Morgunblaðið - 17.08.2011, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
3
2 1 4 3
2 7 4
3 7 2
5 1
7 9 8 4
4 8 1 7
5 2
3 9
2 4 7 6 1
3 1 5 2
8
3 1 8
8 3 2
7
4 2 6 3
5 6
7 2
1 7 8
9 4 5
7 9
3 6
7 3 5 4
8 6
4 6 2 5
5 7 2 3 8
9 7 8 6 1 5 4 2 3
6 4 3 7 2 9 5 1 8
2 5 1 4 3 8 6 9 7
5 2 4 3 7 1 8 6 9
7 8 9 5 4 6 1 3 2
1 3 6 9 8 2 7 4 5
4 9 5 8 6 3 2 7 1
3 6 2 1 5 7 9 8 4
8 1 7 2 9 4 3 5 6
4 3 7 1 5 6 8 2 9
5 1 8 9 2 7 6 4 3
6 2 9 3 4 8 7 5 1
2 7 6 5 9 4 3 1 8
1 9 4 7 8 3 5 6 2
3 8 5 2 6 1 4 9 7
7 6 2 8 1 5 9 3 4
9 5 3 4 7 2 1 8 6
8 4 1 6 3 9 2 7 5
7 4 5 6 8 2 3 1 9
3 8 6 7 9 1 2 4 5
1 9 2 5 4 3 7 6 8
5 3 9 1 6 8 4 7 2
4 2 1 3 7 9 5 8 6
6 7 8 4 2 5 9 3 1
8 1 4 9 5 7 6 2 3
2 5 7 8 3 6 1 9 4
9 6 3 2 1 4 8 5 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 17. ágúst,
229. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Því getum við öruggir
sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi
mun ég óttast. Hvað geta mennirnir
gjört mér? (Hebr. 13, 6.)
Víkverji hefur löngum gert sérgrein fyrir því að matur er mis-
hollur, en talið að með því að borða
sitt lítið – eða mikið – af hverju sé
hægt að búa til einhvers konar jafn-
vægi handan góðs og ills – þó von-
andi nær hinu góða. Sennilega er
ekki til sá matur, sem ekki hefur ein-
hvern tímann verið sýnt fram á með
einhvers konar rannsókn að geti
spillt heilsunni með einhverjum
hætti. Að sama skapi hefur að því er
virðist verið sýnt fram á að allur
matur sé hollur. Það sem er bráð-
drepandi einn daginn verður mein-
hollt þann næsta.
x x x
Víkverji rakst í gær á tvær fréttiraf þessum toga. Hann hefur
alltaf haldið að kaffiþamb væri ekki
æskilegt, en drekkur þó kaffi í gríð
og erg – sérstaklega í erg. Nú er
komin fram rannsókn, sem sýnir
fram á að kaffi dragi úr hættunni á
húðkrabbameini með því að drepa
skemmdar frumur, sem annars
gætu breyst í húðkrabbamein. Nið-
urstöðurnar gefa til kynna að með
því að drekka kaffi í hófi eða jafnvel
bera það á húðina megi draga úr
hættunni á húðkrabba. Þessi áhrif
kaffis hafa komið fram í öðrum rann-
sóknum og virðist kaffidrykkja einn-
ig hafa áhrif á tíðni ýmissa annarra
krabbameina í fólki.
x x x
Hin fréttin varðaði súkkulaði.Vísindamenn í Kanada hyggj-
ast nú rannsaka hvort hægt sé að
verjast sólbruna með því að borða
dökkt súkkulaði. Vísbendingar um
að efni í súkkulaði örvi blóðflæði við
húðina sem hjálpar til við að verjast
útfjólubláum geislum hafa þegar
komið fram í rannsóknum, en þær
voru ekki nógu umfangsmiklar til að
niðurstöðurnar væru marktækar.
Nú á að gera mun víðtækari rann-
sókn og á að fá stóran hóp sjálf-
boðaliða með ljósa húð til að borða
þrjár plötur af súkkulaði á dag í 12
vikur. Víkverji væri til í að borða
súkkulaði í þrjá mánuði í þágu vís-
indanna. Ekki er verra að geta nú
drukkið kaffi og borðað súkkulaði
með góðri samvisku. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 létta á fæti, 8
síðla, 9 refsa, 10 spil, 11
þvaðra, 13 stal, 15 karlfugl,
18 veita ráðningu, 21 hátíð,
22 kvenguð, 23 sleifin, 24
beinbrýtur.
Lóðrétt | 2 snjókomunni, 3
sjúga, 4 kyns, 5 lágfótan, 6
hæðir, 7 opi, 12 duft, 14 hátt-
erni, 15 mann, 16 sjúkdóm-
ur, 17 sori, 18 æki, 19 gerði
hreint, 20 hafa undan.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 bjarg, 4 sýnin, 7 rækta, 8 eiður, 9 sær, 11 aurs, 13 ás-
um, 14 andar, 15 karl, 17 illt, 20 hrá, 22 pútur, 23 reglu, 24
raust, 25 senda.
Lóðrétt 1 birta, 2 askur, 3 glas, 4 sver, 5 næðis, 6 nýrum, 10
ældir, 12 sal, 13 ári, 15 kopar, 16 réttu, 18 lagin, 19 tauta, 20
hrút, 21 árás.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ódýr fórn. N-NS.
Norður
♠D
♥KD982
♦87
♣ÁD953
Vestur Austur
♠K987653 ♠G102
♥G ♥64
♦K964 ♦D1052
♣8 ♣10742
Suður
♠Á4
♥Á10753
♦ÁG3
♣KG6
Suður spilar 5♥.
Lítum til vesturs. Norður opnar á
1♥ og suður tekur sterkt undir
hjartað með 2G. Hvað á vestur að
segja?
Spilið er frá úrslitaleik kvennabik-
arsins í Tórontó. Í opna salnum voru
Cronier og Willard í N-S (í sveit
Hamptons) gegn Quinn og Breed (í
sveit Westheimers). Quinn var í vest-
ur og lét 3♠ duga. Willard í norður
sagði 4♣, Cronier spurði um lykilspil
með 4G og stökk í 7♥ þegar hún
fékk upp tvö slík og trompdrottningu
með 5♠. Alslemman er borðleggjandi
og það grunaði Breed með hundana
sína í austur og hún fórnaði í 7♠.
Quinn hitti á allt og slapp 800-niður.
Í lokaða salnum sagði von Arnim
4♠ í stöðu vesturs. Westheimer pass-
aði þá í norður og Hjördís Eyþórs-
dóttir lét 5♥ duga (710).
17. ágúst 1899
Landsbankinn flutti í hús sitt á
horni Austurstrætis og Póst-
hússtrætis, þar sem hann hef-
ur verið síðan. „Það er hin
mesta bæjarprýði, langfalleg-
asta og vænsta húsið á land-
inu,“ sagði Ísafold.
17. ágúst 1946
Valgerður Þorsteinsdóttir tók
einkaflugmannspróf, fyrst ís-
lenskra kvenna, þá 18 ára.
„Nokkrar reykvískar stúlkur
leggja nú stund á flugnám og
mun þess ekki langt að bíða að
fleiri „flugmeyjar“ bætist í
hópinn,“ sagði Alþýðublaðið.
17. ágúst 2004
Magnús Scheving hlaut Nor-
rænu lýðheilsuverðlaunin,
sem voru afhent á ráðherra-
fundi á Egilsstöðum. „Latibær
á eftir að fara út um allt,“
sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta er rétt
að byrja.“
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
,,Ég og konan gerum okkur eitthvað til gamans í
dag ásamt stelpunum okkar,“ segir Guðmundur S.
Viðarsson, ljósmyndari.
Aðalstarf Guðmundar er sölumennska hjá Ný-
herja, en hann selur skjákerfi, þ.e. mynd- og hljóð-
búnað.
,,Ljósmyndun er ekki mitt aðalstarf, en ég fæst
mikið við eigin verkefni. Ég var t.d. með sýn-
inguna Kópavogur þá og nú á Rútstúni í Kópavogi
í sumar. Þar tók ég gamlar myndir og tek nýja
ljósmynd á nákvæmlega sama stað til þess að sjá
muninn,“ segir Guðmundur.
Guðmundur er kvæntur Ingunni Bernótusdóttur, starfsmanni á
fyrirtækjasviði Landsbankans. Þau eiga tvær dætur, þær Þórunni
Jenný, 7 ára, og Evu Margréti, 3 ára.
Guðmundur á 50 ára afmæli í dag, en heldur upp á það á föstudag-
inn kemur. ,,Það er bara hefðbundinn vinnudagur í dag, en í kvöld
gerum við fjölskyldan eitthvað saman. Á föstudaginn verður síðan
slegið upp teiti með vinum og ættingjum,“ segir Guðmundur að lok-
um.
Guðmundur S. Viðarsson er fimmtugur í dag
Teiti á föstudaginn
Söfnun
Þórdís Katla Sverr-
isdóttir og Embla
Eik Arnarsdóttir
söfnuðu dóti og seldu
fyrir utan Nóatún í
Austurveri og gáfu
Rauða krossi Íslands
ágóðann til styrktar
börnum í Sómalíu.
13.895 kr.
Flóðogfjara
17. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.17 0,4 8.19 3,8 14.25 0,5 20.34 3,8 5.25 21.40
Ísafjörður 4.24 0,4 10.15 2,1 16.31 0,5 22.28 2,1 5.17 21.58
Siglufjörður 0.42 1,4 6.46 0,2 12.56 1,2 18.50 0,3 4.59 21.41
Djúpivogur 5.28 2,1 11.40 0,4 17.42 2,0 23.56 0,5 4.51 21.13
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú sérð lengra en margur annar og
átt stundum erfitt með að fá samferðamenn
þína til að trúa á það sem þú segir. Samræð-
ur við vini og kunningja verða líflegar
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú skalt ekki bera óöryggi þitt á torg,
heldur líta í eigin barm og finna út af hverju
það stafar. Að minnsta kosti er fjör, ánægja
og skemmtanir í spilunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sköpun skipti þig miklu máli. Við-
ræður við vin um vonir þínar og drauma fyrir
framtíðina gætu borið óvæntan ávöxt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gættu þess að fórna ekki góðri vin-
áttu fyrir eitthvað sem skiptir litlu máli.
Stundum er best að halda að sér höndum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hógværð er góður kostur en þú mátt
samt ekki láta fólk misnota góðvild þína.
Hlutirnir eru ekki eins og þeir sýnast.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér verður treyst fyrir leyndarmáli og
mátt alls ekki bregðast því trausti. Mundu að
þegar allt kemur til alls fer er best á því að
vinna góðverkin bak við tjöldin.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sjálfsöryggi þitt bætir upp litla reynslu
þínu á ákveðnu sviði. Ef þú ferð eitthvað
reyndu þá að fara á kunnuglegan stað.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhver gæti gefið þér góð ráð
varðandi útlitið í dag, eða þú fengið góða
hugmynd. Veltu málunum vandlega fyrir þér
áður en þú lætur til skarar skríða.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú er komið að því að þú verður
að taka afstöðu til þeirra mála sem skipta
sköpum fyrir framtíðina. Láttu þér nægja að
leysa eigin vanda og sýndu öðrum skilning.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu þig bara fljóta með straumn-
um og frestaðu öllum ákvarðanatökum. Þér
líður eins og þú sért af öðrum heimi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver sem þú veist ekki af kem-
ur þér á framfæri bakvið tjöldin. Skyn-
samlegar leiðbeiningar, sem fylgt er í þaula,
leiða til æskilegrar niðurstöðu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur lagt hart að þér til að tryggja
lífsöryggi þitt og þinna. En láttu það ekki
aftra þér heldur brettu upp ermarnar og
gakktu rösklega fram.
Stjörnuspá
Sjöfn Sigurðardóttir færði Rauða
krossinum 15.100 krónur til hjálpar
börnunum í Sómalíu. Hún safnaði
peningunum með því að búa til
armbönd og selja og naut aðstoðar
móður sinnar og systur. Þær stöllur
voru bæði í miðbænum á Akureyri
og á Glerártorgi.
Söfnun
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. R1e2 e6
8. Rf4 Bh7 9. Bc4 Rf6 10. O-O Bd6
11. He1 Dc7 12. Rgh5 Rxh5 13.
Rxh5 O-O 14. Dg4 Bg6
Staðan kom upp í A-flokki skákhá-
tíðarinnar í Pardubice í Tékklandi
sem lauk fyrir skömmu. Tékkneski
alþjóðlegi meistarinn Pavel Simacek
(2470) hafði hvítt gegn íslenskum
kollega sínum Guðmundi Kjart-
anssyni (2310). 15. Rxg7! Kxg7 16.
h5 e5 17. hxg6 fxg6 18. De4 He8 19.
dxe5 Bxe5 og svartur gafst upp um
leið enda mannstap óumflýjanlegt
eftir 20. f4. Frammistaða Guð-
mundar á mótinu samsvaraði árangri
upp 2331 stig og mun skákstigatalan
hans hækka um fjögur stig af þeim
sökum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.