Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2011 ✝ Ágúst ÁrmannÞorláksson fæddist á Skorra- stað í Norðfirði þann 23. febrúar 1950. Hann lést á heimili sínu að Sæ- bakka 12 í Nes- kaupstað þann 19. september 2011. Ágúst var sonur hjónanna Þorláks Friðriks Friðriks- sonar bónda á Skorrastað, f. 15.1. 1927 og Jóhönnu Ármann, húsmóður og verkakonu, f. 14.5. 1930. Systkini Ágústs eru: El- ínborg Kristín, f. 1952, gift Fred Schalk. Jón, f. 1954, kvæntur Þórunni Freydísi Sölvadóttur. Sólveig María, f. 1956. Friðný Helga, f. 1961, gift Ingþóri Sveinssyni. Guðjón Steinar, f. 1963, kvæntur Dagbjörtu Elvu Sigurðardóttur. Þann 30. des- ember 1970 kvæntist Ágúst Sig- rúnu Halldórsdóttur skólafull- trúa við Verkmenntaskóla Austurlands. Sigrún er dóttir Halldórs S. Haraldssonar, d. 2004 og Sólveigar Helgu Björg- úlfsdóttur. Börn Ágústs og Sig- rúnar eru: 1) Halldór Friðrik, f. 6.1. 1969. 2) Óskírður drengur, f. 6.1. 1969, d. 7.1. 1969. 3) Bjarni Freyr, f. 24.6. 1973, kvæntur Sif Þráinsdóttur, f. 31.5. 1971. Börn þeirra eru Arna Ösp, f. 17.8. 2004, Eyrún, f. 16.9. 2006 og Ægir, f. 31.1. 2011. 4) Þorlákur Ægir, f. 19.4. 1983, í sambúð með Bjarneyju Ein- arsdóttur, f. 14.7. 1988. Til sjö ára aldurs ólst Ágúst upp á Eskifirði en fluttist þá á Skorrastað ásamt foreldrum maður austfirsks tónlistarlífs. Fyrir utan að stjórna kirkjukór- um gegndi hann margvíslegum störfum fyrir Kór Fjarðabyggð- ar og tók mikinn þátt í að byggja upp Snælandskórinn, kór Kirkjukórasambands Aust- urlands, en Ágúst var árum saman í stjórn Kirkjukóra- sambandsins og formaður þess um skeið. Báðum þessum kórum stjórnaði hann við ýmis tækifæri auk þess að stjórna ýmsum öðr- um kórum sem störfuðu í skamman tíma. Ágúst hóf að leika fyrir dansi fjórtán ára að aldri og lék með fjölmörgum danshljómsveitum. Þá var hann einn af stofnendum Blús-, rokk- og djassklúbbsins á Nesi (Brján) sem starfað hefur í meira en tvo áratugi. Var Ágúst tónlistar- stjóri fjölda sýninga og tónleika sem klúbburinn hefur staðið fyr- ir. Störf Ágústs að tónlistar- málum á Austurlandi voru afar mikils metin og hlaut hann menningarverðlaun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi árið 2007. Fyrir utan málefni tengd tónlistinni tók Ágúst virkan þátt í félagsstörfum. Má þar nefna að hann starfaði lengi innan Íþróttafélagsins Þróttar og var formaður félagsins 1974-1975. Hann sat í stjórn Starfsmanna- félags Neskaupstaðar og var einnig formaður þess um eins árs skeið. Í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar átti Ágúst sæti 1988-2010 og í félagsmálaráði Neskaupstaðar um átta ára skeið. Hann var lengi félagi í Lionsklúbbi Norðfjarðar og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Lionshreyfinguna á Aust- urlandi. Hin síðari ár starfaði Ágúst innan Frímúrararegl- unnar. Útför Ágústs Ármanns fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag, 26. september 2011, og hefst athöfnin kl. 14. sínum. Haustið 1968 settist hann að í Neskaupstað og bjó þar að mestu til æviloka. Ágúst lauk tón- menntakenn- araprófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík 1973 og kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkj- unnar 2004. Hann lagði stund á framhaldsnám að loknu tónmenntakennarapróf- inu auk þess sem hann sótti end- urmenntun við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónskóla þjóð- kirkjunnar 1995-1996. Ágúst kenndi við Tónlistar- skólann á Akranesi og Brekku- skóla 1973-1974. Hann var kennari við Tónskóla Neskaup- staðar 1974-1982 að und- anskildu skólaárinu 1977-1978 en þá fékkst hann við kennslu við Tónlistarskóla Njarðvíkur ásamt því að vera organisti við Njarðvíkurkirkju. Skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar var Ágúst 1982-2010. Hann var org- anisti Norðfjarðarkirkju og Mjóafjarðarkirkju 1974-1977, 1980-1985 og frá 1996 til dauða- dags. Organistastarfi við Graf- arvogskirkju gegndi Ágúst 1995-1996. Hann var starfs- maður afmælisnefndar Nes- kaupstaðar 1979 og for- stöðumaður Kirkju- og menningarmiðstöðvar Fjarða- byggðar á Eskifirði 2010-2011. Á yfirstandandi skólaári hóf Ágúst á ný að kenna við Tón- skóla Neskaupstaðar. Áratugum saman var Ágúst helsti forystu- Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er dvaldir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Halldór Kiljan Laxness) Elskulegur sonur okkar hefur kvatt þessa jarðvist. Engin orð geta lýst þeirri sorg sem við stönd- um nú frammi fyrir. Allt verður svo skýrt í huganum. Við minn- umst þess þegar þú tókst fyrstu skrefin þín, þú varst þá kominn hátt á annað árið. Þá strax varst þú byrjaður að syngja fyrir okkur. Þó það væri mikið sungið í kringum þig þá gátum við varla trúað því sem við heyrðum. Tíminn leið og við skynjuðum fljótt yndi þitt á tónlistinni. Fermingargjöfin þín frá okkur var námskeið í orgelleik hjá dr. Robert Abraham Ottóssyni sem var haldið að Eiðum. Þar vaktir þú athygli aðeins fjórtán ára gamall. Fyrir þann tíma hafði tón- list Bítlanna heillað þig og næstu árin átti danstónlistin hug þinn all- an. Gæfan okkar allra var þegar þú gast komist í nám hjá Hauki Guð- laugssyni á Akranesi. Þar dvaldir þú á heimili móðursystur þinnar og manns hennar, sem ætíð hafa haldið utan um þig og systkini þín öll. Barnahópurinn á Skorrastað var stór á þínum uppvaxtarárum, heimabörnin á báðum bæjunum og sumarbörnin okkar sem komu á vorin og fóru á haustin. Aldrei áttir þú svo stund frá leik og starfi að ekki settist þú við gamla orgelið heima. Æskan leið og kornungur komst þú með fallegu stúlkuna þína heim til okkar. Síðan hafið þið Sigrún gengið götuna saman og glímt við ykkar gleði og sorg eins og við öll. Fjölskyldan þín litla var það dýrmætasta sem þú áttir. Sig- rún, drengirnir ykkar, tengdadæt- ur og afabörnin þrjú. Öll framtíð- aráformin þín miðuðust við að miðla til þeirra. Við foreldrar þínir nutum umhyggju þinnar og kær- leika og einnig systkini þín og fjöl- skyldur þeirra. Faðmurinn þinn var svo hlýr og kærleikurinn streymdi frá þér og gaf okkur styrk. Nú hefur Guð tekið þig til sín. Við biðjum Hann að vaka yfir Sigrúnu, sonum ykkar, tengda- dætrum og litlu yndislegu afabörn- unum sem þú dýrkaðir og þráðir að vera með. Einnig okkur foreldr- um þínum, systkinum og fjölskyld- um. Við eigum mikið ríkidæmi sem er barnahópurinn okkar, nú hefur verið höggvið skarð í þann hóp. Við erum stoltir foreldrar af hópnum okkar. Elsku sonur okkar, það er erfitt að kveðja þig en við felum þig góðum Guði sem gaf þig. Mamma og pabbi. Þín hönd var svo mjúk þitt hjarta svo hlýtt þinn faðmur svo stór þitt bros svo blítt. Þín nálægð svo sterk þitt fas svo stillt þinn hugur svo skýr þitt viðmót svo milt. Hvað getum við sagt á stundu sem þessari, þar sem tilfinningar eru svo sterkar en hugurinn eitt- hvað svo tómur. Tilfinningar eins og sorg og söknuð höfum við vissu- lega upplifað áður en aldrei með slíkum hætti sem nú. Tíminn hefur stöðvast en áfram tifar klukkan. Aggi var elstur af okkur systkin- unum og var því fyrirmynd og leið- togi okkar annars góða systkina- hóps. Aggi var einstaklega kærleiksríkur og umhyggjusamur, hann lét sér annt um velferð allrar fjölskyldunnar. Hann lagði mikla áherslu á að halda hópnum saman og var ætíð hvatamaður að sam- fundum fjölskyldunnar. Þar var hann hrókur alls fagnaðar, hafði skoðun á flestum málefnum, brennandi áhuga og var hvetjandi um allt það sem frændgarðurinn tók sér fyrir hendur. Hann var sannur mannvinur, umhyggju- samur um samferðarmenn sína og fór ekki í manngreinarálit, hann var maður sátta og samlyndis. Í orðabók Agga voru margar blað- síður með gríðarlegum fjölda af mismunandi orðum en eitt orð kom fyrir á hverri blaðsíðu en það var orðið já, orðið nei var einungis undir bókstafnum N og var sú blaðsíða nánast ónotuð. Lífsvið- horf Agga kristallaðist einnig í miklum áhuga og væntumþykju sem sneri að málefnum samfélags- ins, þó sérstaklega því sem viðkom Norðfirði. Framlag hans til tónlist- armála á Austurlandi er ómetan- legt og verður það skarð sem hann skilur eftir sig á þeim vettvangi vandfyllt. Orð fá ekki lýst hve stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna okkar nú þegar Aggi okkar hefur kvatt þessa tilvist. Minning um einstakan bróður lifir og hana munum við geyma um ókomna tíð í hjörtum okkar. Elsku mamma, pabbi, Sigrún, Halldór, Bjarni, Sif, Þorlákur, Bjarney, Arna Ösp, Eyrún og litli Ægir, Guð gefi ykkur styrk og kraft á þessari erfiðu stundu. Guð geymi yndislegan bróður. Elsku Aggi, takk fyrir allt og allt. Elínborg, Jón, Sólveig, Friðný og Guðjón. Við sitjum við eldhúsborðið á Sæbakkanum og heyrum að bíl er ekið að. Dyrnar opnast með ákveðnum handtökum og svo er bankað í eldhúsvegginn og sagt er: „Hver er þar?“ Litlu systurnar lyftast upp og hrópa glaðlega: „Afi!“ Við sitjum inni í stofu. Eyrún kemur og spyr afa hvort hann vilji lesa fyrir sig. Það er sjálfsagt mál og nær Eyrún í bók eftir bók. Ein- staka sinnum er farið inn í rúm og þar leggjast þau í afa holu og lesa. Arna kemur líka og leggst hjá þeim. Afi les svo skemmtilega. Við Ægir erum fyrst fram enda klukkan ekki orðin sjö. Við reyn- um að hafa eins lágt og hægt er til að vekja ekki hina. Eftir smátíma heyrist umgangur og stuttu síðar kemur afi í sloppnum sínum og mjúku inniskónum. Hann byrjar á því að setja kaffikönnuna af stað með þeim orðum að þau amma geti ekki hafið daginn nema að fá sér kaffi. Arna kemur fram í þeim töl- uðu orðum, leggst í sófann undir teppi og kveikir á barnatímanum. Afi kemur og sest hjá Örnu og knúsar stúlkuna sína. Ægir sér afa og brosir einu af sínum óteljandi brosum. Afi strýkur Ægi um koll- inn um leið og hann segir: „Elsku vinurinn“. Eyrún kemur fram, skríður í fangið á afa og þau sitja öll góða stund og horfa saman á barnatímann. Dyrabjallan hringir í Kópavog- inum. „Afi og amma eru komin!“ kalla systurnar um leið og þær opna dyrnar og hlaupa fram á gang. Afi og amma ganga upp stig- ann og þær fleygja sér í fangið á þeim. Afi klæðir sig úr sandölun- um sem voru skildir eftir þegar hans sandalar voru teknir, en hann gengur samt sem áður í þeim þó þeir séu í raun einu númeri of litlir. Sandalana skilur hann eftir frammi á gangi svo þeir beri ekki inn óhreinindi. Jakkann hengir hann á stól við stofuborðið, leggur báða símana á sófaborðið svo hann missi örugglega ekki af símtali ásamt gleraugunum. Sest síðan í græna stólinn og litlu stúlkurnar hans koma og skríða í afafang. Afi spyr frétta og keppast þær við að segja honum það sem er í frásögur færandi. Eyrún nær í bók sem þau lesa og Arna nær í spil og þau spila Hæ Gosa með hlátrasköllum því auðvitað ruglast allir! Við erum á leiðinni fjölskyldan í sumarbústað í Kjarnaskógi. Búið er að hringjast á því það þarf að halda tímaplani og stoppustöðvar eru áætlaðar. Við rennum að og eru afi og amma komin, búin að koma sér fyrir og taka á móti skoppandi glöðum stelpum því þetta er eitt af því skemmtilegasta sem þær gera, að vera með afa og ömmu í sumarbústað. Eitt af fyrstu verkunum er að láta renna í pottinn. Þegar hann er tilbúinn stökkva systurnar ofan í og kalla á afa, hvort hann sé ekki að koma líka! Afi lætur ekki kalla á sig tvisvar og kemur ofan í og situr lengi með þeim og leikur við þær. Þar er ýmislegt spjallað og brallað og fær glugginn að kenna á því þar sem við amma stöndum við og horfum á busluganginn. Þetta er aðeins brotabrot af þeim myndum sem tengdapabbi gaf mér og börnunum mínum. Það er dýrmætt að hafa þær, því þær gaf okkur svo yndislegur og góður maður sem við söknum sárt, hann Ágúst Ármann. Sif Þráinsdóttir. Kæri vinur, mágur og svili, fregnin um andlát þitt kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, við hjónin sátum sem lömuð, þetta gat ekki staðist. Fyrir nokkrum dögum vorum við á kóræfingu hjá þér þar sem æft var fyrir tónleika sem þú varst búinn að undirbúa lengi og bera nafnið „Óma Íslandslög“. Þetta er ekki réttlátt, þú áttir eftir að gera svo margt. Við kynntumst þegar ég var bara polli og þú að skjóta þér í systur minni og þú varst að stíga þín fyrstu spor í hljómsveitabrans- anum. Ég man hvað ég leit upp til þín og jafnvel gortaði af því við vini mína, að mágur minn væri popp- stjarna. Þær eru orðnar margar hljómsveitirnar sem þú hefur verið í og margir þekktir og frægir popparar sem þú hefur spilað með, en það var sama hvað bandið hét eða með hverjum þú spilaðir, þú varst alltaf drifkrafturinn og vildir alltaf æfa manna mest því æfingin skapar meistarann sagðir þú alltaf. Mörgum árum seinna þegar ég var kominn með fjölskyldu kom ég í kórinn til þín og þá rann upp fyrir mér hvað þú varst mikill afburða- maður í tónlist. Rokk, popp, klass- ík, blús eða djass, þú spilaðir allt jafn vel. Þú varst mjög metnaðar- fullur og kröfuharður fyrir hönd kórsins þíns og lagðir á þig ómælda vinnu til að hann stæði sig með sóma í þeim verkefnum sem hann tókst á við og ávallt eftir tón- leika eða athafnir sýndirðu bæði í orði og verki hversu stoltur þú varst og hve vænt þér þótti um kórinn þinn. Sérstaka áherslu lagðir þú alltaf á það við kórmeð- limi að þeir mættu vel í jarðarfarir því slík athöfn væri það síðasta sem gert yrði fyrir þann einstak- ling sem átti að jarða, og það yrði að gerast með góðum og stórum kór. Þú laðaðir að þér börn jafnt og fullorðna með hressileika þínum og spaugi, börnin okkar eiga margar góðar minningar frá Sæ- bakkanum þegar þau voru þar í heimsókn eða pössun, allur góði maturinn hennar Sigrúnar frænku og spaugið og stríðnin í Agga frænda. Börn fundu til öryggis í hlýleika þínum og vináttu. Þú varst ávallt tilbúinn að hlusta og ráðleggja og finna hverjum nem- anda verkefni við sitt hæfi. Það eru góðar minningar sem þú skilur eft- ir hjá þeim og fullorðnum sem að þú kenndir. Þú varst alæta á bæk- ur og tónlist og hafðir sterkar skoðanir á ólíklegustu málefnum, og maður gat jafnan flett upp í þér eins og alfræðiorðabók ef ein- hverja vitneskju vantaði. Þá skipti engu máli hvort þú varst spurður út í sveitarstjórnarmál, trúmál, pólitík, tónlist, knattspyrnu eða handbolta, alltaf voru svör á reiðum höndum og rökstuðningur fylgdi gjarnan máli. Elsku mágur og svili, við kveðj- um þig með miklum söknuði og þökkum þér allar góðu stundirnar sem við áttum með þér, t.d. þegar við hittumst í kaffi á sunnudögum hjá tengdamóður þinni og einnig erum við hjónin afskaplega ánægð að hafa farið með ykkur Sigrúnu í Svartaskóg eina helgi núna í ágúst og sungið pallasöng. Við munum sakna orðanna: „Takk fyrir, fólkið mitt,“ en þannig þakkaðir þú kórn- um fyrir eftir athafnir. Elsku systir og synir, megi góð- ur guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Björgúlfur Halldórsson og Halla Höskuldsdóttir. Nú er haust á norðurhveli jarð- ar og gróðurinn sem fékk nýtt líf í vor sölnar og fellur til jarðar. Þetta er gangur náttúrunnar sem við fáum engu ráðið um. Við byrjum að læra það sem börn að allt sem fæðist og fær líf mun deyja að lok- Ágúst Ármann Þorláksson  Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÞÓRA NÍELSÍNA HELGA HÁKONARDÓTTIR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík mánudaginn 19. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, Suður- hlíð, Reykjavík, miðvikudaginn 28. september kl. 11.00 Helga Dagmar Jónsdóttir, Snjólaug Petrína Sveinsdóttir, Jónas Þór Jakobsson, Guðrún Margrét Sveinsdóttir, Auður Sveinsdóttir, Jóhann Valgeir Jónsson, Kristín Sveinsdóttir, Guðmundur Unnarsson, Áslaug Sveinsdóttir, Björn Grétar Þorsteinsson, Hákon Sveinsson, Haraldur Hákonarson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, BRYNJA SIGURÐARDÓTTIR FRÁ HÆLI Í VESTMANNAEYJUM, lést föstudaginn 23. september 2011 í Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Anna Davíðsdóttir, Friðgeir Þór Þorgeirsson, Sigurður Davíðsson, Hjördís H. Friðjónsdóttir, Helga Davíðsdóttir, Hugrún Davíðsdóttir, Guðmundur K. Bergmann, Jóhann Ingi Davíðsson, Steinunn Heba Finnsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, AÐALHEIÐUR MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Holtsgötu 21, Reykjavík, lést laugardaginn 24. september á líknardeild Landakotsspítala. Útför auglýst síðar. Jón Helgason, Guðmundur Jónsson, Kristín Jónsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Ægir Thorberg Jónsson, og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR (LILLA) lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 23. september. Jarðarförin auglýst síðar. Stefán Kjartansson, Gunnar L. Stefánsson, Þórunn Ásgeirsdóttir, Guðfinna Stefánsdóttir, Helgi Harðarson, Hreinn Stefánsson, Sveinbjörg Pálmarsdóttir, Hilmar Stefánsson, Íris Dóra Unnsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.