda atvinnumöguleika í ferðaþjónustu að sögn Ás-
borgar. Hún lýsir svæðinu sem „vaxandi og lifandi“ og
þar sé næga afþreyingu að finna og enginn þurfi að láta
sér leiðast.
Uppbygging og fjölbreytileiki
LEIÐIR LIGGJA UM BLÁSKÓGABYGGÐ
Vegirnir voru það
versta í ferðalaginu
Rigning, einstakt landslag, friðsæld og brennivín
Umrætt löndunarbann í Noregi
á makríl úr íslenskri eða fær-
eyskri lögsögu er ekki nýtt.
Norska sjávarútvegsráðu-
neytið sendi út tilkynningu til
að minna á bannið á mánudag-
inn. Tómas H. Heiðar segir
áminningu Norðmanna
frekar beint að Fær-
eyingum. Þeir hafi leyft
skipum frá Perú að
veiða makríl í sinni lög-
sögu. Þau skip geti því ekki
landað aflanum í Noregi.
Áminning
til Færeyja
TILKYNNING NORÐMANNA
www.noatun.is
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
eða í næstu Nóatúns verslun
Grillveislur
1299
Á MANN
VERÐ FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTI
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafille
Þín samsetning
Grillveislur Nóatúns
Tómas H.
Heiðar
Allir forstöðumenn
heilsdagsskóla og fé-
lagsmiðstöðva í
Hafnarfirði fengu
uppsagnarbréf um
nýliðin mánaðamót
en til stendur að
íþrótta- og tóm-
stundaráð Hafnarfjarðar, ÍTH, taki
yfir rekstur þeirra.
Hingað til hafa heilsdagsskólar og
félagsmiðstöðvar verið reknar af
skólunum og verið á ábyrgð viðkom-
andi skólastjóra. Nú á að sameina
heilsdagsskólana og félagsmiðstöðv-
arnar í hverjum skóla fyrir sig undir
einum forstöðumanni.
„Starfið mitt var lagt niður og ég
fékk tilboð um starfslok,“ segir fyrr-
um forstöðukona heilsdagsskóla í
Hafnarfirði. „En mér skilst að al-
mennum starfsmönnum hafi verið
boðið áframhaldandi starf hjá ÍTH.“
Starfsfólk grunnskóla bæjarins
mætir til starfa 16. ágúst, eftir tvær
vikur. „Þetta er stuttur fyrirvari og
það hefur enginn talað við okkur um
þetta,“ segir forstöðukonan.
Forstöðumönnum heilsdagsskóla
og félagsmiðstöðva sagt upp
Ole frá Noregi og
Joakim frá Svíþjóð