Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þegar slík skekkja á milli framboðs
og eftirspurnar kemur fram á mark-
aði leiðir það til hækkandi leigu-
verðs. Það hefur aftur áhrif á verð-
bólguna. Leigan er hluti af kostnaði
heimila. Því er brýnt að koma með
úrræði fyrir fasteignamarkaðinn til
að draga úr spennu á markaðnum,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, spurður um
áhrif hækkandi leiguverðs á verð-
bólguþróun næstu mánuði.
„Undanfarin tvö ár hefur verið lít-
il sala á fasteignamarkaði en þeim
mun meiri umsvif á leigumarkaði. Á
sama tíma hefur verið mjög lítil að-
stoð í boði við leigumarkaðinn. Það
er auðvitað bagalegt.
Við hjá ASÍ höfum lengi barist
fyrir því að sameina húsaleigubætur
og vaxtabætur. Með því yrði hús-
næðisaðstoð hins opinbera óháð
eignaformi. Þetta teljum við að geti
skipti miklu máli gagnvart leigu-
markaðnum þannig að hér geti
myndast langtímaleigumarkaður.“
Hátt í 30 samningar á dag
Fyrirspurnum vegna leigusamn-
inga hjá Neytendasamtökunum hef-
ur fjölgað mjög á árinu og eru þegar
orðnar á sjötta hundrað og því fleiri
en samanlagt allt árið í fyrra.
Heimir Skarphéðinsson, laganemi
hjá Neytendasamtökunum, segir
málaflokkinn vera orðinn einn þann
stærsta sem samtökin sinni. Heimir
bendir á að í fyrra hafi hátt í 30
leigusamningar verið þinglýstir á
dag.
„Árið 2005 voru 5.229 leigusamn-
ingar þinglýstir en því fer fjarri að
allir leigusamningar séu það. Árið
2010 var 10.413 samningum þing-
lýst. Markaðurinn hefur því vaxið
hratt.“
Verðbólguáhrifin
Lára Guðlaug Jónasdóttir, sér-
fræðingur á Hagstofu Íslands, segir
húsaleigu sem mæld er í vísitölu
neysluverðs hafa hækkað um 4,3%
það sem af er ári. Hlutfall greiddrar
húsaleigu í vísitölu neysluverðs sé
2,92%. Hækkun húsaleigu frá jan-
úar til júlí jafngildir því 0,13%
hækkun vísitölunnar í heild.
Vægi húsaleigu í vísitölu neyslu-
verðs er ekki mikið og bendir Lára
Guðlaug í því efni á að samkvæmt
útgjaldarannsókn Hagstofunnar,
sem náði til áranna 2007 til 2009,
hafi 77% heimila búið í eigin hús-
næði en 23% í leiguhúsnæði.
Má af þessum tölum ráða að
hækkandi leiguverð snerti því
minnihluta heimila með beinum
hætti. En verðbólgan hækkar af-
borganir.
Vítahringur verðbólgunnar
Af þessum tölum má ráða að
hækkandi leiguverð snerti minni-
hluta heimila með beinum hætti en
hækkun vísitölu neysluverðs hækk-
ar afborganir af lánum sem verð-
tryggð eru með henni.
Skortur kyndir undir verðbólgu
Minna framboð en eftirspurn eftir leiguhúsnæði leiðir til hækkunar Leiðir aftur til verðbólgu
Forseti ASÍ segir skort hafa á aðstoð við leigjendur Fjórða hvert heimili er í leiguhúsnæði
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík frá Höfðatúnsturni Skortur er á leiguhúsnæði.
Laun hækka meira
» Skv. vef Hagstofu Íslands
hækkaði launavísitala um 5,7%
fyrri hluta ársins.
» Skv. sama vef hefur húsa-
leiga hækkað um 4,3% á árinu
sem þýðir að leiga hefur hlut-
fallslega farið lækkandi.
» Einhverjum kynni að þykja
mótsagnakennt að ræða um að
leiga hefði lækkað, enda ljóst að
hún er mörgum þungur baggi.
„Mér líst í einu orði
illa á markaðinn. Ég
hef verið að auglýsa
eftir þriggja til fjög-
urra herbergja íbúð í
Árbænum. Um daginn
voru auglýstar íbúðir
af þeirri stærð í hverf-
inu á 160.000 krónur.
Þær flugu út. Verðið
og eftirspurnin sýnir
að leigumarkaðurinn
er sprunginn,“ segir
Sigríður Margrét Tómasdóttir leik-
skólakennari, aðspurð um reynslu
sína af leigumarkaðnum.
„Leigan er á uppsprengdu verði.
Ég veit um fólk sem býr eitt og á í
basli með að standa undir leig-
unni. Þetta fólk á því í erfiðleikum
með að framfleyta sér. Sjálf hef ég
velt því fyrir mér hvort
eina leiðin til þess að
finna leiguhúsnæði á
viðráðanlegu verði sé
að gera það í gegnum
einhvern sem maður
þekkir. Það virðist
hvergi vera hægt að
finna ódýrt leigu-
húsnæði.“
– Hversu raunhæft
er fyrir millitekjufólk í
dag að leggja fyrir fé
og nota það síðan sem innborgun í
íbúð? Hvernig er svigrúmið í dag?
„Það er nákvæmlega ekki neitt.
Leiguverðið er orðið það hátt. Ég
veit um fjölskyldu sem hætti við
að leita sér að leiguíbúð í Norð-
lingaholti vegna þess hversu leigu-
verðið var hátt.“
„Leigan er á uppsprengdu verði“
LEIKSKÓLAKENNARI LEITAR AÐ ÍBÚÐ
Sigríður með syni
sínum Hauki Má.