Morgunblaðið - 17.08.2011, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Ljós í einstökum gler-
hjúp Ólafs Elíassonar
verða tendruð í Hörpu kl.
22.30. 30
»
Á næstkomandi fimmtudag verður opnuð ljós-
myndasýning í Gerðubergi. Sýningin fjallar
um ástríðu, list og pólitík í lífi mexíkósku lista-
mannanna Fridu Kahlo og Diego Rivera. Af
því tilefni mun Martha Bárcena, sendiherra
Mexíkó, ávarpa gesti og opna sýninguna.
Ljósmyndirnar sem verða til sýnis fanga
ástríðufull augnablik sambands þeirra Fridu
Kahlo og Diegos Rivera og varpa ljósi á
stærstu atburði mexíkóskrar sögu, þ. á m.
mexíkósku byltinguna á fyrri hluta tuttugustu
aldar og þátt Fridu og Diegos í stjórnmálabar-
áttunni.
Diego og Frida hittust árið 1922 og urðu
leiðtogar nýrrar kynslóðar listamanna sem að-
hylltust félagslegar og stjórnmálalegar um-
bætur. Á myndunum má sjá hvernig líf þeirra
fléttaðist inn í sögulega atburði í mexíkóskri
sögu, m.a.verkalýðsátök og kynni þeirra af Ju-
lio Antonio Mella og Leon Trotsky.
Eftir byltinguna barðist Diego Rivera í
skotgröfum kommúnista og Frida Kahlo gekk
í flokkinn sem virkur baráttumaður ungra
kommúnista.
Diego var á tímabilinu hylltur af mörgum
sem einn merkilegasti listamaður 20. aldar og
árið 1930 bauðst honum að vinna veggmynd í
San Francisco sem varð til þess að þau Frida
fluttu til Bandaríkjanna. Diego var einnig
fenginn til að gera veggmynd í Rockefeller
Center sem var eytt nokkrum árum síðar en
ástæðan var sú að Diego hafði þá Lenin og
Trotsky í veggmyndinni og neitaði að breyta
ásjónum þeirra.
Sýningin hefur farið víða um heim og er sett
upp í samstarfi við sendiráð Mexíkó, spænsku-
deild Háskóla Íslands og hin mexíkósku þjóð-
arsöfn lista og bókmennta og mannfræði og
sögu. Sýningin er liður í því að minnast þess að
nú eru meira en 100 ár liðin frá fæðingu Fridu
Kahlo og byltingunni í Mexíkó og 50 ár frá
dauða Diegos Rivera. Sýningin stendur til 4.
september, opið er virka daga frá 11-17 og
helgina 3.-4. september frá 13-16.
Saga Fridu og Diego
Myndir af sögulegu sambandi í Gerðubergi
Róttæk Lífsskeið Fridu og Diegos fléttaðist
saman við stórsögulega atburði í Mexíkó.
Söngkvennatríóið 3Klassískar held-
ur söngskemmtun í Kaffi Flóru í
Grasagarðinum í Laugardal í kvöld
með prúðbúinn píanista með sér til
halds og trausts. Skemmtunin hefst
kl. 21.00.
Söngkonurnar Björk Jónsdóttir,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý
Sæmundsdóttir, sem kalla sig
3Klassískar, lögðu land undir fót í
sumar og héldu vestur á firði með
sveitarómantíska söngdagskrá í
bland við suðræna tangóa og
ítalska valsa, en nú eru röðin komin
að höfuðborgarbúum. Prúðbúni pí-
anistinn er Bjarni Þór Jónatansson.
Missagt var í blaðinu í gær að
tónleikarnir yrðu þá um kvöldið, en
rétt er að þeir verða í kvöld.
3Klassísk-
ar í Flóru
í kvöld
Söngkvennatríó og
prúðbúinn píanisti
Söngskemmtun 3Klassískar og
prúðbúinn píanóleikari.
Þrándur Þór-
arinsson sýnir
nú portret-
málverk á
Mokka og stend-
ur sýningin til
22. september
næstkomandi.
Þrándur hefur
valið sýning-
unni, sem er
fimmta einka-
sýning hans, yfirskriftina Þrándur
föndrar, en á sýningunni eru and-
litsmyndir af vinum og vandamönn-
um Þrándar.
Þrándur Þórarinsson er fæddur
1978. Hann stundaði nám hjá Odd
Nerdrum eftir að hafa lært við
fornámsdeild Listaháskóla Íslands
og málaradeildir Myndlistaskólans
á Akureyri og Listaháskóla Íslands.
Þrándur
föndrar á
Mokka
Mynd eftir Þránd
Þórarinsson.
Sýningin „Íslensk sam-
tímahönnun – húsgögn, vöru-
hönnun og arkitektúr“ verður
opnuð í Tallinn í Eistlandi í
dag, en formleg opnun og mót-
taka verða næstkomandi
sunnudag kl. 14.30, en þá mun
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, opna sýninguna.
Sýningin var fyrst opnuð á
Kjarvalsstöðum árið 2009 og
hefur síðan farið um Norð-
urlöndin og Kína. Tallinn er sjöundi viðkomu-
staður sýningarinnar sem er sett upp í tenglsum
við Íslandsdaginn í Tallinn sem er tileinkaður Ís-
landi sem þakklætisvottur vegna stuðnings Ís-
lendinga við sjálfstæði Eistlands 1991.
Hönnun
Íslensk samtíma-
hönnun í Tallinn
Frá Tallinn í
Eistlandi.
Ýmislegt verður á dagskrá í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg
á menningarnótt, en alls verða
um fjörutíu atburðir. Dag-
skráin hefst kl. 11.00, en kl
13.00 verða opnaðar tvær sýn-
ingar, annarsvegar sýning
breska málarans Nikhil Nat-
han Kirsh og hinsvegar sölu-
sýning á verkum Errós. Nikhil
Nathan Kirsh hefur verið bú-
settur hérlendis um hríð og
málað fólk úr þjóðlífinu.
Meðal annarra liða má nefna tónleika Guð-
björns Guðbjörnssonar við undirleik Guðbjargar
Sigurjónsdóttur kl. 12.00 og 20.30 og einnig verða
ýmsar kynningar, ratleikur, happdrætti o.fl.
Myndlist
Menningarnótt í
Galleríi Fold
Ein mynda Nikhil
Nathan Kirsh.
Dauði og djöfull er
titill nýrrar plötu
hljómsveitarinnar
Sálgæslunnar sem
skipuð er þeim And-
reu Gylfadóttur,
Stefáni Hilm-
arssyni, Sigurði
Flosasyni, Þóri
Baldurssyni og Ein-
ari Scheving. Sjö
aðrir hljóðfæraleikarar koma við sögu á disknum,
sem Dimma gefur út. Þórir Úlfarsson gerði
strengjaútsetningar og Sigurður Flosason blást-
ursútsetningar. Lögin eru eftir Sigurð Flosason,
textar ýmist eftir hann eða Aðalstein Ásberg Sig-
urðsson.
Tónlist
Dauði og djöfull frá
Sálgæslunni
Umslag Dauða og djöfuls.
Komið á nýjan stað
Listahópurinn Maddid að mestu skipaður íslenskum listamönnum í London
Spunaverk unnin út frá leiklist í bland við tónlist og myndbandslist
Morgunblaðið/G.Rúnar
Nýjungar Vala Ómarsdóttir stofnaði Maddid-hópinn árið 2007 og hann hefur vaxið síðan þá.
Maddid-hópurinn samanstendur af breið-
um hópi listamanna sem flestir eru ís-
lenskir og búa í London. Hópurinn
leggur áherslu á tilraunir í sviðs-
listum þar sem mismunandi
listgreinar koma saman til
þess að móta heildarmynd-
ina.
Vala Ómarsdóttir starfar
sem listrænn stjórnandi og leik-
ari.
María Kjartansdóttir myndlist-
arkona sér um að myndbandsverk.
Birgir Hilmarsson tónlistarmaður
hefur unnið hljóðmynd fyrir verkin og
Snorri Kristjánsson rithöfundur hefur
komið að textagerð.
Olga Masleinnikova leikkona kemur frá
Belgíu en Jordi Serra Vega er spánskur
hönnuður sem er búsettur á Íslandi.
Þá hefur Friðþjófur Þorsteinsson ljósa-
hönnuður unnið með hópnum.
Birgir Hilmarsson ætti að vera íslensk-
um tónlistarunnendum að góðu kunnur
en hann á að baki langan feril með
hljómsveitunum Ampop og Blindfold. Þá
hefur hann samið mikið fyrir auglýsingar
bæði hér heima og erlendis.
Koma úr öllum áttum
FÓLKIÐ Á BAK VIÐ SÝNINGUNA
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Á laugardaginn setur Maddid-hópurinn upp verkið Að
koma á nýjan stað í Norðurpólnum, þessum sem er á
Seltjarnarnesi. Maddid-hópurinn var stofnaður árið
2007 þegar Vala Ómarsdóttir var að útskrifast úr leik-
listarnámi frá Central School of Speech and Drama í
London. Hópurinn hefur undið upp á sig frá því að Vala
og leikkonan Mari Rettedal-Westlake settu fyrst upp
einleikinn Maddid sem settur var á svið hér á landi árið
2008.
Síðan þá segir Vala að mikið af listamönnum sem eru
búsettir í London og hafi bæst í hópinn. „Í rauninni er
það tilviljun að flestir þeirra eru Íslendingar en við höf-
um svipaðar hugmyndir um hvað sé áhugavert að gera
o.s.frv. Biggi Hilmars tónlistarmaður og María Kjart-
ansdóttir myndlistarkona bættust við fyrir um ári og
við höfum staðið að nokkrum innsetningum og sýn-
ingum úti í London síðan þá. Þetta eru leiksýningar í
bland við leiknar innsetningar, við prufum okkur áfram
og þróum verkin út frá þeim rýmum sem við erum að
vinna með. Oft höfum við verið í opnum rýmum þar
sem áhorfendur upplifa verkin á annan hátt en það á
kannski að venjast. Þá leikum við okkur með mynd-
bandsverkin hennar Maríu og tónlistina hans Bigga en
við Olga Masleinnikova leikkona vinnum út frá leiks-
puna. Þá höfum við verið að prufa okkur áfram með
ljósahönnun sem Friðþjófur Þorsteinsson ljósahönnuður
hefur útfært með okkur.“
Komið á nýjan stað
Verk hópsins eru ekki unnin út frá hefðbundnum
handritum en þó hefur Snorri Kristjánsson rithöfundur
komið nálægt verkefninu og skrifað texta út frá þeim
hugmyndum sem hópurinn hefur verið að vinna með.
„Við vinnum yfirleitt út frá einhverju grunnstefi til að
mynda er grunnhugmyndin sem við erum að vinna
með núna: Að koma á nýjan stað en verkið var sett
upp undir heitinu As Soon As They Know Me í
London. Þar erum við að skoða hvernig við aðlög-
umst nýjum stöðum og fólki, hvernig við birtumst
öðru fólki við slíkar aðstæður og hvernig sambönd
fólk myndar þegar það er að kynnast. Við byrj-
uðum á að vinna myndverk og leikspuna. Út
frá þeirri vinnu höfum við svo unnið textabrot
sem hafa blandast inn í verkið.“
Á ensku kallast þetta vinnuferli divised
theatre þar sem áhersla er lögð á listræna þró-
un leiklistarinnar. Ekki er um eiginlegan spuna
að ræða þar sem verk eru yfirleitt fullmótuð á æfing-
um áður en þau eru flutt fyrir framan áhorfendur.
Verkið verður flutt á Menningarnótt og
næstkomandi sunnudag.