Morgunblaðið - 03.08.2011, Síða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Amma mín var kjólasauma-kona og systir hennarlíka, mamma mín saumaðiöll föt á okkur systkinin
þegar við vorum lítil og ég saumaði
flíkur á sjálfa mig þegar ég var í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Það má því segja að það að hanna
og búa til föt sé bæði í blóðinu og
mínu umhverfi í uppeldinu,“ segir
Ingibjörg Huld Halldórsdóttir arki-
tekt sem býr í Danmörku en hún
kom nýlega með á markað hér á Ís-
landi handprjónaðar ullar-
barnapeysur og ungbarnateppi und-
ir merkinu Kattomenium.
„Ég á tvo litla stráka og þegar
ég var í barneignarfríi með þann
yngri, sem nú er eins og hálfs árs,
leiddist mér svolítið og mig langaði
að búa eitthvað til. Þannig fór þetta
allt saman af stað. Mig hafði lengi
langað til að prófa að gera eitthvað
með textíl og hönnun og ég notaði
kvöldin til að sinna því. Mig langaði
til að sjá hvort ég gæti þetta og
hvort það væri hægt að gera eitt-
hvað öðruvísi með hönnun íslensku
lopapeysunnar. Lopapeysur eru svo
praktískar, þær endast lengi og það
er hægt að nota þær áfram á barnið
þótt það stækki. Lopapeysuformið
er líka svo einfalt og því auðvelt að
klæða börn úr þeim og í,“ segir
Ingibjörg sem er hrifin af mynd-
prjóni því sem lopapeysur eru
prjónaðar eftir. „Myndprjón er frá-
Nútímalegar og
litríkar lopapeysur
Hún bjó sjálf til sínar flíkur þegar hún var í menntaskóla en nú hannar hún
barnapeysur úr íslenskri ull. Hún vill ekki láta framleiða sína vöru í Asíu, heldur
nýta íslenskt vinnuafl og tryggja þannig gott atvinnuumhverfi. Ingibjörg Hulda er
konan á bak við Kattomenium.
Ingibjörg Huld Halldórsdóttir
Grænir litir
Fara vel við
rauða hárið.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011
Jeff Dunham er amerískur uppistand-
ari og búktalari. Hann er mjög vinsæll
enda bráðfyndinn og sniðugur.
Heimasíðu Dunhams má finna á slóð-
inni Jeffdunham.com og þar má sjá
og heyra ýmislegt til að kitla hlát-
urtaugarnar.
Búktalarabrúður Dunhams eru all-
ar eftirminnilegir „persónuleikar“,
með undarlegar skoðanir, skapfúlar
og móðgandi. Frægastur er líklega
Achmed the Dead Terrorist eða eins
og hann myndi nefnast upp á ís-
lensku; Achmed, látni hryðjuverka-
maðurinn. Einnig eru Peanut, Bubba
J, José Jalapeno og Walter. Walter er
gamall fúll karl sem segir það sem
honum sýnist því honum er alveg
sama.
Á Jeffdunham.com má fræðast
nánar um þessar persónur hans Dun-
hams. Þar má sjá myndbönd og
myndir, lesa sér til um brúðurnar og
Dunham sjálfan, hlaða niður myndum
og hringitónum og sjá framboðið í
netversluninni.
Dunham, ásamt búktalarabrúð-
unum sínum, er kaldhæðinn og stór-
skemmtilegur. Hann er tilvalinn fyrir
þá sem finnst gaman að grenja úr
hlátri.
Vefsíðan www.jeffdunham.com
Fyndinn Jeff Dunham með félaga
sinn, Achmed the Dead Terrorist.
Búktalari og
uppistandari
Íhaust flytur Bjarni Hjartarsontil Tórínó á Ítalíu til að lærabílahönnun en hann hlaut ný-
verið inngöngu í alþjóðlega hönn-
unarskólann Istituto Europeo di De-
sign (IED). „Þetta var dálítið ferli, ég
þurfti að taka saman „portfolio“,
sækja um og fara í viðtal í gegnum
Skype en þetta gekk hratt fyrir sig
eftir að ég byrjaði að sækja um,“ seg-
ir Bjarni. Brautin sem hann fer á
kallast hönnun samgöngutækja en
hún skiptist í tvennt, annars vegar
bílahönnun og hins vegar hönnun
hjóla, snekkja og lesta. Bjarni, sem
var einn 24 sem komust inn í námið,
segir einn annan Íslending hefja nám
við skólann í haust en sá stefni á
snekkjuhönnun.
Ítalía mekka bílahönnunar
„Ég er búinn að vera með bíladellu
bókstaflega síðan ég man eftir mér,“
segir Bjarni en hann keyrir nú um á
BMW sem hann segir einn af bestu
akstursbílunum. Spurður hví hann
hafi valið bílahönnun fram yfir aðrar
atvinnugreinar sem tengjast bílum
svarar hann: „Bæði hef ég meiri
áhuga á hönnuninni sjálfri á bílunum
en verkfræðilega hlutanum, svo lang-
aði mig að gera eitthvað meira og
stærra en þetta hefðbundna.“
Hann segir IED vera með betri
skólum í heiminum sem kenni bíla-
Á leið til Ítalíu í bílahönnun
Með bíladellu Bjarni Hjartarson keyrir nú um á BMW sem hann segir einn
af bestu akstursbílunum. Hann er spenntur fyrir námi í bílahönnun.
Bjarni Hjartarson hefur
verið með bíladellu síðan
hann man eftir sér. Það er
því viðeigandi að hann
haldi til Ítalíu í haust í
nám í bílahönnun.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Það er eins og lögmál hjá sumum
að um leið og verslunarmanna-
helginni lýkur sé kominn tími til
að leggjast í híði aftur. Að með
komu myrkursins sé í lagi að ger-
ast sófakartafla, láta verkefnin
sitja á hakanum og fara að kúra
og éta sælgæti fyrir framan sjón-
varpið eins og um hávetur sé að
ræða.
Það er enn sumar, þótt það rigni
er mjög hlýtt og gott veður fyrir
utan útidyrahurðina. Endilega ekki
láta letina ná tökum á þér þrátt
fyrir smávætu og náttmyrkur. Ekki
leggjast í sófann þegar heim er
komið, reimið frekar á ykkur
íþróttaskóna og farið í göngutúr,
brjótið saman þvottastaflann, hitt-
ið vini eða takið til. Bara í guð-
anna bænum ekki leggjast í sóf-
ann langt fyrir árstíð fram.
Endilega …
… ekki
leggjast í leti
Morgunblaðið/Eggert
Blaut tíð Rigning þarf ekki að vera ávís-
un að letilífi eins og sumir halda.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða tvær frábærar ferðir fyrir eldri bor-
gara í haust til Kanaríeyja. Við bjóðum fjölbreytt úrval
gististaða. Haustið er svo sannarlega frábær tími á
þessum einstaka áfangastað. Mikil dagskrá í boði í
fylgd reyndra fararstjóra.
21. október í 25 nætur
og 31. október í 29 nætur
Verð frá 149.900
Haustferðir
fyrir eldri borgara
til Kanarí
Verð kr. 149.900
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó á Parquemar.
Innifalið flug, gisting í 25 næstur og skattar.
Sértilboð 21. okt. Aukalega kr. 21.300 á mann þann 31. október.