Morgunblaðið - 17.08.2011, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lyklar Að hverju ætli þessir skemmtilegu og gömlu lyklar gangi?
Á morgun kl. 17 verður opnuð sýningin Steinn, skæri, pappír og lyklar að
himnaríki í Safnarahorni Gerðubergs. Á sýningunni eru steinar úr íslenskri
náttúru, skæri af ýmsum stærðum og gerðum, pappír í formi biblíumynda og
guðsorðabóka ásamt lyklum sem ef til vill ganga að himnaríki sjálfu. Sýning-
argripirnir koma úr söfnum sex einstaklinga og er yfirbragð sýningarinnar
sagt hlýlegt og gamaldags. Sýningin höfðar til fólks á öllum aldri enda
heillandi fyrir alla að upplifa sanna safnarastemningu.
Endilega ...
... farðu á sýningu í Gerðubergi
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Einbeitt Nemendur og foreldrar á tónlistarnámskeiðinu Höfum gaman.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Kennsluefnið Gaman sam-an með Karnivali dýr-anna, eftir Saint-Saëns,og Gaman saman með
Pétri og Úlfinum, eftir Prokofief,
miðar að því kynna verkin fyrir
börnum og kenna þeim um leið að
þekkja hljóðfæri í gegnum túlkun
og leik. Höfundur námsefnisins er
tónlistar- og tónmenntakennarinn
Linda Margrét Sigfúsdóttir sem
þróaði það í gegnum starf sitt með
börnum.
Föndraði heima
„Ég var að vinna á leikskól-
anum Kópasteini og sem tónlistar-
kennari er maður alltaf að reyna
að finna eitthvað nýtt og búa til
eitthvað. Ég byrjaði að vinna
þetta þar og líka með forskólahóp-
unum mínum úti á Álftanesi þar
sem ég starfa líka. Byrjaði að
föndra þetta allt saman sjálf
heima, klippti og límdi og fékk tvo
aðra skóla til að prófa þetta með
mér. Síðan prófaði ég að sækja
um styrk frá menntamálaráðu-
neytinu og fékk hann. Það gaf
mér byr undir báða vængi að
halda áfram. Þá gat ég ráðið
teiknara og gert alvöru úr þessu.
Krakkarnir eru svo fljótir að læra
þegar þetta er sett upp svona
myndrænt og í gegnum leik og því
virkar efnið mjög vel,“ segir Linda
Margrét.
Létt og leikandi
Í Gaman Saman með Karni-
vali dýranna eru notaðar grímur
en tónlistin er kennd við 13 dýr og
þá nota krakkarnir grímurnar og
upplifa tónlistina í gegnum leik.
Börnin upplifa tón-
listina í gegnum leik
Linda Margrét Sigfúsdóttir, tónlistar- og tónmenntakennari, hefur þróað
skemmtilegt tónlistarnámsefni fyrir leikskóla- og grunnskólabörn. Með því læra
börnin um tónlist á skapandi hátt í gegnum leik og þrautir.
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarkennsla Námsefnið byggist á þrautum, leik og tjáningu.
Á síðunni fixitclub.com er hægt að fá
leiðbeiningar um hvernig gera á við
næstum allt á milli himins og jarðar.
Viðgerðir þurfa ekki að vera flókn-
ar og mörgum hrýs hugur við að
þurfa að borga mörg þúsund krónur
fyrir það eitt að láta sérfræðing at-
huga vandamálið og eyða svo örfáum
mínútum í sjálfa viðgerðina. Þar kem-
ur þessi síða að góðum notum. Þar er
meðal annars hægt að lesa sér til um
hvernig á að gera við blandara, ör-
bylgjuofn, föt, pípulagnir, dyrabjöllur,
myndbandsupptökuvélar, farsíma og
svo má lengi telja.
Þegar valið er hvað skal gera við,
t.d. útvarp, er fyrst farið yfir hvernig
útvarpið virkar. Stiklað er á stóru á
algengustu vandamálunum, hvernig
hægt sé að komast að því hvað sé að,
lausnirnar sem eru í boði (farið vand-
lega yfir skref fyrir skref) og verkfær-
in sem þarf í viðgerðina.
Vefsíðan www.fixitclub.com
Morgunblaðið/ÞÖK
Örbylgjuofn Á síðunni er hægt að lesa sér til um hvers lags viðgerðir.
Lærðu að gera við hvað sem er
Keilir og Hraðlestrarskólinnhafa gert með sér sam-starfssamning en markmið
hans er að færa nemendum Keilis
í hendur þau vopn sem best duga
við lærdóminn: Hraðari lestur,
betri tímastjórn og glósutækni.
Hjálmar Árnason, fram-
kvæmdastjóri Keilis, segir að
hann hafi heyrt mörg jákvæð
dæmi um fólk sem hafi náð að
margfalda lestrarhraða sinn eftir
að hafa lokið námskeiði hjá Hrað-
lestrarskólanum og fannst honum
spennandi að skoða hvort hægt
væri að fara í samstarf við skól-
ann. „Áður en við fórum í sam-
starfið sömdum við við Hraðlestr-
arskólann um að fá að gera
tilraun, til að geta verið viss um
að þetta væri ekki einhver auglýs-
ingabrella sem við værum að falla
fyrir,“ segir Hjálmar.
Þrefaldaði lestrarhraðann
Tuttugu nemendur úr grunn-
skóla og framhaldsskóla á Suð-
urnesjum voru í vor fengnir til að
fara í gegnum námskeið hjá Hrað-
lestrarskólanum. „Að meðaltali
þrefaldaði hópurinn lestrarhrað-
Keilir og Hraðlestrarskólinn í samstarf
Aukinn lestrarhraði
besta vopn nemandans
Morgunblaðið/Golli
Lært Það er gott fyrir námsmenn að margfalda lestrarhraða sinn.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
www.noatun.isn o a t u n . i s
Nammibarinn
50%
afsláttur
AFNAMMIBARNUM
LAUGARDAGA:
ALLANSÓLARHRINGINN
SUNNUDAG - FÖSTUDAG:
MILLI KL 20 - 24