Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.08.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Börn í átta leikskólum í Reykjavík taka þátt í hreyfimyndasmiðju Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík, RIFF, og Reykja- víkurborgar í ár. Smiðjunni stýrir franskur hreyfi- myndagerðarmaður, Mikael Greco, en hann hefur áður unnið með íslenskum börn- um að slíkum myndum. Skipuleggjandi smiðjunnar er kvikmyndaleikstjórinn Marteinn Þórsson. Smiðjan fer fram í hverjum leikskóla fyrir sig og stendur til að hver skóli fái einn dag, nú í lok ágúst og byrjun sept- ember. Leikskólarnir átta eru Reynisholt, Kvistaborg, Geislabaugur, Nóaborg, Sæborg, Stakkaborg, Öldukot og Laufásborg en hugs- anlega bætist einn leikskóli við. Afraksturinn verður svo sýndur í Norræna húsinu 25. sept- ember kl. 13. Marteinn segir fyrirkomulagið þannig að far- ið verði að morgni í tiltekinn leikskóla og leik- skólakennararnir taki þátt í smiðjunni með börnunum. Fyrst sé tiltekið þema fundið og unnið út frá því með leir, Playmo-köllum, teikn- ingum eða öðru efni sem höfði til barnanna. „Það er fundin einhver mjög einföld saga og svo vinnur hann Mikael þetta með þeim, er með tölvu og myndavél og svo er unnið hljóð líka og reynt að klára heila mynd á þessum degi,“ út- skýrir Marteinn. Lifandi og síbreytilegt listform „Ég hef gert eina stutta hreyfimynd og hef gaman af því að stýra hreyfimyndasmiðjum með börnum eða fullorðnum,“ segir Mikael Greco. Hann kjósi heldur að vinna hreyfimynd- ir með öðrum en einn með sjálfum sér. Greco beitir s.k. stop motion tækni, raðar sam- an fjölda ljósmynda af leirköllum eða öðru þannig að úr verður hreyfing þegar þær eru sýndar hratt. Hann bendir á að tæknin að baki hreyfi- og teiknimyndum sé afar fjölbreytt og að í raun geti hver sem er búið til hreyfimyndir með einföldum tækjabúnaði. Ekki þurfi nám til. Hreyfimynda- gerð sé lifandi listform og síbreytilegt. – Er það áskorun fyrir þig að vinna með leik- skólabörnum? „Nei, það er ekki áskorun, það er reyndar afar auðvelt,“ svarar Greco. – Þú gefur þér einn dag í hverja mynd? „Já, það er gott því ég vil vinna þetta almenni- lega, taka myndir til að vinna úr og taka upp hljóð með börnunum fyrir myndina,“ segir Greco. Hver mynd verði um mínúta að lengd. Greco stendur fyrir sýningum á stuttum hreyfimyndum á RIFF. Hátíðin hefst 22. september og lýkur 2. október. Heillandi Greco vinnur með áhugasömum ungum mönnum í hreyfimyndasmiðju í Norræna hús- inu í fyrra. Hreyfimynd að verða til í fartölvunni. Úr hugarheimi leikskólabarna  Frakkinn Mikael Greco stýrir hreyfimyndasmiðju RIFF með íslenskum leikskólabörnum  Myndirnar verða sýndar í Norræna húsinu 25. september næstkomandi Marteinn Þórsson Morgunblaðið/Frikki Efniviður Það má nota svo til hvað sem er í hreyfimyndagerð, leikföng í þessu tilfelli. Undirbúningur Mikael Greco að störfum við hreyfimyndagerð, hlutir færðir til. www.riff.is Þróun sem varð að byltingu Mögnuð stórmynd um upphafið á stríði manna og apa sem seinna meir mun gjöreyða mannkyninu Frábærar tæknibrellurnar frá WETA þeim sömu og gerðu Avatar! H H H H H - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER H H H H H - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI - KVIKMYNDIR.IS H H H H - R.C - TIME H H H H H LARRY CROWNE FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND / ÁLFABAKKA LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:20 7 GREEN LANTERN kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 LARRY CROWNE kl. 8 - 10:20 VIP BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 5:30 L COWBOYS & ALIENS kl. 5:30 - 8 - 10:30 14 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 5:30 L HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 12 HARRYPOTTER7-PART2 kl. 8 - 10:40 12 HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 VIP STRUMPARNIR 3D Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L CAPTAINAMERICA3D kl. 10:20 12 STRUMPARNIR Með ísl. tali kl. 2:30 L BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 L COWBOYS & ALIENS kl. 5:20 - 8 - 10:40 14 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 L RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:30 12 GREEN LANTERN 3D kl. 5:20 - 10:45 12 HORRIBLEBOSSES kl. 8 12 HARRYPOTTER7-PART23D kl. 8 12 / EGILSHÖLL HHH „ÞÚ FINNUR EKKI BETRI MYND HANDA KRÖKKUNUM ÞÍNUM UM ÞESSAR MUNDIR. SUMIR FULLORÐNIR GÆTU JAFNVEL FENGIÐ SMÁ NOSTALGÍUFIÐRING" -TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI Hvar í strumpanum erum við ? HINIR EINU SÖNNU STRUMPAR MÆTA LOKSINS Á HVÍTA TJALDIÐ OG FARA Á KOSTUM Í STÆRSTA ÆVINTÝRI ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK HHH BoxOffice Magazin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.