Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 17.08.2011, Síða 36
Það þarf allt að ganga upp fyrir Vals- stúlkum ætli þær sér að verja Ís- landsmeistaratitilinn í knattspyrnu en Stjarnan er með 7 stiga forskot. Þær gerðu þó sitt í gær með 4:0 sigri á Aftureldingu. Breiðablik skaust upp fyrir Fylki í 5. sætið með 2:1 sigri í leik liðanna. Þá tók ÍBV lið KR í kennslustund á Hásteinsvelli í Vest- mannaeyjum. »4 Valur eygir enn mögu- leika á að verja titilinn MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 229. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Sláandi myndbandsupptaka 2. Braut 21 rúðu í ástarsorg 3. Sökk í lónið á 51 sekúndu 4. Svona á að fara að því að grennast »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Frakkinn Mikael Greco mun stýra hreyfimyndasmiðju Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, með íslenskum leikskólabörnum. Myndirnar verða svo sýndar í Nor- ræna húsinu 25. september. »32 RIFF starfar með leikskólabörnum  Morgan Spur- lock er vænt- anlegur til lands- ins og mun verða viðstaddur for- sýningu á nýjustu mynd sinni, The Greatest Movie Ever Sold. Fer hún fram 24. ágúst í Háskólabíói. Spurlock er þekktur fyr- ir hinar áleitnu myndir Super Size Me og Where in the World is Osama Bin Laden? Leikstjórinn Morgan Spurlock til landsins  Benni Hemm Hemm heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi í kvöld á Fak- torý. Benni Hemm Hemm er nýlega fluttur aftur til Íslands eftir langa dvöl í Skotlandi og er búinn að ræsa út hljómsveitina, æfa upp gamla og nýja slagara auk skoskra þjóð- laga og íslenskra ábreiðulaga. Benni Hemm Hemm spilar á Faktorý Á fimmtudag og föstudag Fremur hæg norðaustlæg eða breyti- leg átt víða á landinu, skýjað að mestu og skúrir í flestum lands- hlutum. Hiti 6 til 13 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, rign- ing með köflum norðan- og austantil, en annars stöku skúrir. Úrkomuminna norðanlands í kvöld. Hiti 7 til 16 stig. VEÐUR „Það hefur legið ljóst fyrir í töluverðan tíma að við myndum spila í úrvalsdeild- inni á næsta ári, en við fögnum þessu innilega,“ sagði Hjörtur Hjartarson í gær eftir að Skagamenn tryggðu sér endanlega sæti í úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu að nýju með því að gera jafntefli við ÍR þar sem Hjörtur skoraði enn eitt markið sitt. »2 Skagamenn aftur í hóp þeirra bestu Karlalið Hauka í handknattleik er að fá góðan liðsstyrk fyrir átökin á kom- andi leiktíð en Gylfi Gylfason gengur frá samningi við Hafnarfjarðarliðið á næstu dög- um, sam- kvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Gylfi hefur verið í at- vinnumennsku und- anfarin 11 ár. »1 Gylfi Gylfason að ganga til liðs við Hauka ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á María Elísabet Pallé mep@mbl.is „Mér finnst skemmtilegast að fara með uppskeruna heim, þá sér maður árangurinn,“ segir Lára Ruth Clau- sen 7 ára, en hún verður 8 ára 21. ágúst næstkomandi og hefur verið að rækta grænmeti við Fossvogsdal, við Víðigrund, síðan í júní. „Við erum búin að háma í okkur grænmeti í allt sumar sem er bara mjög gott mál,“ segir Einar Clau- sen, faðir Láru. Láru finnst gaman að taka upp alla uppskeruna eftir sumarið en finnst líka skemmtilegt að setja niður. Lára hefur ræktað margar tegundir grænmetis í sumar eins og kartöflur, salat, baunagras, hvítkál, radísur og alls konar krydd- jurtir. „Mér finnst líka gaman á leikjadögum og á síðasta leikjadeg- inum fengum við köku í eftirrétt,“ segir Lára. Gulræturnar í uppáhaldi Lára segir að grænmetið sem hún hafi ræktað sjálf sé mun betra en grænmetið sem sé til sölu í versl- unum. „Við ætlum að taka grænmet- ið upp með rótum og setja niður í garðinn okkar,“ segir Lára. „Sumt er ekki alveg tilbúið eins og bauna- grasið, og við ætlum að setja það í gróðurhúsið okkar,“ segir Einar. „Uppáhaldsgrænmetið mitt er litlar gulrætur sem ég ræktaði sjálf og ég þekki. Mér finnst þær ekki góðar sem eru keyptar úti í búð,“ segir Lára. „Uppáhaldsgrænmet- ismaturinn minn er græn- metissúpa en uppá- halds „stutti“ mat- urinn minn er persneskar rúsínur, þær eru aðeins sæt- ari en íslenskar rús- ínur,“ segir Lára. Sunneva Sævarsdóttir sem á afmæli í dag og Lára verða saman í þriðja bekk í Kársnesskóla í vetur. Uppáhaldsgrænmeti Sunnevu er líka gulrætur. Hún ætlar að fara með allt grænmetið heim til sín og geyma inni í ísskáp. Móðir hennar mun svo elda eitthvað gómsætt úr því og ætlar Sunneva kannski að hjálpa henni. Stelpurnar eru sam- mála því að uppskeran sé sér- staklega góð í sumar. Kópavogsbær hefur rekið skóla- garða í um hálfa öld en þeir eru ætl- aðir börnum á aldrinum 6-13 ára. Um 300 hundruð börn hafa sótt skólagarðana á hverju sumri. Starfs- menn skólagarðanna veita börn- unum leiðsögn við ræktun algeng- ustu matjurta. Skólagarðar Kópavogs eru í Fossvogsdal, Kópa- vogsdal, við endurvinnslustöð Sorpu og við Baugakór. „Uppskeran æðisleg í sumar“  Mjög góð upp- skera þrátt fyrir kalt sumar Mynd/Árni Sæberg Skólagarðar Lára Ruth Clausen, t.h., og Sunneva Sævarsdóttir elska að borða grænmeti og sérstaklega sætar gul- rætur. Vinkonurnar hefja nám í þriðja bekk Kársnesskóla í næstu viku. „Uppskeran var æðisleg að þessu sinni en okkur tókst að eitra vel,“ segir Helga Aradóttir, garðstjóri við Fossvogsdal, en í sumar hafa um 60 börn ræktað grænmeti. Aðsóknin hafi verið góð líkt og í fyrra en í öðrum skólagörðum bæjarins hafi myndast biðlistar. Leikskólarnir Furugrund og Álfatún hafi einnig aðstöðu í garðinum. „Sumarið byrjar á því að undirbúa garðana, reyta arfa og vökva. Þeg- ar líður á sumarið getum við farið að taka upp radísur, blómkál og spergilkál,“ segir Helga. Í Fossvog- inum er ræktaður fjöldi grænmet- istegunda eins og blómkál, sperg- ilkál, rauðkál, hvítkál, hnúðkál, rófur, næpur, radísur, grænkál, sal- at, gulrætur, kartöflur, baunagrös, dill, steinselja, grænkál og blað- selja. Skólagarðarnir vinsælir GRÆNMETISRÆKT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.