Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2011 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er rólegt um að litast í vélsmiðj- unni VP vélaverkstæði þennan mið- vikudagsmorgun. Járniðnaðarmaður íklæddur bláum samfestingi vísar á eigandann, Viðar Pétursson, þegar spurt er um forstjórann. Viðar tekur á móti blaðamanni og vísar upp þröngan stiga. Það er kaffikrókur á annarri hæðinni og þar er steikjandi hiti í haustsólinni. Viðar hellir upp á kaffi og lýsir því svo hvernig hann hafi verið viðloð- andi málmsmíðina í hálfa öld. Á því tímabili hafi skipst á skin og skúrir. Frostið á vinnumarkaði eftir efna- hagshrunið fyrir þrem árum sé hins vegar með fádæmum og veki minn- ingar frá kreppuárunum 1967 til 69. „Þá var ástandið steindautt og all- ar málmsmiðjur á Suðurnesjum fóru á hausinn og raunar víðar. Það vant- ar verkefni. Starfsmaður hjá mér keypti vörubíl árið 2005. Bíllinn er nú búinn að standa óhreyfður í tvö ár. Það er ekkert að gera fyrir hann, engin verkefni. Það er dapurlegt að horfa upp á þetta. Menn eru að missa eigur sínar vegna þess að þeir fá ekki vinnu,“ segir Viðar og dregur upp dökka mynd af næstu mánuðum. Lítið um verkefni framundan „Við sinnum verkefnum fyrir Stofnfisk. Önnur vinna er nánast engin, ef frá er talið viðhald. Það eru fá verkefni framundan sýnist mér. Það er ekkert í hendi. Við finnum fyrir þessu á verk- stæðinu. Þetta er í fyrsta skipti í haust sem við erum komin niður í átta tíma vinnu á dag. Við vorum í 10 til 12 tíma vinnu á dag, fjórir til sex karlar, en nú erum við þrír. Ég sé ekki fram á neina breytingu á því. Ég gæti jafnvel þurft að fækka um einn mann. Ég neyddist til að segja upp manni um síðustu mánaðamót. Það er dapurlegt að þurfa að segja upp mönnum. Það er ekki hægt að lýsa því neitt öðruvísi,“ segir Viðar. Svo kemur löng þögn. Viðar lítur út um gluggann og beinir talinu að fólksflóttanum síðustu misserin. „Ég veit til þess að í járniðn- aðargeiranum eru margir fluttir úr landi, farnir. Atvinnuleysistölur hér suður frá væru miklu hærri ef allir þeir væru taldir með sem flutt hafa til Noregs, Kanada og Grænlands. Ég þekki til járnsmiðs sem flutti til Norður-Noregs. Hann hækkaði um helming í launum og fékk að auki ýmis fríðindi fyrir að starfa norð- arlega í Noregi. Konan hans er sjúkraliði og af henni er sömu sögu að segja. Hún flaug inn á sjúkrahús með miklu betri laun en hérna suður frá. Svo gerist það að sonur þeirra fer á eftir þeim. Þetta er mikil blóð- taka fyrir lítið samfélag. Þarna eru tvær fjölskyldur farnar sem ég þekki persónulega. Um þetta eru mýmörg dæmi. Fólk þarf einhvern veginn að bjarga sér og það gerist ekki hérna á svæðinu. Það er ekki í boði.“ Hafa tapað aleigunni Viðar segir fjölda fólks hafa tapað eignum sínum í efnahagshruninu. „Það er fullt af fólki sem er hrein- lega búið að missa allt sitt og er far- ið. Ef farið er um hverfið má sjá mik- ið af auðum íbúðum og húsum sem fólk var flutt í en eru nú mannlaus. Ég veit um málmsmiðju í Njarðvík sem var lokað nýlega. Á Keflavík- urflugvelli var málmsmiðja sem fór sömu leið. Það kemur ekkert í stað- inn. Svo er það málmsmiðjan Normi hér í Vogum. Þar er ekkert að gera,“ segir Viðar og hugsar sig aftur um. Gífurleg fækkun „Þar eru nú einn til tveir menn en voru áður á milli tuttugu og þrjátíu. Svo er það byggingariðnaðurinn. Hann er liðinn undir lok hér eins og annars staðar. Ég sé engin merki þess að ástandið fari batnandi á næstu mánuðum. Því miður. Ætli róðurinn verði ekki líka þungur á næsta ári. Ef ekkert nýtt kemur til mun járniðnaðarmönnum halda áfram að fækka á Suðurnesjum.“ Ekki jafn slæmt síðan árið 1969  Eigandi málmsmiðju í Vogum óttast frekari uppsagnir  Hefur einu sinni upplifað jafn þungan róður á 50 árum Morgunblaðiði/hag Í smiðjunni Viðar Pétursson hefur starfað við málmsmíði í áratugi. Hann hefur sjaldan upplifað jafn erfiða tíð. Atvinnuleysi mælist hvergi jafn mikið og á Suðurnesjum. Þegar varnarliðið fór töpuðust mörg störf. Um hríð virtist þó sem góðærið myndi tryggja mjúka lendingu. Það reyndist svikalogn. Með efnahagshruninu varð landshlutinn aftur fyrir áfalli. Tómar íbúðir vitna um fram- kvæmdagleði sem hljómar eins og löngu liðin fortíð í miðri stöðnuninni. Heimamenn segja fjölda fólks hafa gefist upp á ástandinu og yfir- gefið landið í leit að betri tíð á erlendri grund. Ef fram heldur sem horfir er allt útlit fyrir að fleiri neyðist til að flytjast frá Suðurnesjum. Atvinnumál á Suðurnesjum Þegar atvinnuleysi er í sögulegu há- marki og aðeins nokkur misseri liðin síðan mesta fasteignabóla í sögu landsins sprakk er ekki við öðru að búast en að fasteignamarkaðurinn sé erfiður suður með sjó. En hvernig skyldi Halldór Magnússon, fast- eignasali hjá Stuðlabergi fast- eignasölu, greina markaðinn í dag. „Það er erill. Því er ekki að neita. Við erum mikið að verðmeta eignir fyrir banka. Salan er hins vegar ekki mikil. Það er til dæmis mjög lítil hreyfing á nýbyggingum. Það er helst að lakari eignir séu að seljast sem er hægt að fá á lágu verði. Litlu íbúðirnar hreyfast ekki heldur,“ segir Halldór og bendir á afleiðingar þess þegar sölukeðjan stöðvast. Geta ekki selt eignirnar „Margir sem vildu geta selt og stækkað við sig eru fastir á meðan eignir þeirra seljast ekki. Svo eiga þeir sem eldri eru erfitt með að selja stærri eignir. Vandinn liggur fyrst og fremst í því að fólk á erfitt með að nálgast fjármagn. Bankarnir eru orðnir stífari í greiðslumati,“ segir Halldór Magnússon. Sölukeðjan úr sambandi Á hjóli Götulíf í Keflavík. „Maður er farinn að velta því fyrir sér hvers vegna maður ætti að vera hérna áfram. Með sama áframhaldi heldur þetta áfram að versna,“ segir Laufey Kristjáns- dóttir, eigandi Bergnets ehf., um- boðsskrifstofu í Keflavík, um stöð- una suður frá. „Viðskiptin hrundu með hruninu. Ég brást við með því að vinna fyrir hádegi í leikskóla í þeirri von að senn færi að birta til. Ég reyni að þreyja þorrann. Nú er svo komið að ég ætla að gefa mér eitt ár í viðbót. Ef ekkert verður farið af stað í atvinnumálum gætum við farið að hugsa okkur til hreyfings. Ég vona að staðan verði ekki sú að ári. Maðurinn minn starfaði í 30 ár hjá varnarliðinu. Okkur líður hér á þessu svæði eins og það sé verið að refsa okkur fyrir að hafa verið með herinn. Það er alveg sama hvað er reynt að gera hérna. Það er allt slegið út af borðinu.“ Heimili og vinnustaður Sigurbjörn Gústavsson, eigin- maður Laufeyjar, starfar í sama húsi við Hafnargötuna í Keflavík en þau hjónin eiga íbúð á efri hæð í sama húsi. Það eru því hæg heimatökin fyrir Laufeyju að sækja manninn sinn til frásagnar. Sigurbjörn segir hækkandi elds- neytisverð virka letjandi á suma Suðurnesjamenn þegar störf á höfuðborgarsvæðinu ber á góma. „Ég byggi þetta á samtölum við fólk á förnum vegi. Í eitt skiptið var fólkið að ræða hvort það ætti að taka láglaunastörfum á höfuð- borgarsvæðinu. Niðurstaðan var sú að það borgaði sig ekki vegna bensínkostnaðar. Svo þarf að taka barnapössun með í reikninginn. Samanlagt getur þetta tvennt veg- ið ansi þungt. Við höfum þegar gengið í gegnum það áfall sem brotthvarf varnarliðsins var. Svo kom hrunið. Við erum því að lenda í öðru hruni og það er fátt sem gefur tilefni til bjartsýni.“ Skilin milli feigs og ófeigs Davíð Helgason trésmiður vísar blaðamanni til sætis í eldhús- króknum þegar bankað er upp á án fyrirvara um miðjan dag. Talið berst að atvinnumálum og svarar Davíð þá því til að hann hafi starfað hjá Stofnfiski í hálft þriðja ár en að nú sjái fyrir endann á því. Hann segir heppni geta skorið úr um hvort smiðir hreppi verk- efni. „Þeir sem eru að vinna virðast hafa nóg að gera. Þetta getur líka verið óheppni. Ég veit um menn sem eru hörkuduglegir og eru á fullu að leita en finna ekki neitt.“ „Maður er farinn að velta því fyrir sér hvers vegna maður ætti að vera hérna“  Eigandi umboðsskrifstofu í Keflavík vinnur orðið hálfan daginn í leikskóla Morgunblaðiði/hag Hjón Sigurbjörn og Laufey starfa hlið við hlið. Þorbjörn Guðmundsson er útibús- stjóri hjá Frumherja í Njarðvík. Það er rólegt um að litast í skoðuninni þegar blaðamann ber að garði. Þorbjörn segir eftir- spurnina fara hríðminnkandi. „Hún hefur alveg dottið niður. Við erum að tala um hundruð bíla á mánuði. Nú fáum við að jafnaði 25 til 30 bíla á dag til skoðunar. Fyrir ekki löngu komu að jafnaði 45 á dag. Það var biðröð.“ – Hvernig er hljóðið í fólkinu? „Það er mjög slæmt. Það kvart- ar undan peningaleysi. Það kvartar undan ríkisstjórninni og ráða- mönnum og finnst sem þeir séu skeytingarlausir um landshlutann. Fólkið kvartar undan öllu. Það er ósköp einfalt mál. Þegar herinn fór lamaðist samfélagið. Þetta er komið í sama farið aftur. Nú er eins og allt sé að koðna niður,“ segir Þorbjörn dapur í bragði. Samdrátturinn í kringum 50% MIKLU FÆRRI BÍLAR KOMA Í SKOÐUN HJÁ FRUMHERJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.