Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 24

Morgunblaðið - 03.08.2011, Page 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GRETTIR, HVERJU HEF ÉG EIGINLEGA ÁORKAÐ Í LÍFINU? ÞÚ ÁTT MIG! ÍMYNDAÐU ÞÉR AÐ EFTIR 12 ÁR VERÐUR EINHVER STELPA GIFT KALLA ÞAÐ VERÐUR ERFITT AÐ BJARGA HENNI, ÞAR SEM VIÐ VITUM EKKI HVAÐ HÚN HEITIR EÐA HVAR HÚN BÝR *AND- VARP* VIÐ ÞYRFTUM AÐ FINNA UPP EINHVERSKONAR KERFI VIÐ GETUM KALLAÐ ÞAÐ „BRÚÐAR VÖRNINA” HJÁLP! HÆTTU AÐ KVARTA... MUNDU BARA MÁLS- HÁTTINN... „HJÁLPAÐU KONUNNI ÞINNI AÐ VERSLA OG ÞÚ MUNT EIGA FARSÆLT HJÓNABAND” ÉG GET EKKI SAGT AÐ ÉG MUNI EFTIR ÞESSUM MÁLSHÆTTI MÓTMÆLIN OKKAR ERU AÐ BERA ÁRANGUR KÆRU FORELDRAR, HÉÐAN Í FRÁ ÞÁ VERÐUR HOLLUR MATUR NÚMER EITT, TVÖ OG ÞRJÚ FRÁ OG MEÐ ÞESSARI VIKU VERÐUR EKKERT RUSLFÆÐI Í MATINN OG VIÐ ÆTLUM AÐ OPNA SALATBAR MUNIÐ BARA AÐ ÞAÐ VAR ÉG SEM ÁTTI HUGMYNDINA STJÓRN- MÁLAMENN! AF HVERJU VILTU DREPA BRÓÐUR ÞINN? ER ÞAÐ EKKI FULL LANGT GENGIÐ Í SYSTKINAERJUNUM? SEGÐU MÉR HVAR HANN ER! HANN GEFST SVO SANNARLEGA EKKI UPP HOLLAN MAT! HOLLAN MAT! KOMIÐ ÞIÐ SÆL, ÉG ER MENNTAMÁLA- RÁÐHERRANN ÞETTA ER MITT MÁL! ÍS Hver fann Ísland? Nýlega var viðtal við ungan Íslending í Rík- issjónvarpinu þar sem hann lauk máli sínu með því að segja: „Þegar Ingólfur fann Ísland“. Fyrir rúm- lega hálfri öld lærði ég í skóla að áður en Ing- ólfur kom til Íslands hefðu nokkrir aðrir komið á undan honum. Nefna má t.d. Svíann Garðar Svavarsson og Náttfara, sem kom með honum. Garðar var þó ekki lengi á landinu, en sigldi umhverfis það og sá að það var eyja og kallaði það því Garðarshólma. Líka má nefna Flóka Vilgerðarson, sem bjó á Barðaströnd, og gaf landinu nafnið Ísland. Hins vegar er talið víst að Ingólfur hafi verið sá fyrsti, sem endanlega settist að á Íslandi. En svo er það allt annað mál hver það var, sem fann Ís- land! Stundum er tilnefndur Pýþeas nokkur, sem er talinn hafa fundið Ís- land um 300 f.Kr., en það er ekki al- veg víst, enda ósennilegt að hann hafi stigið eigin fótum á sjálft landið held- ur bara séð það aðeins úr fjarska. En það var nóg til þess að einhverjir áhugasamir (forvitnir) gátu farið að skoða þetta ókunna land. Einnig hef ég heyrt Íslendinga, sem jafnvel eru komnir á þrítugs- aldur, segja að Jón Sigurðsson hafi verið fyrsti forseti Íslands. Einnig að Jóhanna Sigurðardóttir sé forseta- ráðherra. Þekkir unga kynslóðin á Ís- landi virkilega ekki sögu Íslands bet- ur en þetta? Látum nú vera þó að útlendingar haldi að Kristófer Kól- umbus hafi fundið Ameríku, en þegar nokkrir Íslendingar halda líka að svo hafi verið … er það þá ekki heldur langt gengið? Nýlega spurði ég tvítugan íslensk- an pilt, sem ætlaði kannski á þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum, hvort hann vissi hvers vegna útihátíðin þar er kölluð „þjóðhátíð“. Nei, ekki vissi hann það, en hélt að það væri bara af því að hún væri svo skemmti- leg. Fyrir langalöngu lærði ég hins vegar í skóla að þegar komið var fram undir miðja 19. öld hefðu margir fræðimenn hér á landi talið að tími væri kom- inn til að halda upp á 1000 ára afmæli land- námsins. Eitthvað vafðist þetta þó fyrir bæði sagnfræðingum og fornleifafræðingum á Íslandi, sem töldu að ekki væru nægjanlegar sannanir (t.d. fornleifar) fyrir ná- kvæmu ártali. Þeir þorðu sennilega ekki að nota frásögn írska munksins Diculiusar frá því um 825 e.Kr. um að hér hafi verið írskir munkar, sem bjuggu hér í friði og spekt. Sennilega hafa þeir þó allavega ekki fjölgað hér íbúum. En Írar höfðu þá ritmál, sem norrænar þjóðir höfðu ekki. Sumir telja að þeir hafi farið af landi brott þegar norrænir menn fór að nema hér land. Auk þess höfðu sumir nor- rænu landmemanna viðkomu á Ír- landi og tóku með sér írskar konur til Íslands. Þannig urðu til hér ýmis keltnesk orð eins og kría, krummi, strákur og stelpa. Einnig örnefni eins og Papey, og fjallanöfn s.s. Esja, Hekla og Katla. Endanlega var samt ákveðið að halda þjóðhátíð á Þingvöllum árið 1874 í tilefni 1000 ára landnáms Ís- lands. Ég lærði svo líka að vegna óveðurs hefðu Vestmannaeyingar ekki komist til meginlandsins til að taka þátt í þjóðhátíðinni þar og þess vegna ákveðið að halda eigin þjóðhá- tið heima hjá sér í Vestmannaeyjum. Landnámssýningin við Aðalstræti í Reykjavík miðar við árin 871 plús/ mínus 2. Fróðleiksfús Íslendingur. Ást er… … þegar hver einasta sekúnda skiptir máli. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist í Félagsheimilinu Gjábakka í dag kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Næstu ferðir FEB í ágúst veða farnar: 10. ág. kringum Snæfellsnes. 19. ág. Fljóts- hlíð, Fjallabak syðra, Skaftártunga. 15.- 18. ág. Kjölur, Eyjafjörður, Fjallabyggð. – 20.-23. ág. Sprengisandur, Hvannalindir, Kverkfjöll. Skrifstofa FEB opnuð 8. ág. eftir sumarleyfi. Uppl. og bókanir hjá Val- garði í síma 897-7550. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin, hádegisverður, fé- lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd- list kl. 9, ganga kl. 10, handavinnustofan opin, kvennabrids kl. 13. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í Króknum kl. 10.30. Opin handavinnustofa án leiðbeinanda. Opinn púttvöllur. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Hraunbær 105 | Kaffi og blöð liggja frammi, púttvöllur opinn alla daga. Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böð- un fyrir hádegi, hádegisverður, létt sum- arganga kl. 14, miðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 | Opnum í dag eftir sumarlokun. Panta þarf hádegisverð fyr- ir kl. 9.30. Við hringborðið kl. 8.50. Listasmiðjan og baðstofan til frjálsra af- nota fyrir einstaklinga og hópa. Hug- myndabankinn opinn fyrir vetrarstarfið. Síðdegiskaffi. Fundur í Æðsta ráði kl. 10 mánudaginn 8. ágúst. Uppl. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó á æfinga- svæðinu við Kópavogslæk kl. 13. Uppl. í síma 554-2780 og á www.glod.is. Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa- vinnustofan opin, morgunstund með Sigríði kl. 10, framhaldssaga kl. 12.30, dans kl. 14. Pétur Stefánsson fór út að ríðameð vinkonu sinni um daginn og komst þannig að orði: „Maður gleymdi öllum heimsins áhyggjum í þeirri sælu sem það veitti manni. Eyddist vandi og allt mitt böl er upp á gandinn skreið ég. Yfir sanda, urð og möl eins og fjandinn reið ég.“ Þetta hafa verið náðugir dagar í sumar hjá Pétri, eins og ráða má af þessari vísu: Senn er búið sumarleyfi, sáttur þaðan geng á braut. Lifði ég sem glaður greifi, grillaði, drakk og ástar naut. Friðrik Steingrímsson var skjót- ur til svars: Orlofs tíminn enda hlaut er því skaðinn bættur. Aftur Pétur ástarnaut er í fjósið mættur. Og það jafnast fáir á við Pétur í vísnagerðinni, eins og ráða má af þessari vísu: Á yrkingum er ekkert lát þó oft sé lítið næði. Samið hef ég sirka bát sextán þúsund kvæði. Davíð Hjálmar Haraldsson kast- ar fram limru: Ámundi, ólærður smiður, einn uppi á þaki, vill niður með nagla og hamar því nota þarf kamar en neglir sig fastan, því miður. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af fríi og glöðum greifa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.