Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011 Morgunblaðið/Ernir Markaðir Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir dræma þátttöku ekki hafa komið sér á óvart miðað við þróun markaða í mánuðinum. hætti, þ.e. með verðtryggðum, bundnum ríkisskuldabréfum. Geng- ið í því útboði var hið sama, 210 krónur á evru, en eftirspurnin mun meiri. Alls bárust tilboð fyrir 71,8 milljónir evra í júní og var tekið til- boðum fyrir 61,8 milljónir. Umfram- eftirspurnin, 10 milljónir evra, var hins vegar ekki til staðar í ágúst þegar samskonar útboð fór fram. Kemur ekki á óvart Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri segir í samtali við Morgun- blaðið að þátttakan í útboðinu hafi ekki komið á óvart. „Meginástæðan Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Afar dræm þátttaka var í krónuút- boði Seðlabankans í gær. Bankinn bauðst til að kaupa 72 milljónir evra á genginu 210 krónur, en aðeins bárust tilboð fyrir 3,4 milljónir. Greitt var fyrir gjaldeyrinn með verðtryggðum, bundnum ríkis- skuldabréfum. Er mikill munur á þessu útboði og sambærilegu útboði, sem fór fram 16. júní síðastliðinn. Þar bauðst Seðlabankinn til að kaupa evrur og skyldi greiða fyrir þær með sama er verðþróun á erlendum hluta- bréfamörkuðum. Þeir sem tekið hafa þátt í útboðum Seðlabankans, einkum lífeyrissjóðirnir, eiga tölu- vert af erlendum hlutabréfum. Þessar eignir lækkuðu umtalsvert í verði í ágúst og bíða þeir ef til vill eftir því að þær hækki að nýju áður en þeir selja þær og kaupa í staðinn þessi ríkisskuldabréf. Það sem þetta sýnir svo er það, sem við höfum áð- ur sagt, að afnám gjaldeyrishafta er háð ástandi á erlendum mörkuðum. Því betra sem það ástand er því hraðar er hægt að afnema höft,“ segir Már. Dræm þátttaka í krónuútboði Seðlabankans  Vildi kaupa 72 milljónir evra en fékk aðeins tilboð upp á 3,4 milljónir  Kemur ekki á óvart að sögn seðlabankastjóra Stuttar fréttir ... ● Greiningardeild Arion banka spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í ágúst. Gangi spáin eftir mun árs- verðbólgan mælast 5,2% en var 5% í júlí. Verðbólguna má að þessu sinni rekja til áhrifa vegna útsöluloka, en þau koma fram að hluta í ágúst og afgangurinn í september. Eldsneytisverð hefur áhrif til lækkunar, segir í verðbólguspánni. Gangi bráðabirgðaspá greiningardeildar eftir er útlit fyrir að 12 mánaða verðbólga verði rétt undir 6% í árslok. Spáir 0,4% hækkun ● ALMC hf. (áður Straumur- Burðarás fjárfest- ingarbanki) greiddi í gær Seðlabanka Íslands 46 milljóna evra afborgun af veðtryggðu láni, að því er segir í frétt á vef félagsins. End- urgreiðslan kemur í kjölfarið á sölu á fasteigninni sem hýsir verslunina Illum í Kaupmannahöfn. Sú sala markar loka- skrefið í söluferli eignar ALMC í versl- ununum Magasin og Illum, en eignin hafði verið veðsett Seðlabankanum. Hefur ALMC greitt Seðlabankanum alls um 450 milljónir evra, þar af um tvo þriðju hlutar í erlendri mynt, og hef- ur því greitt lán bankans að fullu. Hefur greitt Seðlabank- anum til baka Lán Búið er að greiða öll lánin. ● Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um 10,4 milljarða króna í júlímánuði, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Hagstof- unnar. Það er rúmum sex milljörðum meira en í sama mánuði 2010, þegar af- gangurinn var fjórir milljarðar króna. Það sem af er ári er jöfnuðurinn já- kvæður um 52,5 milljarða króna, borið saman við 70,4 milljarða á sama tíma árið áður, en hafa verður í huga að bráðabirgðatölur fyrir júlí eru inni í samtölunni fyrir þetta ár. Meiri afgangur í júlí en minni það sem af er ári Þeir Guðmundur og Birgir hafa um töluvert skeið verið félagar í viðskiptum og eiga enn saman fé- lagið BG Partners, sem keypti í apríl 2008 helmingshlut í fatahönn- unar- og framleiðslufyrirtækinu Metropol. Hjónin Guðmundur og Svanhild- ur unnu bæði hjá Straumi-Burðar- ási fjárfestingarbanka til ársins 2007. Guðmundur var fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bank- ans og Svanhildur framkvæmda- stjóri fjárstýringar. Birgir Bieltvedt selur allan hlut sinn í Skeljungi  Hjónin Guðmundur Þórðarson og Svanhildur Vigfúsdóttir eiga Skeljung að fullu Morgunblaðið/Frikki Skeljungur Hjónin Guðmundur Örn Þórðarson og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir eiga nú Skeljung að fullu, en þau sitja bæði í stjórn félagsins. Keyptu þau nýlega hluti Birgis Bieltvedts og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Hjónin Guðmundur Örn Þórðarson og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir eiga nú allt hlutafé í Skeljungi, en hjónin Eygló Björk Kjartansdóttir og Birgir Þór Bieltvedt seldu þeim allt sitt hlutafé fyrir skömmu. Kaupverð er trúnaðarmál. Bæði er um að ræða beint hlutafé í Skelj- ungi, sem og helmingshlut í Skel Investments, sem átti 51 prósent í Skeljungi. Birgir keypti í júlí Domino’s- pitsukeðjuna og voru viðskiptin með Skeljungsbréfin gerð á svip- uðum tíma. Aðalfundur er í Skelj- ungi á morgun, fimmtudag. Þau Guðmundur, Svanhildur, Birgir og Eygló keyptu 51 prósents hlut í Skeljungi af Íslandsbanka um mitt ár 2008. Skel Investments átti hlutaféð í Skeljungi, en það félag áttu þau Guðmundur og Svanhildur til helmings á móti Eygló. Birgir var ekki skráður fyrir hlut í félag- inu. Tveimur árum síðar keypti sami hópur þau 49 prósent sem eft- ir stóðu af hlutafé Skeljungs. Keyptu þau Guðmundur og Svan- hildur 36,5 prósent hlutafjárins og Eygló 12,5 prósent. Með kaupunum nú hafa Guð- mundur og Svanhildur eignast, sem áður segir, allt hlutafé í Skel In- vestments sem og allt beint hlutafé í Skeljungi. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæð- isflokks er óánægður með fjarveru Steingríms J. Sigfússonar á fundi viðskiptanefndar Alþingis á miðvikudag en umræðuefnið var málefni SpKef. Guðlaugur segir allt að 30 milljarða hafa tapast með óútskýrðum hætti meðan sjóðurinn var í um- sjón ráðherrans. Guðlaugur hefur gagnrýnt meðferð fjármála- ráðherra bæði á málum SpKef og Byrs. „Stein- grímur mætti ekki og gaf engar skýringar á fjar- veru sinni. Á fundinum komu m.a. fram álit lögfræðinganna Árnýjar Jónínu Guðmundsdóttur og Brynjars Níelssonar sem lýstu þeim sjónar- miðum að ekki hafi verið heimild fyrir því í lögum að stofna nýjan sparisjóð á grunni þess gamla eins og gert var.“ Athugasemdir Guðlaugs lúta m.a. að því að eignarhlutur ríkisins í SpKef var ekki færður und- ir stjórn Bankasýslu ríkisins eins og kveðið er á um í lögum og í eigendastefnu ríksins. „Banka- sýslunni er m.a. ætlað að halda eign ríkisins í fjár- málafyrirtækjum utan seilingar stjórnmálamanna en Steingrímur vildi halda SpKef og Byr í fanginu á sér. Í ársbyrjun 2009 var eigið fé bankans talið vera 5,4 milljarðar. Þá höfðu eignir verið metnar í samræmi við ábendingar FME eftir útlánaskoðun í mars 2009. Í dag eru að koma í ljós vankantar á eignamati SpKef, sem síðar var seldur Lands- bankanum miðað við 60 milljarða króna eign. Met- ur Landsbankinn nú að eignir SpKef séu um 20 milljörðum minni.“ Guðlaugur segir vinnubrögðin í kringum SpKef í sama dúr og aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málum fjármálakerfisins og gagnrýnir stjórnar- flokkana fyrir léleg vinnubrögð í endurreisn bank- anna ásamt skuldaleiðréttingu heimila og fyrir- tækja. „Þessi vinnubrögð koma beint niður á þjóðinni og í tilviki SpKef er óútskýrður bruninn á fjármunum sjóðsins á meðan sparisjóðurinn er á borði ráðherra.“ Álfheiður: heimildin skýr Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefnd- ar, gerir ekki athugasemd við fjarveru ráðherra á fundi gærdagsins, hún segir þingmenn hafa að- gang að ráðherrum í þingsal og málefni eins og það sem tekið var fyrir á fundinum í gær snúi að tæknilegum atriðum sem eðlilegt sé að sérfræð- ingar í ráðuneytunum svari fyrir frekar en ráð- herrann. „Ég tel að á fundinum hafi spurningum nefnd- arinnar verið vel svarað, þó það kunni að vera að Guðlaugur hafi ekki fengið þau svör sem hann vildi fá. Ég get ekki séð að það hafi verið mistök gerð þegar stjórnvöld tryggðu innistæður SpKef eins og innistæður í öðrum fjármálafyrirtækjum í landinu og tel að 1. gr. neyðarlaganna gefi ráð- herra skýra heimild til að grípa til þeirra aðgerða sem raun varð á.“ „Óútskýrður bruni á fjármunum“  Segir eignatap upp á 30 milljarða meðan SpKef var í umsjón fjármálaráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson Steingrímur J. Sigfússon Álfheiður Ingadóttir                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +./-0+ ++0-,, 1+-20/ 13-.3+ +4-/. +50-/, +-5.1 +.1-.2 +/,-04 ++5-+ +./-2/ ++0-/4 11-31 13-./1 +4-4,1 +5/-35 +-5./, +.,-5, +/5-3, 1+2-3,35 ++5-,4 +.4-5+ ++/-3+ 11-3.5 13-21, +4-4.5 +5/-50 +-523/ +.,-24 +/5-52 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.