Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 15

Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur sýnt að hann svífst einskis til að halda völdunum og íbúar Hama, fjórðu stærstu borgar landsins, hafa fengið að kenna á óbilgirni hans og grimmd á síðustu vikum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íbúar Hama verða fyrir barðinu á leiðtogum Baath-flokksins sem hefur verið einráður í Sýrlandi frá valdaráni hans árið 1963. Áætlað er að 10.000- 30.000 manns hafi beðið bana í Hama árið 1982 þegar Hafez al-Assad, faðir núverandi forseta, barði niður upp- reisn í borginni. Íslamistar í Hama og fleiri borgum í norðvestanverðu landinu höfðu þá risið upp gegn Baath-flokknum. Bræðralag múslíma hóf vopnaða bar- áttu gegn Baath á áttunda áratugn- um, gerði mannskæðar árásir á félaga í flokknum og reyndi að ráða Hafez al-Assad af dögum. Leiðtogar Baath-flokksins svöruðu ofbeldinu með grimmilegum árásum á Hama í febrúar 1982. Herflugvélar vörpuðu sprengjum á vegi út úr borg- inni og komu þannig í veg fyrir að íbú- arnir gætu forðað sér. Skriðdrekum og stórskotavopnum var beitt í sprengjuárásum á Hama og borgin var að mestu jöfnuð við jörðu. Her- menn gengu um götur borgarinnar og myrtu karlmenn og allt niður í fimm- tán ára gamla drengi. Konum var nauðgað og hermt er að fólk hafi solt- ið til bana vegna matarskorts í borg- inni. Yfir 12.000 í fangelsi Hermönnum hefur nú aftur verið sigað á andstæðinga Baath í Hama og fleiri borgum. Talið er að minnst 1.600 óbreyttir borgarar hafi beðið bana í árásum hersveita frá miðjum mars- mánuði þegar fjöldamótmæli hófust gegn einræðisstjórn Baath-flokksins. Um 3.000 manns er saknað. Mannréttindasamtök Sýrlands segja að 26.000 Sýrlendingar hafi ver- ið handteknir frá því að mótmælin hófust og margir þeirra hafi sætt pyntingum. Um 12.600 þeirra séu enn í fangelsi. „Sýrland er orðið að stóru fangelsi,“ sagði Ammar Qurabi, for- maður samtakanna. Sýrlenska stjórnarandstaðan er sundurleit, sumir hópanna krefjast þess að Assad segi af sér en aðrir vona enn að hann komi á lýðræðisleg- um umbótum. „Sýrland orðið að stóru fangelsi“  Hama-borg verður enn fyrir barðinu á óbilgirni og grimmd leiðtoga Baath 100 km MANNSKÆÐAR ÁRÁSIR NÝLEGIR ATBURÐIR 1. júlí Hersveitir verða 24 að bana í Homs og Idlib 2. júlí Assad víkur héraðsstjóra Hama úr embætti 3. júlí Skriðdrekasveitir umkringja Hama 8. júlí Þúsundir manna mótmæla í Hama og krefjast afsagnar Assads 11. júlí Verðir hleypa af byssum til að koma í veg fyrir að hópur manna geti ráðist inn í franska sendiráðið í Damaskus 15. júlí Hermenn verða a.m.k. 32 óbreyttum borgurum að bana 16.-17. júlí Um 30 manns létu lífið í átökum í Homs 29. júlí Átök milli hermanna og íbúa Deir al-Zor 31. júlí Skriðdrekasveitir ráðast inn í Hama Damaskus S Ý R L A N DHoms JÓRDANÍA ÍRAK TYRKLAND LÍBANON Deir al-Zor Laugard. Skriðdrekar og herþyrlur gerðu árásir annan daginn í röð Hama Sunnudag Tugir manna liggja í valnum eftir árásir skriðdrekasveita Staðir þar sem komið hefur til mótmæla 26 ára breskur grínisti, Jonathan May-Bowles, var í gær dæmdur í sex vikna fangelsi fyrir að ráðast á Rupert Murdoch 19. júlí þegar bresk þingnefnd yfirheyrði fjöl- miðlajöfurinn um símhleranir æsi- fréttablaðsins News of The World. May-Bowles, sem kallar sig „Johnnie Marbles“, kastaði raksápu á pappadiski að fjölmiðlajöfrinum um það bil tveimur klukkustundum eftir að yfirheyrslurnar hófust. Wendi Deng, eiginkona Murdoch, stökk á fætur manni sínum til varn- ar og sló til árásarmannsins. Enn ein handtakan Breskir fjölmiðlar sögðu í gær að lögreglan í London hefði handtekið Stuart Kuttner, sem var fram- kvæmdastjóri News of the World þar til hann sagði af sér í júlí 2009. Lögreglan hefur nú handtekið ellefu menn í tengslum við rann- sókn á stórfelldum símhlerunum og innbrotum í talhólf á vegum blaðs- ins. Á meðal þeirra eru tveir fyrr- verandi ritstjórar News of the World, Andy Coulson og Rebekah Brooks. Málið hefur skaðað fjöl- miðlaveldi Murdoch, News Corp., meðal annars orðið til þess að það hefur hætt við að kaupa meirihluta í sjónvarpsrisanum BSkyB. bogi@mbl.is Reuters Marbles Jonathan May-Bowles við dómhús í London í gær. Raksápu- maðurinn í fangelsi Ellefta handtakan vegna hleranamálsins Að minnsta kosti 70 manns hafa látið lífið af völdum óveðurs á Filippseyjum síðustu daga. Flestir skólar í Manila og nágrenni voru lokaðir í gær vegna úrhellis og flóða sem fylgdu fellibyln- um Muifa. Piltur sést hér synda á götu í einu út- hverfa höfuðborgarinnar. Að meðaltali valda um 20 fellibyljir eða storm- ar usla á Filippseyjum á ári hverju. Muifa var ell- efti fellibylurinn eða fárviðrið í ár. Reuters Fellibylur og aftakaflóð valda usla Verjandi mannsins, sem hefur játað á sig fjöldamorðin í Nor- egi 22. júlí, segir að fjölda- morðinginn hafi lagt fram kröfur sem séu „óraunhæfar og langt, langt frá raunveru- leikanum“. Verjandinn segir að fjölda- morðinginn hafi neitað að svara spurningum lögreglunn- ar um hvort aðrir hafi átt aðild að árásunum og sett það sem skilyrði að norsk yfirvöld verði fyrst við kröfum hans. Fjöldamorðinginn hafi meðal annars krafist þess að ríkisstjórn Noregs segi af sér og komið verði á nýju þjóðfélagskerfi þar sem hann sitji sjálfur í öndvegi. „Kröfurnar eru þess eðlis að það er algerlega ógerningur að verða við þeim,“ sagði verjandinn. „Hann veit ekki hvernig samfélagið virkar.“ Vill rannsókn japanskra geðlækna Dómstóll hefur falið tveimur geðlæknum að meta andlegt heilbrigði fjöldamorðingjans og leggja fram niðurstöður sínar ekki síðar en 1. nóv- ember. Verjandinn segir að skjólstæðingur sinn vilji einnig gangast undir rannsókn japanskra geðlækna vegna þess að hann telji „Japani skilja gildi sæmdarinnar“ og skilja því betur hugsanir hans en evrópskir geðlæknar. bogi@mbl.is Fjöldamorðinginn leggur fram óraunhæfar kröfur  Krefst þess að norska stjórnin segi af sér og komið verði á nýju þjóðfélagskerfi Tölvuleikir teknir úr sölu » Tveir tölvuleikir, sem voru í miklu dálæti hjá norska fjöldamorðingjanum, hafa verið teknir úr sölu í fjölmörgum verslunum í Nor- egi. » Fjöldamorðinginn sagði í stefnuyfirlýsingu sinni á netinu að hann væri aðdáandi leikj- anna „World of Warcraft“ og „Call of Duty – Modern Warfare“ og að hann hefði leikið þá á meðan hann undirbjó ódæðisverkin. Sorg Eitt fórnar- lambanna jarðað. 1.600 liggja í valnum eftir árásir sýrlenskra hersveita síðustu vikur. 3.000 Sýrlendinga er saknað. 26.000 manns hafa verið handtekin, að sögn mannréttindasamtaka. 140 manns létu lífið í árásum á sunnudag, þar af yfir 100 í Hama, og 24 í fyrradag. ‹ BLÓÐSÚTHELLINGAR › »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.