Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25
Þ
að er líklega langt síðan
Ford bjó yfir eins sterkri
vörulínu og nú. Forstjór-
inn Alan Mulally tók þá
stefnu fyrir nokkrum ár-
um að fækka tegundum verulega
en vanda þeim mun betur til þró-
unar þeirra. Ford hefur endurnýj-
að nánast alla framleiðslu sína og
býr núna yfir nútímalega hönn-
uðum, vel útbúnum og sparneyt-
num bílum sem uppfylla kröfur um
góða aksturseiginleika.
Kóngurinn kynntur
Kóngurinn, hvað þessa eiginleika
varðar, hlýtur að vera hinn nýi
Ford Fiesta ECOnetic sem kynnt-
ur var fyrir örfáum dögum á bíla-
sýningunni í Frankfurt en sá bíll
losar aðeins 87 g/km af CO2 og
notar eingöngu 3,3 lítra á hundr-
aðið. Með slíkar tölur er Ford
Fiesta hagkvæmasti bíll í Evrópu
sem býðst án notkunar tvinntækni.
Að fara 30 kílómetra á einum
lítra af eldsneyti í blönduðum
akstri er raunveruleiki með Ford
Fiesta ECOnetic. ECOnetic tækni
Ford notast við start/stop búnað,
síu fyrir köfnunarefnisoxíð, só-
tagnasíu, nýtt innsprautunarkerfi,
drifrás og nokkrar vel valdar
breytingar á vél sem skila þessum
góða árangri. Ekkert af aksturs-
gleðinni ætti að tapast því Ford
Fiesta skilar þrátt fyrir þetta 95
hestöflum.
Einnig í Ford Focus
Ford kynnti einnig til sögunnar
afar sparneytinn Ford Focus
ECOnetic sem getur dregið úr eig-
in loftmótstöðu á ferð. Ford Focus
ECOnetic býr yfir sérsmíðuðum
gírkassa sem dregur úr viðnámi og
sparar þannig orku. Með ECOne-
tic vélinni ræður Ford Focus yfir
105 hestöflum og miklu togi.
Með því að nýta hefðbundna
tækni næst mikið rekstraröryggi
án þess að fórna hagkvæmni á
nokkurn hátt. ECOnetic útgáfurn-
ar af Ford Fiesta og Ford Focus
eru ekki komnar til Brimborgar en
vonir standa til að fyrstu bílarnir
komi fljótlega eftir áramót.
finnurorri@gmail.com
Fiesta Sparneytnasti bíll Evrópu sem ekki er með tvinntækni. Nýjar gerðir Fiesta og Focus koma til landsins eftir áramót.
Ford Fiesta
sparneytnastur
án tvinntækni
Ford breytir framleiðslunni. Fiesta er kóngurinn;
sparneytinn og mengar sáralítið. Ekkert af aksturs-
gleðinni ætti að tapast því bíllinn hefur kraft.
U
ndirrituð var á dögunum
viljayfirlýsing fulltrúa inn-
anríkis- og fjármálaráðu-
neyta, Vegagerðar og Sam-
taka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu um samning um
tíu ára tilraunaverkefni á sviði al-
menningssamgangna. Samið verður
um uppbyggingu og rekstur almenn-
ingssamgangna á höfuðborgarsvæð-
inu jafnhliða því sem umfangsmiklar
vegaframkvæmdir verða settar á ís.
Þá er litið til samgangna sem tengja
höfuðborgarsvæðið við nágranna-
sveitarfélögin á sama atvinnusvæði.
Viljayfirlýsing þessi verði hluti af
samgönguáætlun 2011-2022 sem
stefnt er að því að leggja fyrir Alþingi
nú í haust.
Við vinnslu sjálfbærrar samgöngu-
áætlunar er gengið út frá því að ríkið
skuldbindi sig til að setja peninga í
rekstur almenningssamgangna á
svæðinu næstu tíu árin gegn mót-
framlagi sveitarfélaga. Framlag rík-
isins komi af kolefnisgjaldi sem ríkið
innheimtir af jarðefnaeldsneyti og
verður um einn milljarður kr. á ári.
Meginmarkmiðið verði að minnsta
kosti að tvöfalda hlutdeild almenn-
ingssamgangna í öllum ferðum á höf-
uðborgarsvæðinu. sbs@mbl.is
Stefnt að minni umferð
og framkvæmdir á ís
Morgunblaðið /Kristinn
Umferð Einkabílar áberandi en nú á að
auka hlutdeild almenningssamgangna.
Ríkið og sveitarfélögin
semja áætlun um sam-
göngumál til tíu ára
Bíleigendur
athugið
Ef þið lendið í tjóni þurfið þið sjálfir
að tryggja að þið fáið tjónið rétt bætt
og fullnægjandi viðgerð.
Sérstaklega er nauðsynlegt að bíleigendur geri sér grein fyrir
sínum rétti til að velja viðgerðaraðila þegar þeir lenda í tjóni og
leiti sér upplýsinga.
Tryggingafélögin eru með skrár á heimasíðum sínum yfir
tjónaviðgerðaverkstæði og benda á eða mæla með þessum
skrám og sum flokka verkstæði beint eða óbeint.
Nýlega voru verkstæði felld út af lista tryggingafélags er þau
þrýstu á leiðréttingar á samningum sínum með uppsögn þó
ekki væri liðinn uppsagnarfrestur samnings.
Það er álit okkar að tryggingafélögin eigi ekki að skrá sum
verkstæði og önnur ekki á sínar heimasíður og það eigi að
veita bíleigendum sem bestar upplýsingar og val.
Bíleigendur ykkar er valið.
Félag réttinga- og málningarverkstæða