Líf og list - 01.12.1951, Side 13

Líf og list - 01.12.1951, Side 13
telja þó, að hann nái hæst sem ljóðskáld — sá sem þetta ritar er á þeirri skoðun — og aðrir meta mest skáldsögur hans og smásögur. Pár Lagerkvist fæddist árið 1891 í Wáxjö, með- alstórum bæ í Smálöndum. Faðir hans, sem kom- inn var af frómu bændafólki, var starfsmaður þar á járnbrautarstöðinni. Uppvaxtarárum sínum hefur Lagerkvist lýst að nokkru í bókinni Gást hos verkligbeten (1925) og gefur titill bókarinnar nokkuð til kynna, hverjum augum höfundurinn lítur æskuár sín. 1911 tók hann stúdentspróf og birti ári síðar fýrstu bók sína, Mánniskor, sem hann þó varla vill kannast við lengur. Árið 1913’ dvaldi hann um hríð í París. Þar vai'ð hann fyrir sterkum áhrifum af málaranum Picasso, og þær fagurfræðilegu kenningar, sem hann setur fram í bæklingnum Ordkonst och bildkonst, sem kom út þetta ár, eru mjög mótaðar af kúbismanum. En fyrsta heimsstyrjöldin hafði djúptæk áhrif á hinn unga, viðkvæma rithöfund og breytti við- horfi hans til lífsins og til listar sinnar. Með fyrsta leikriti sínu, Sista mánniskan (1917) og með þeim fjórum einþáttungum, sem hann birti, ásamt ljóðum, smásögum og gagnmerkri ritgerð um leiklist, í bókunum Teater (1918) og Kaos (1919) ryður hann braut í Svíþjóð þeim expressí- onistíska stíl, sem í Þýzkalandi hafði siglt í kjöl- far fyrstu heimsstyrjaldarinnar, en var fyrirboð- aður 1 þeim leikritum, sem Strindberg skrifaði eftir inferno-árin. Viðfangsefni Lagerkvists í þessum verkum, eins og raunar í mörgum verk- um hans síðar, eru „eilífðarmálin", meining og tilgangur mannlegs lífs. Hann er næsta bölsýnn á þessum árum. í einni af smásögunum í Kaos lætur hann söguhetjuna spyrja í örvilnan þann, sem öllu stýrir: „Fyrirgefið, en þér munduð víst ekki vilja segja mér hvers vegna ég hefi lifað“? Og sá, sem spurður er, svarar eftir nokkra um- hugsun. „Það má Djöfullinn vita“! En þótt Lag- erkvist hafi verið kallaður túlkur angistarinnar missir hann aldrei trúna á þá oftlega aumkunar- verðu veru, sem kallast manneskja. „Jag vördar mánniskan, föraktar livet“ var trúarjátning hans á þessum árum. Og trú hans á manneskjuna og hið góða í henni virðist hafa vaxið með aldrinum. Það er uppbyggilegt að bera saman lífsskoðun hans í Kaos og þá lífsskoðun, sem kemur fram í fyrirlestri, sem hann flutti skömmu eftir aðra heimsstyrjöldina um fyrirrennara sinn Tegnér, á 100 ára ártíð hans. Fá skáld hafa þó hlífðarlausar en Lagerkvist flett ofan af meinsemdum mannlegs eðlis og ber- legar lýst þeim ófrjóleik og andmennsku, sem sköpuðu framgangi nazismans skilyrði, enda sá hann snemma fyrir, hvað verða mundi, og tók sína afstöðu samkvæmt því. Árið 1933 kom út skáld- saga hans Bödeln (snúið upp í leikrit sama ár), ein hin áhrifamesta og spámannlegasta prédikun gegn nazismanum, sem skrifuð hefur verið. Skyldust þessari bók af síðari bókum Lagerkvists er Dvárgen (1945), en efnið í þá bók sækir hann í Sturlungaöld ítalíu, Renaissancetímabilið. Síð- asta bók hans, Barabbas (1950) virðist mér líkj- ast meir skrifum hans fyrir 1930. Við mætum þar aftur spyrjandanum um rök tilverunnar og meiningu. Þessi bók hefur farið sigurför víða um heim og m. a. vakið mikla athygli í Frakklandi. Mig hrífur hún mest vegna máls og stíls, og ég hygg, að miklu erfiðara sé að þýða hana en í fljótu bragði gæti virzt og gildir þetta raunar um mörg af ritum Lagerkvists. (Þess má geta í sambandi við Barabbas, að eitt íslenzkt skáld, Davíð Stefánsson, hefur tekið sér sama viðfangs- efni í smásögu, sem birtist í Rétti 1927. Er ekki ófróðlegt að bera saman viðhorf þessara tveggja skálda til þessa viðfangsefnis, sem raunar mörg önnur skáld hafa spreytt sig á). Lagerkvist hefur skrifað margar smásögur og beitir hann oft í þeim bitru háði, sem minnir á Swift. Eitt þessara smásagnasafna hefur hinn táknandi titil Onda sagor (1925) og er smásaga sú, sem hér fer á eftir, úr því safni. Hann hefur og skrifað mörg leikrit. Misjafnlega tekst honum upp í þeim frá leikrænu sjónarmiði, og óneitan- lega eru sum þeirra næsta langdregin og sviplítil á sviði. Tilkomumest mun leikritið Konungen (1932), sem gerist í Babýlon hinni fornu og fjall- ar um hið gamla vandamál, hversu dýru verði megi kaupa réttlátara þjóðfélag. Beztu leikrit hans eru þó e. t. v. þau, sem f jalla um hversdagslegar miðlungsmanneskjur í hversdagslegu umhverfi. Honum tekst stundum meistaralega að tjá djúp- hugsaða lífsskoðun sína með hárnæmt raunsæj- um lýsingum á slíku fólki. Hetjur þessara leik- rita eru oft þeir, sem eru „trúir yfir litlu“. Eitt leikrita Lagerkvists, Jónsmessudraumur á fá- tækraheimilinu (Midsommardröm i fattighuset), var leikið hér 1 Iðnó haustið 1946, undir stjórn Lárusar Pálssonar. Þetta leikrit er ekki meðal veigameiri leikrita skáldsins, en er aðgengilegast og elskulegast þeirra, eins konar innskot, krydd- að góðlátlegri kímni, sem Lagerkvist sjaldan Framh. á bls. 23. LÍF og LXST 13

x

Líf og list

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.