Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 22

Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ T ilgangurinn með rafbíla- leigunni er meðal annars sá að stuðla að minni um- ferð mengandi bensín- og dísilbíla um þétteknar breiðgötur Parísarborgar. Vonast er til að þjónustan, sem gengur undir heitinu Autolib, eigi eftir að verða gangandi auglýsing fyrir raf- bíla, en framleiðendur fólksbíla eru að snúa sér að smíði slíkra bíla í auknu mæli. Um er að ræða tilraunaverkefni fyrstu tvo mánuðina en í því felst að fólk geti leigt sér svonefndan Blue- car-rafbíl í 30 mínútur fyrir fjórar til átta evrur. Rétt eins og á við um Velolib-leiguhjólaþjónustuna er leiguverð rafbílanna byggt upp til að hvetja frekar til styttri ferða en langra. Á 33 stöðvum Og aðstandendur fyrirtækisins segja starfsemina alls ekki hugsaða til höfuðs hefðbundnum bílaleigum. „Við viljum reyna að fá fólk til að venja sig við þá hugsun að nota bíla í stað þess að þurfa eiga þá,“ segir Morald Chibout, framkvæmdastjóri Autolib. Rannsóknir hafa leitt í ljós að 25% franskra borgara hafa neyðst til að draga úr bílnotkun eða hætta henni alveg vegna ört hækk- andi bíltrygginga og bílastæðis- gjalda. Og rúmur helmingur Par- ísarbúa á ekki bíl. Í fyrstu verða 66 fjögurra sæta Bluecar-bílar í notkun og hafa not- endur aðgang að þeim á 33 stöðvum í borginni þar sem hægt er að endurhlaða rafgeymana að notkun lokinni. Áætlanir miða við það, að bílarnir verði orðnir 3.000 og leigu- stöðvarnar á annað þúsund fyrir lok næsta árs, 2012. Áætlað er að fjár- festing vegna þessa nemi 235 millj- ónum evra, jafnvirði 38 milljarða króna. Frumkvöðull hlutskarpastur Áður en til dæmis íslenskir ferða- langar geta notfært sér þessa bíla- þjónustu verða notendur fyrst að kaupa sér áskrift að þjónustunni sem kostar frá 10 evrum á dag og upp í 144 evrur á ári. Í útboði um bíla til þessarar þjón- ustu varð franski kaupsýslumað- urinn Vincent Bollore hlutskarp- astur. Hann er frumkvöðull á sviði rafgeymasmíði en bílarnir eru hannaðir fyrir hann og framleiddir af ítalska fyrirtækinu Pininfarina. Drægi þeirra á fullri rafhleðslu er um 250 km og tekur um fjórar stundir að hlaða þá að fullu á ný. Bollore segist gera sér vonir um að Autolib skili hagnaði frá og með sjöunda starfsári. agas@mbl.is Bílakóngur Vincent Bollore er frumkvöðull á sviði rafgeymasmíði. Hér kynnir hann Autolib þjónustu sína í París. Þetta er tilraunaverkefni til þriggja mánaða og svo verður staðan metin og framhaldið látið ráðast. Leigja má rafbíla í sjálfsölum í París Undanfarin ár hafa gestir og gangandi í höfuðborg Frakklands getað gripið reiðhjól á sjálfsölustöðum. Nú er verið að útfæra þessa þjónustu og hægt verður að leigja rafbíla. Bílar Leigja má rafbíla í sjálfsölum til ferða um París sem stundum hefur með réttu verið nefnd breiðstrætaborgin. Í fyrstu verða 66 fjögurra sæta Bluecar-bílar í notkun og hafa notendur aðgang að þeim á 33 stöðvum í borginni þar sem hægt er að endurhlaða rafgeymana að notkun lokinni. Reuters STZ mtdekk.is 28”-33” Söluaðili: Hljóðlát og endingargóð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.