Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 2
Afar dræm þátttaka var í krónuút-
boði Seðlabankans í gær. Bankinn
bauðst til að kaupa 72 milljónir evra
á genginu 210 krónur, en aðeins bár-
ust tilboð fyrir 3,4 milljónir. Már
Guðmundsson seðlabankastjóri segir
að þátttakan í útboðinu hafi ekki
komið á óvart, vegna mikillar lækk-
unar á erlendri hlutabréfaeign aðila
eins og lífeyrissjóðanna. Þeir séu því
hugsanlega tregir til að selja þessar
eignir meðan þær eru nærri botn-
inum.
Helgi Magnússon, stjórnarfor-
maður Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, staðfestir þetta. „Einfaldlega
vegna þessarar miklu óvissu á er-
lendum mörkuðum höfum við aðeins
viljað sjá til.“ Arnar Sigurmundsson,
formaður Landssamtaka lífeyris-
sjóða tekur í sama streng. „Ég hygg
að lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar
hafi verið mjög hikandi við að selja
erlendar eignir eftir að þær hafa
lækkað, tímabundið, skulum við
vona.“ Lagist ástand markaða síðar
á árinu og bjóði Seðlabankinn áfram
svipuð kjör sé líklegt að lífeyrissjóðir
vilji taka meiri þátt. »14
Vildi kaupa 72 millj-
ónir evra en fékk
bara tilboð fyrir 3,4
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
,,Berjasprettan er mun seinna á
ferðinni en verið hefur síðustu ár,“
segir Sveinn Rúnar Hauksson,
læknir og berjasérfræðingur.
Hann telur að spretta í frægum
berjalöndum á Norður- og Austur-
landi verði ekki eins góð og und-
anfarin ár, en veður þar hefur ekki
verið eins og best verður á kosið
fyrir berin: svalt og beinlínis kalt.
,,Það er engan veginn hægt að
reikna með mikilli sprettu á þess-
um stöðum í ár, það er engu lagi
líkt hvernig veðrið hefur verið.
Bæði hvernig það var framan af
sumri og svo kuldar aftur núna.
Maður er jafnvel að heyra fréttir
af næturfrostum fyrir norðan og á
sama hátt hefur
veðrið verið
mjög leiðinlegt
fyrir austan.
Þetta dregur úr
sprettunni og
seinkar henni,
svo ég geri ráð
fyrir að hún
verði þremur
vikum á eftir því
sem við höfum
mátt venjast síðastliðin ár,“ segir
Sveinn. Hann segir þó að ekki sé
útilokað að finna góða staði til
berjatínslu á landinu, en Suð-
vesturland, Vesturland og Vest-
firðir gætu komið vel út.
,,Það er samt ekki útilokað að
finna berjalyng og finna staði víð-
ast hvar á landinu, sérstaklega ef
það fer ekki að frjósa snemma. Ef
það skyldi nú í staðinn haldast
frostlaust fram í miðjan sept-
ember, þá gæti víða verið eitthvað
af berjum. Ég held að sprettan
gæti orðið ágæt á Vesturlandi og
það gæti einnig ræst úr henni á
suðvesturhorninu og á Vestfjörð-
um,“ segir Sveinn og bætir við að
hann ætli að hefja sína berjatínslu
síðustu vikuna í ágúst.
,,Ég ætla sjálfur að fara í berja-
mó síðustu vikuna í þessum mán-
uði. Það getur vel verið að það sé í
það fyrsta og þá handtínir maður.
Þetta er nú bara eins og ég man
eftir þessu sem krakki, þá var
berjatímabilið ekki nema tvær vik-
ur: síðasta vikan í ágúst og fyrsta
vikan í september,“ segir Sveinn
að lokum.
Berjasprettan seinna á
ferðinni en verið hefur
Útlitið ekki gott á Norður- og Austurlandi
Sveinn Rúnar
Hauksson
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Fulltrúar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks í utanríkismála-
nefnd Alþingis vilja að opnir fundir
verði haldnir í nefndinni í hverjum
mánuði í vetur um framgang aðild-
arviðræðna við Evrópusambandið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
talaði fyrir tillögunni á fundi nefnd-
arinnar í gær, en Bjarni Benedikts-
son og Ólöf Nordal skrifuðu einnig
undir hana. Formaður nefndarinnar,
Árni Þór Sigurðsson, hyggst láta at-
huga hvernig hún samræmist lögum
um þingsköp. Ekki var annað að
heyra á þeim nefndarmönnum, sem
tal náðist af, en að tillögunni hefði
verið ágætlega tekið. Ekki náðist í
Árna Þór.
Sigmundur Davíð segir það sama
eiga við um Alþingi eins og almenn-
ing, að það fái litlar upplýsingar um
stöðu aðildarferlisins. Til dæmis séu
samningsmarkmiðin óþekkt. „Utan-
ríkisráðherra og aðrir sem halda ut-
an um þetta leyfa sér að hafa þetta
að býsna miklu leyti hjá sér og túlka
eftir þörfum. Þá er ég að vísa sér-
staklega til ummæla Össurar um að
Íslendingar þyrftu ekki sérstakar
undanþágur í sjávarútvegsmálum,“
segir Sigmundur Davíð.
Bjarni segir að sér sýnist ferlið
eiga eftir að tefjast talsvert, vegna
þess hvaða kafla eigi eftir að opna í
viðræðunum, þ.e. sjávarútvegs- og
landbúnaðarkaflana. „Það er mitt
mat að jafnvel þótt utanríkisráð-
herra hafi talað fyrir því að ljúka
málinu á næsta ári, þá stefni allt í að
það verði ófrágengið fyrir næstu
kosningar.“ Hann kveðst engin svör
fá, þegar hann spyr ítrekað að því
hvort ferlinu verði lokið og hægt að
halda þjóðaratkvæðagreiðslu á kjör-
tímabilinu. „Því hefur ekki verið
mótmælt þegar ég lýsi þeirri skoðun
minni að þetta stefni í að brenna inni
á tíma,“ segir Bjarni.
Einnig var á fundi nefndarinnar í
gær rætt um Pelly-áminningu
bandarískra stjórnvalda til íslenska
ríkisins vegna hvalveiða, sem endur-
nýjuð var í sumar. Kom þar fram að
málið væri enn í vinnslu í bandaríska
stjórnkerfinu og engin ákvörðun
hefði verið tekin þar um að fylgja
áminningunni eftir með aðgerðum.
Alþingi veit lítið um viðræðurnar
Framsóknar- og Sjálfstæðismenn í utanríkismálanefnd vilja opna fundi um ESB með Össuri í vetur
Stefnir í að aðildarferlið brenni inni á tíma með tilliti til þjóðaratkvæðagreiðslu á þessu kjörtímabili
Opin umræða
» Í tillögunni felst að Össur
Skarphéðinsson verði við-
staddur og til svara á fundum.
» Tillagan var ekki rædd sér-
staklega á fundinum í gær, en
verður rædd á morgun.
» Sigmundur segir þetta sam-
ræmast áliti meirihlutans um
opna umræðu um ESB-málið.
Meðlimum múslímasamfélagsins á Íslandi var
boðið til kvöldverðar í bandaríska sendiráðinu í
gærkvöldi í tilefni ramadan-mánaðar. Múslímar
fasta þann mánuð frá morgni til kvölds og var
sólseturs því beðið áður en matast var en það var
um kl. 21.41 í gærkvöldi.
Ramadan er heilagasti mánuður ársins hjá
múslímum og ein af fimm grunnstoðum ísl-
amstrúar.
Múslímar í matarboði í tilefni ramadan
Morgunblaðið/Kristinn
! " #
$ % %
&'"
( ( ) (
& *
"
$ + , - ./ 0 1"# , " "
(
0 ./ 2 ./ 0 3' ' 0 ,