Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 28

Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ ALDREI KALT Í VETUR MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA BÍLASMIÐURINN HF – BÍLDSHÖFÐA 16, 110 REYKJAVÍK – SÍMI 567 2330 – BILASMIDURINN@BILASMIDURINN.IS BÍLASMIÐURINN HF F ólk sem hingað kemur til að fá þjófavarna- kerfi í bílinn er yfirleitt að hugsa um hlutina með forsjálni. Margir eru með búnað í bíln- um sínum fyrir tugi þúsunda og vilja minnka líkur á því að verða fyrir þjófnaði. Hávaðinn sem fylgir þjófavarnakerfi er það mikill að það er öruggt að hann vekur mikla eftirtekt. Þjófar vilja helst geta athafnað sig í skjóli frá umgangi og athygli og því eru bílar með þjófavarnakerfi ekki efstir á óskalista þeirra,“ segir Úlfar Haraldsson sölu- og markaðsstjóri hjá AMG Aukaraf í Kópavogi. AMG Aukaraf hefur lengi verið með umboð fyrir Crimestopper öryggisbúnað í bíla; annars vegar samlæsingar og hins vegar þjófavarnarkerfi en þá eru í pakkanum tvær fjarstýringar, sírena, húdd- rofi, ljósadíóða sem blikkar og búnaður sem skynjar hvort átt sé við bílinn til að mynda með höggi. „Auðvitað kemur mjög illa við fólk ef brotist er inn í bíla þess. Tjónið fer fljótt í talsverðar upp- hæðir. Gefum okkur til dæmis að GPS-tæki og geislaspilari séu tekin úr bíl er það tjón sem er oft nálægt 100 þúsund krónum eða meira og miðað við algenga sjálfsábyrgð tryggingafélaga þarf bíleig- andi sjálfur að bera þann skaða,“ segir Úlfar. „Þá er eftir að kaupa nýja rúðu í bílinn, setja hana í og mögulega lagfæra frekara tjón á bílnum sem getur numið tugum eða hundruðum þúsunda. Gefum okk- ur að rúða sé brotin og fartölva tekin úr bíl þá fylgir slíku mikið fjárhagslegt tjón – auk þess sem með tölvunni glatast gögn sem tæplega verða bætt.“ Filma minnkar líkur Algengt er að þjófavarnabúnaður í bíla líkt og fæst hjá AMG Aukaraf kosti á bilinu 55 til 65 þúsund ís- ettur. Þá hafa margir einnig brugðist við þeim vanda sem fylgir innbrotum í bíla með því að setja dökkar filmur á rúður bílsins sem minnka mikið lík- ur á því að þjófar komi auga á eitthvað bitastætt inni í honum. sbs@mbl.is Forsjálni ræður ferðinni með þjófavörn Þjófar vilja athafna sig í skjóli frá umgangi og at- hygli. Bílar með varn- arkerfi ekki á óskalista þeirra, segir Úlfar Guð- mundsson hjá Aukaraf AMG í Kópavogi. G PS-leiðsögutæki í leigu- bílnum er þarfaþing. Þeir sem eru búnir að vera lengi í þessari útgerð segjast að vísu vilja halda sér í æfingu og leggja á minnið hverj- ar leiðirnar eru. Sjálfum finnst mér hins vegar alveg ómissandi að hafa svona tæki; enda hefur borgin stækk- að mikið á síðustu áratugum og þeirri þróun hefur maður ekki fylgt eftir þannig að maður rati í hverja einustu götu,“ segir Bragi Guðmundsson leigubílstjóri. Tæp tíu ár eru síðan Bragi hóf störf við leigubílakstur. Gjaldmælir og talstöð er staðalbúnaður í sér- hverjum bíl en fleira hefur bæst við á undanförnum árum sem auðveldar bílstjórum starfið. Leiðsögutækin ber þar hæst og er Garmin líklegast þekktasta merkið. Frá núllpunkti í Austurstræti „Í sjálfu sér er ekki tiltakanlega flók- ið að rata um Reykjavík. Aðalstrætið er núllpunktur og út frá því liggja all- ar leiðir samkvæmt þeirri einföldu reglu að oddatölur húsa eru jafnan á vinstri hönd. Í eldri hverfum borg- arinnar, til dæmis Norðurmýri og Fossvogi, eru götur í stafrófsröð og auðvelt að finna þær. Í nýrri hverfum er ekki jafn gott skipulag á þessu og þá er nánast ómissandi að hafa leið- sögutæki. Ég var lengi vel alltaf með símaskrá með kortunum góðu í hlið- arhólfi í bílstjórahurðinni. Núna hef- ur tækið hins vegar leyst símaskrána af og ég gæti varla verið án þess,“ segir Bragi sem bætir við að sér- staklega reynist tækin vel á kvöld- ferðum þegar rökkvað er orðið. Þá sé vandinn ekki annar en slá inn götuheiti og hús- númeri og tækið beinlín- is leiði menn á áfanga- stað. Ódýrasta útgáfa GPS- leiðsögutækja kostar um það bil 30 þúsund krón- ur. Tækin eru þá með kortum af Evrópu allri – þar með töldu Íslandi – og hægt er að skipu- leggja ferðir mjög ná- kvæmlega, finna út stystu og hagstæðustu leiðina og svo mætti áfram telja. Í gegnum allar flækjurnar „Að hafa þessi tæki við höndina auðveldar öll ferðalög til mikilla muna,“ segir Stefán Ásgrímsson, rit- stjóri hjá Félagi íslenskra bifreiða- eigenda. Hann var á síðasta ári í Dan- mörku þaðan sem hann ók um 1.200 kílómetra suður Þýskaland til Münc- hen. Segist nokkrum sinnum hafa farið leiðina áður og því þekkt hana í grófum dráttum. Tækið hafi hins veg- ar þegar á reyndi komið sér ákaflega vel. „Ég bjó í austurhluta München og fór nokkra daga í röð alltaf í vest- urhlutann þar sem ég var að kynna mér starfsemi þýsks systurfélags FÍB. Umferðarþunginn í hinni þýsku stórborg er mikill og þá kom sér vel að vera með svona tæki, sem leiddi mig í gegnum allar flækjurnar og gaf mér nákvæma staðsetn- ingu svo að segja upp á punt og prik. Leiddi mig í gegnum þykkt og þunnt. Og hið sama gerir tækið hér heima. Ég þekki sáralítið til í úthverf- unum til dæmis í Grafarholtinu þar sem eru Prestastígur, Kirkjustétt og Vínlandsleið, slóðir sem ég þekki afar lítið. Ég væri hins vegar afskaplega vel settur með leiðsögutækið í bílnum skyldi ég þurfa að álp- ast þangað,“ segir Stefán Ás- grímsson. sbs@mbl.is Maður ratar ekki um hverja götu Leiðsögutækin góð þeg- ar rökkvað er orðið. Ómissandi fyrir leigubíl- stjóra og fyrir ókunnuga í úthverfunum. Garmin er góður. Reynast vel í Evrópuferðum í þungri umferð um stórborgir í Þýskalandi. Alltaf með símaskrá með kortunum góðum í hlið- arhólfi í bílstjórahurðinni. Núna hefur tækið hins veg- ar leyst símaskrána af og ég gæti varla verið án þess. Stefán Ásgrímsson Morgunblaðið/Sigurgeir S. Tækni „Alveg ómissandi," segir Bragi Guðmundsson leigubílstjóri sem finnst leiðsögutæki hafa létt sér starfið til muna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.