Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 27
BMW Ofurbíllinn hefur þróast mikið í fram- leiðslu og er nú glettilega kraftmikill. að þróun eyðslugrannra dísilvéla og á markaðinn nú eru að koma bílar sem eyða rétt rúmum þremur dísil- olíulítrum á hundrað kílómetrum, t.d. nýr Kia Rio. Þetta eru tölur sem flestum hefði þótt óhugsandi bara fyrir 5 árum. Einnig koma nú fram á markaðinn stórir fólksbílar, hálf- gerðar límósínur, sem eyða ekki nema 5 lítrum á hundraðið. Greinarhöfundur ók nýlega stórum Benz bíl út fyrir bæinn og í túrnum var eyðslan milli 5 og 6 lítrar þó alls enginn sparakstur hafi verið stundaður. Dísilknúnum bílum hefur fjölgað mjög á kostnað bens- ínknúinna og meira að segja í bensín- landinu Bandaríkjunum eru augu framleiðenda og kaupenda að opnast fyrir kostum dísilvéla og þeim fer snarfjölgandi þar einnig, ekki bara í flokki pallbíla, heldur allt niður í smábíla. Með ólíkindum Minni eyðsla bensínvéla hefur reynd- ar haldist í hendur við dísilvélarnar og með ólíkindum hvaða árangri framleiðendur hafa náð á allra síð- ustu árum. Viðnám inni í þeim er allt- af að minnka og nýtni á afli eldsneyt- isins að aukast. Ný tækni við háþrýsta innsprautun eldsneytis hef- ur einnig hjálpað, betri ventlatækni, meiri þrýstingur á loftinntaki og fjöl- mörg önnur vel útfærð tækniatriði hafa skilað feikilegum árangri. Ein vinsæl aðferðin við að minnka eyðslu bíla undanfarin ár er tvinn- tæknin, en þar nýtir bíllinn þá orku sem hann þegar hefur skapað og hleður rafmagni inná rafhlöðu við bremsun og niður brekkur og nýtir síðan þá orku þegar á þarf að halda. Sífellt léttari Varla kemur nú fram í dagsljósið bíll svo að hann sé ekki talsvert létt- ari en forveri hans. Tölur um allt að 300 kg léttari bíla milli ára sjást og t.d. mun næsta árgerð Audi Q7 létt- ast um einmitt þá tölu. Notkun létt- ari efna á stærstan þátt í þessum ár- angri og í tilviki Audi er stærstu skýringarinnar að leita í útskiptum stáls fyrir ál og er búist við að eft- irspurn eftir áli muni vaxa gríðarlega á næstu árum bara vegna bíliðnaðar- ins. Ál er þrisvar sinnum léttara en stál, það ryðgar ekki og það má end- urvinna að fullu og nýtist því aftur og aftur. Einnig hefur aukin notkun kol- trefja spilað rullu í að létta bíla en í leiðinni auka styrk þeirra. Hug- kvæmni í hönnun og grandskoðun hvers íhlutar á einnig sinn þátt í að létta þá. Evrópa og Japan hafa rutt brautina í þessum efnum og Banda- rískir framleiðendur dregið lapp- irnar þar til á allra síðustu árum. Þar á undan höfðu bílar framleiddir í Am- eríku haft tilhneigingu til að stækka og stækka og þyngjast fyrir vikið, enda eldsneytið ódýrt þar til á allra síðustu árum. Plast spilar einnig stærri og stærri hlutverk í ytra byrði bíla og líklegt að ýmsar plastblöndur með mikinn styrk verði notaðar í meira mæli. Blokkir í vélar bíla hafa verið framleiddar úr plastblöndum sem eru sterkari en stálblokkir og vega mun minna. Að miklu er að keppa, þar sem blokkin er gjarnan þyngsti eini íhlutur hvers bíls. Verður 30% léttari Enn er talsvert rými til að létta bíla frekar og þróun næstu ára verður mjög í þá átt. Kæmi ekki á óvart að bílar almennt yrðu 30% léttari en nú innan 5 ár. Audi hefur fullyrt að næsta kynslóð S5 bíls fyrirtækisins muni verða 30% léttari en núverandi bíll, sem vegur 1.723 kg. Næsta kyn- slóð verður 1.207 kg og sá bíll hefur þegar verið framleiddur sem prufu- eintak og verið er að prófa hann og þróa enn frekar. Hann er mest byggður á áli, magnesíum og plast- blöndum og kemur á markað árið 2014. Vonandi eru allir bílaframleið- endur með svipuð plön. finnurorri@gmail.com Dísilknúnum bílum hefur fjölgað mjög á kostnað bensínknúinna og meira að segja í bensínlandinu Bandaríkjunum eru augu framleiðenda og kaup- enda að opnast fyrir kostum dísilvéla og þeim fer snarfjölgandi. MORGUNBLAÐIÐ | 27 - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.