Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011
Tónlistarmaðurinn SnorriHelgason, sem verður lík-lega kenndur við Sprengju-höllina nokkur ár í viðbót,
sendi nýverið frá sér sína aðra sóló-
plötu. Nefnist hún Winter Sun og er
pakkað inn í hrikalega flott plötu-
umslag. Borghildur Gunnarsdóttir á
hrós skilið fyrir flotta hönnun, for-
síðumyndin er alveg upp á tíu. Það
skiptir máli að góðum varningi sé vel
pakkað inn og svo er það í þessu til-
viki.
Upptökum stjórnaði Sindri Már
Sigfússon úr Seabear og Sin Fang.
Stemningin á plötunni er mjög nátt-
úruleg, það er aðallega leikið á kassa-
gítar, munnhörpu og píanó. Engar
trommur, bara stapp og klapp. Hljóð-
heimurinn virðist ekki stór í fyrstu en
svo þegar athygli er lögð við má
heyra ýmislegt smálegt í bakgrunn-
inum sem skerpir á bragðinu. Eins og
brakið í „Mockingbird“ sem hljómar
eins og lag-
ið sé spilað
af gam-
aldags
plötu. Unun
á að hlusta.
Röddin
hans
Snorra er
notaleg og á vel við þessa gerð tón-
listar. Hverrar gerðar er hún? Já þú
segir nokkuð. Snorri sagði sjálfur í
viðtali hér í blaðinu fyrir skömmu að
þetta væri svolítið tilraunakennt. Svo
við notum hans eigin orð sem svara
þessari spurningu ágætlega: „Í
grunninn er þetta „folk“-tónlist sem
er kannski ekki alveg hægt að þýða.
Kannski kemst alþýðutónlist næst
því. En í dag er þetta ekki alveg það
sama og er flokkað undir alþýðu-
tónlist. Þetta er svona í þeim dúr tón-
listar sem var í gangi á millistríðs-
árunum.“
Á Winter Sun eru ellefu lög. Laga-
smíðarnar eru misjafnar. Fyrstu tvö
lögin eru alveg stórgóð, „River“ og
„Mockingbird“. Tímalaus og töfrandi.
Ef öll platan hefði verið eins og þau
auk „Julie“ hefði mátt kalla hana
meistaraverk. En svo er nú eðlilega
ekki. „Boredom“ ber nafn með rentu,
mér finnst það leiðinlegasta lag plöt-
unnar, þrátt fyrir að jólin komi upp í
hugann í hvert skipti sem ég heyri
það. Það er bara eitthvað of trega-
blandið. Texti lagsins er samt fínn.
„The Butcher’s Boy“ er eina lagið á
plötunni sem er ekki samið af Snorra,
um er að ræða enskt þjóðlag. Gott er
það samt. „Winter Sun 2“ og „Car-
oline Knows“ er góð tvenna fyrir
miðju.
Ég hlustaði ekkert á fyrstu sóló-
plötu Snorra, I’m Gonna Put My
Name On Your Door, sem kom út ár-
ið 2009, og því get ég ekki borið þær
saman. Þarf þess heldur ekki, um
nýja afurð er að ræða. Snorri er á
góðri hillu á Winter Sun. Eins og áð-
ur segir eru lagasmíðarnar misjafnar
en heildarmyndin samt góð. Platan er
afskaplega áheyrileg, vel gerð og ljúf.
Þetta er alþýðutónlist fyrir alla sem
vilja hafa það huggulegt.
Huggulegur Helgason
Geisladiskur
Snorri Helgason – Winter Sun
bbbmn
Kimi Records 2011.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
TÓNLIST
Tónlistarhátíðin Pönk á Patró fór
fram í Sjóræningjahúsinu á Pat-
reksfirði í þriðja sinn um síðustu
helgi. Hljómsveitin Dikta lék og
stjórnaði tónlistarsmiðju fyrir börn.
Rúmlega 60 börn mættu og Diktu-
liðar kenndu þeim allt um að vera í
hljómsveit og leyfðu svo öllum að
prófa hljóðfærin sín.
Pönkað
á Patró
Rómantík Julia Roberts og Tom Hanks í Larry Crowne.
Sambíóin frumsýna kvikmyndina
Larry Crowne í dag, rómantíska
gamanmynd með Tom Hanks og
Juliu Roberts í aðalhlutverkum. Í
myndinni segir af miðaldra manni,
Larry Crowne (Hanks), starfs-
manni kassagerðar sem er sagt upp
störfum. Crowne er skuldum hlað-
inn og grípur til þess ráðs að fara í
menntaskóla og hefja nýtt líf. Þar
kynnist hann fólki í sömu stöðu og á
námskeiði einu fellur hann fyrir
kennaranum, Mercedes Tainot (Ro-
berts). Hún glímir við kulnun í
starfi og ástríðulaust hjónaband.
Metacritic: 41/100
Empire: 60/100
Rolling Stone: 20/100
Bíófrumsýning
Rómantík og gaman
hjá Hanks og Roberts
SÝND Í 2D OG 3D
MEÐ ÍSLENSKU TALI
OG ENSKU TALI Í 2D
RÓMANTÍSK STÓRMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
STRUMPARNIR FARA Á KOSTUM!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
“ÓMISSANDI EPÍSK
RÓMANTÍK!”
- HARPER’S BAZAAR
5%
ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
ONE DAY LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 5.25 - 10.20 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 8 - 10.20 12
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 8 - 10.20 12 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 6 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 8 - 10.15 14
CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 12
RISE OF THE PLANET OF THE APES KL. 6 - 10 12
ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 5.40 L
THE SMURFS 2D ENS. TAL KL. 5.40 - 8 - 10.20 L
CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 - 10.35 12
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 5.40 - 8 - 10 20 12
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
COWBOYS & ALIENS Sýnd kl. 5 - 7:30 - 10 (POWER)
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 - 6
STRUMPARNIR ÍSL TAL Sýnd kl. 4
CAPTAIN AMERICA 3-D Sýnd kl. 8 - 10:30
BRIDESMAIDS Sýnd kl. 7:30 - 10
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA IRON MAN
S
t
H H H
„ÞÚ FINNUR EKKI BETRI MYND HANDA
KRÖKKUNUM ÞÍNUM UM ÞESSAR MUNDIR.
SUMIR FULLORÐNIRGÆTU JAFNVEL
FENGIÐ SMÁ NOSTALGÍUFIÐRING"
-TÓMAS VALGEIRSSON,
KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
„BETRI EN THE HANGOVER”
cosmopolitan
„Svona á að gera þetta.“
- H.V.A. FBL
HHH
M.M.J. - KVIKMYNDIR.COM
HHH
„BRÁÐSKEMMTILEGUR HRÆRIGRAUTUR
AF SCI-FI Í SPIELBERG-STÍL OG
KLASSÍSKUM VESTRA. CRAIG OG FORD
ERU EITURSVALIR!“
T.V. -KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Hvar í strumpanum erum við ?
HINIR EINU SÖNNU STRUMPAR MÆTA LOKSINS Á HVÍTA TJALDIÐ
OG FARA Á KOSTUM Í STÆRSTA ÆVINTÝRI ÁRSINS
Sýnd í 2D og 3D með
íslensku tali