Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
E
ndurmenntun ætti auðvit-
að að vera sjálfsögð
skylda allra þeirra sem
hafa ökuréttindi. Bæði
umferðareglur og bílar
breytast. Fólki er ekki alltaf gefið
að halda í við þróunina og öllum
getur förlast. Í kerfinu er enginn
hvati til símenntunar af þessum
toga og það fólk sem leitar til öku-
kennara til að halda við bæði
þekkingu sinni og reynslu er telj-
andi á fingrum annarrar handar.
Þetta mætti gjarnan breytast,“
segir Guðbrandur Bogason, fram-
kvæmdastjóri Ökukennarafélags
Íslands.
Reyna erfiðustu aðstæður
Fyrirkomulagi almenns ökunáms
hefur verið gjörbreytt á síðari ár-
um. Hinn bóklegi þáttur í náminu
hefur verið efldur og það nýjasta
er svonefndur Ökuskóli 3, það eru
sérstakar akstursbrautir til þjálf-
unar. Slíkum brautum hefur nú
verið komið upp meðal annars á
Kirkjusandi í Reykjavík, en þar
eru t.d. notaðir sérstakir skrik-
vagnar sem framkalla mismunandi
skilyrði, meðal annars hálkuakst-
ur. Þá koma nemendur skömmu
fyrir lokaprófið og reyna sig við að
aka við erfiðustu aðstæður. Einnig
er þar farið í gegnum ýmis atriði
er snúa að slysavörnum, en allt
hefur þetta það inntak að nem-
endur fari út á göturnar að rétt-
indum fengnum með sem bestan
skilning á gangverki umferð-
arinnar.
„Almennt finnast mér krakk-
arnir vel á vegi stödd þegar þau fá
ökuskírteini til bráðabirgða, oftast
þá sautján ára gömul. Þá eru þau,
oft eftir fornám hjá ökukennara,
búin að fá góða þjálfun í æf-
ingaakstri hjá forráðamönnum
sem gjarnan eru í góðri samvinnu
við kennarana. Æfingar þessar tel
ég að geri krökkunum gott. Þetta
losar um mesta spenninginn sem
alltaf fylgir bílprófinu,“ segir Guð-
brandur sem hefur sinnt öku-
kennslu í fjörutíu ár.
Ökumaður axli ábyrgð
„Reynsla krakka er talsvert önnur
nú en áður. Þegar ég var að byrja
að kenna var mjög algengt að til
mín kæmu krakkar sem hefðu ver-
ið í sveit og væru með reynslu af
dráttarvélum. Núna er þetta gjör-
breytt,“ segir Guðbrandur um
ökunámið sem í dag eru 22 bók-
legir tímar, fimmtán verklegir að
lágmarki. Í Ökuskóla 3 eru síðan
teknir tveir tímar á aksturs-
brautum en þrjár stundir eru til-
einkaðar hinum bóklega þætti.
Standist nemar svo öll próf og séu
refsipunktalausir ári eftir bílpróf
er gefið út ökuskírteini til lengri
tíma, gefi akstursmat kennara til-
efni til þess. Að öðrum kosti gilda
bráðabirgðaréttindin til tvítugs og
jafnvel lengur hafi ökumenn ekki
flekklausan feril.
„Í matinu er þessi almenna sam-
skiptafærni lögð til grundvallar.
Hvernig er ökumaðurinn í stakk
búinn að axla þá ábyrgð sem þát-
töku í umferðinni fylgir,“ segir
Guðbrandur sem telur þetta og
fleira eiga ríkan þátt í því að slys-
um sem bílstjórar á byrjendaskeiði
valda hefur fækkað. Árið 1997 hafi
þeir ökumenn valdið 43% allra
slysa í umferðinni en á síðasta ári
hafi þetta hlutfall verið komið nið-
ur í 20%. Þær tölur segi mikið.
Eftirfylgd með nýliðum í um-
ferðinni er mun markvissari en áð-
ur. Ef ökumenn með bráðabirgða-
réttindi fá fjóra punkta í
ökuferilsskrá á fyrsta árinu missa
þeir prófið og svo þeir öðlist rétt-
indin aftur verða þeir að sækja
sérstakt námskeið – bóklegt og
verklegt – taka prófin að nýju og
gangast undir áðurnefnt akst-
ursmat kennara sem leggur dóm á
hvort viðkomandi sé þess trausts
verður að mega aka bifreið.
Vistakstur er list
Á sama hátt og símenntun allra
ökumanna væri til bóta, bendir
Guðbrandur Bogason á að nú séu
komnar Evrópureglur hvað varðar
endurmenntun og vörubílaakstur
og mun þær taka gildi hér á landi
árið 2013. Þá þurfi ökumenn á
fimm ára fresti að sækja 35
stunda námskeið þar sem farið sé
yfir ýmis öryggisatriði en áherslu-
málið í dag séu einkum og helst
svonefndur vistakstur. Nú þegar
hafa starfsmenn nokkurra fyr-
irtækja fengið fræðslu um slíkan
akstur, sem raunar er einnig kom-
inn inn í hið almenn ökunám að
nokkru leyti.
„Vistakstur skiptir miklu máli.
Þetta er eigi að síður ekki ýkja
flókið; listin er sú að halda jöfnum
hraða úti á vegum og skipuleggja
akstur sinn í samræmi við að-
stæður, umferð, veðráttu og svo
framvegis. Láta sig líða með
straumnum og taka hvert áratog
af fyrirhyggju í stað þess að ösla
áfram. Loftmagn í hjólbörðum er
atriði sem skiptir miklu og allt
skilar líka því að með vistakstri er
hægt að draga úr eldneytiseyðslu
sem nemur allt að 20%. Það mun-
ar um slíkt – og áhrifin á umhverf-
ið eru til mikilla bóta,“ segir Guð-
brandur.
sbs@mbl.is
Nemendur
skilji gangverk
umferðar
Morgunblaðið/Golli
Ökunám Í Ökugerði á Kirkjusandi fá nemendur Guðbrands Bogasonar, sem og annara, þjálfun í því að aka við erfiðustu að-
stæður, svo sem í hálku, og þá er notaður sérstakur vagn. Er reynslan af notkun hans sem og þjálfuninni afskaplega góð.
Þurfum hvata til símenntunar ökumanna, seg-
ir Guðbrandur Bogason ökukennari. Markviss-
ara nám en áður. Æfingaakstur losar um
spennuna. Krakkarnir almennt vel á vegi
stödd þegar þau fá ökuskírteini.
Eiga ríkan þátt í því að
slysum sem bílstjórar á
byrjendaskeiði valda hefur
fækkað. Árið 1997 hafi þeir
ökumenn valdið 43% allra
slysa í umferðinni en á síð-
asta ári hafi þetta hlutfall
verið komið niður í 20%.
Keyrður 68 þús mi.
8 cc. 320 ha vél.
5 gíra beinskiptur.
Topp eintak.
Verð kr 2.000.000
eða tilboð.
Uppl. Í síma 894 1412
eða 867 1282
Til Sölu Ford Mustang 2001
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.