Morgunblaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011
Helgina 6. til 7. ágúst standa Skák-
akademía Reykjavíkur og Skák-
samband Íslands fyrir maraþonskák
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar munu
mörg efnilegustu börn og unglingar
landsins tefla við gesti og gangandi.
Mótherjar krakkanna borga upp-
hæð að eigin vali, sem rennur beint í
söfnun Rauða kross Íslands vegna
hungursneyðarinnar í Sómalíu.
Kjörorð Skákhreyfingarinnar er
„Við erum ein fjölskylda“ og með
skákmaraþoninu í Ráðhúsinu vilja
ungir liðsmenn skákgyðjunnar á Ís-
landi sýna börnum í Sómalíu stuðn-
ing í verki, segir í tilkynningu.
Rauði krossinn dreifir matvælum
daglega til þúsunda fjölskyldna í
Mið- og Suður-Sómalíu, þvert á
átakalínur meðan stríð geisar þar.
Þá njóta um 5.500 börn umönnunar í
40 næringarmiðstöðvum Rauða
krossins og Rauða hálfmánans víðs-
vegar um landið. Rauði krossinn
rekur einnig um 20 heilsugæslu-
stöðvar um allt land og vinnur að
vatnsveituverkefnum á þurrkasvæð-
unum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rauða krossinum verður allt fram-
lag söfnunarinnar notað til að kaupa
vítamínbætt hnetusmjör, sem er
notað til að hjúkra alvarlega van-
nærðum börnum til heilbrigðis í
Sómalíu.
Taflmaraþonið í Ráðhúsinu hefst
klukkan 10 laugardaginn 6. ágúst og
stendur til klukkan 18. Það heldur
áfram á sunnudag, á sama tíma, og
er það „einlæg von íslensku skák-
krakkanna að sem allra flestir leggi
leið sína á maraþonið. Margt smátt
gerir eitt stórt – og það þarf ekki
mikla peninga til að bjarga einu
mannslífi“, segir í tilkynningu.
Íslensk skák-
börn safna fyrir
börn í Sómalíu
Reuters
Hjálp Sómölsk börn eru mörg van-
nærð vegna mikilla þurrka.
Maraþonskák í Ráðhúsinu undir
slagorðinu „Við erum ein fjölskylda“
Börn í Sómalíu
» Rauði krossinn dreifir mat-
vælum daglega til þúsunda fjöl-
skyldna í Mið- og Suður-
Sómalíu.
» Um 5.500 börn njóta umönn-
unar í 40 næringarmiðstöðvum
víðsvegar um landið.
» Rauði krossinn rekur einnig
um 20 heilsugæslustöðvar um
allt land og vinnur að vatns-
veituverkefnum á þurrkasvæð-
unum.
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Skólinn fjármagnar sig með tvennu
móti, skólagjöldum og framlögum
opinberra aðila. Skólagjöldin eru há
eða 600 þúsund á önn og hafa verið
þau sömu síðastliðin átta ár. Við lít-
um á að þau séu á sársaukamörkum
og getum ekki hækkað þau,“ segir
Hilmar Oddson, rektor Kvikmynda-
skóla Íslands.
Rekstur skólans er í óvissu. Skól-
inn vill fá meira fjármagn frá ríkinu
en samkomulag hefur ekki náðst.
Hilmar segir að framlag ríkisins
hafi á síðasta ári verið 39 milljónir og
þegar skólagjöld og framlag komi
saman þá dugi það ekki til. Segir
hann að það sé bara tvennt sem komi
til greina, að hækka skólagjöld eða
að framlög ríkisins verði hækkuð.
„Við getum ekki hækkað skólagjöld-
in þannig að hækka verður framlög
ríkisins.“
Ekki mögulegt að skera niður
Hilmar segir að mjög flókið sé að
skera niður kennslu við skólann.
„Fyrirkomulagið sem við höfum
núna teljum við farsælast, fjárhags-
lega og menntunarlega.“ Gífurleg
uppsveifla hefur verið í skólanum á
síðustu árum.
Árið 2007 veitti menntamálaráðu-
neytið skólanum viðurkenningu til að
bæta tveimur námsbrautum við skól-
ann en í þeirri viðurkenningu felst
ekki ábyrgð ríkisins á fjárhag skól-
ans.
„Þegar námsbrautunum var bætt
við árið 2007 höfðu menn von um að
framlög yrðu hækkuð í samræmi við
stækkunina. En svo kom kreppan. Í
raun og veru þurfum við 140 milljóna
árleg framlög en við vissum að það
myndi ekki nást þannig að við lækk-
uðum óskir okkar um helming. Við
metum að það sé lægsta upphæðin
sem nægir til að reka skólann,“ segir
Hilmar. Ekki sé mögulegt að breyta
námskránni á miðri leið, slíkar breyt-
ingar taki tíma. Námskráin sé sátt-
máli skólans við nemendur. „Þegar
nemandi skráir sig í nám er hann að
kaupa ákveðið nám og þá getum við
ekki allt í einu skorið námið niður um
helming, slíkar breytingar taka
tíma,“ segir Hilmar. „Okkur finnst
við ekki hafa mætt þeim skilningi
sem við teljum okkur eiga skilið,“
segir Hilmar.
Hagkvæmt fyrir Íslendinga
Nú í vetur fékk skólinn inngöngu í
alþjóðasamtök kvikmyndaskóla CI-
LECT eftir að Nick Powel, heims-
þekktur kvikmyndaframleiðandi,
gerði úttekt á skólanum. Hilmar segir
nemendur skólans áberandi í íslensk-
um kvikmyndaiðnaði og þeir stuðli að
þenslu og vexti í myndmiðlaiðnaðin-
um sem sé atvinnugrein með mikla
vaxtarmöguleika. Tuttugu nýútskrif-
aðir nemendur hafi fengið vinnu við
mynd breska leikstjórans Ridley
Scott og gefi það vísbendingu um
gæði skólans.
„Það eru á annað hundrað manns
sem árlega vilja fara í leiklistarnám
og helmingur af þeim lætur verða af
því og fer í dýrt nám erlendis og tek-
ur námslán. Aukin námslán leiða
til þess að heildarskuldir rík-
isins aukast. Við teljum hag-
kvæmt fyrir íslenskt sam-
félag að sem flestir
nemendur læri á Íslandi.“
Færu annars í dýrt nám erlendis
Geta ekki hækkað skólagjöldin sem eru 600.000 á önn Hagkvæmt að nemendur læri á Íslandi
Skólinn fékk inngöngu í virt alþjóðasamtök kvikmyndaskóla Iðnaður með mikla vaxtamöguleika
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nám Kvikmyndaskóli Íslands hefur fengið inngöngu í hin virtu alþjóðasamtök kvikmyndaskóla CILECT.
„Ráðuneytið hefur verið í sam-
skiptum við skólann frá áramót-
um um lausn á fjárhagsvanda
skólans og lagt mikið upp úr því
að skólinn finni lausn á honum.
Rætt hefur verið um samning
um styrk frá ríkinu og mögulega
hækkun á honum.
Um miðjan júní lagði ráðu-
neytið fram tillögu um að
hækka framlög um 44% sem
þýðir hækkun frá 36 milljónum í
rúmar 56 milljónir. Skólinn taldi
sig ekki geta gert samning á
þeim grunni. Síðan hafa átt sér
stað viðræður á milli skólans og
ráðuneytisins til að finna lausn
á málinu. Ráðuneytið hefur
lagt sig fram við að finna
lausn á málinu og beðið
er eftir gögnum um
hvernig skólinn
hyggst tryggja rekstur
sinn út skólaárið,“ seg-
ir Elías Jón Guðjónsson
aðstoðarmaður
mennta- og
menningar-
málaráð-
herra.
Bauð 44%
hækkun
TILLAGA FRÁ RÍKINU
Elías Jón
Guðjónsson
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
sími 540 3200 · www.mp.is
Við leggjum áherslu á persónulega
þjónustu fyrir fólk og fyrirtæki og skjóta
afgreiðslu mála í síma- og þjónustuveri.
Þannig á banki að vera og þess vegna
eru meira en 90% viðskiptavina ánægð
með þjónustuna hjá okkur.
Við tökum vel á móti þér!
Debetkort
Launareikningar
Sparnaðarreikningar
Kreditkort
Netbanki
Erlend viðskipti
Útlán
Það er auðvelt að skipta
um banka. En það er
mikilvægt að vanda valið!
Bárður Helgason, viðskiptastjóri
F
í
t
o
n
/
S
Í
A