Líf og list - 01.12.1951, Page 19
Engilberts
sýnir
JÖN ENGILBERTS hefur nýlega haldið sýn-
ingu á fjölmörgum myndum í sýningarsal Mál-
arans við Bankastræti.
Gaman er að athuga, að þar voru á ferð mun
geðfelldari verk en þau, er málarinn birti á heild-
arsýningu íslenzkrar myndlistar (Noregssýning-
unni) í vetur, sem leið. í þetta sinn kom Engil-
berts skemmtilegar fyrir sjónir, sýndi nýjar hlið-
ar í tækni og kunnáttu. Þar var ekkert olíumál-
verk sýnt, en allflestar myndanna gerðar með lit-
krít, vatnslitum og tempera; auk þess fjöldi rad-
eringa, svartkrítarmynda, tréskurðarmynda og
pennateikninga. Sýningin bar þess glögg merki,
að Jón hefur að baki sér langa og víðtæka reynslu
í ýmsum greinum svartlistar. Honum tekst oft
að skapa þægilega stemningu bæði 1 radering-
um og tréskurðarmyndum sínum, en þó hættir
honum til að útflúra þær um of á sama hátt og
mörg olíumálverk sín. Berlega mátti sjá, að Engil-
berts hefur einlægan áhuga á manninum, en tam-
ar virðist honum að sjá hann í erótísku ljósi en
lýrisku. Erótík og lýrikk eru óskyldar hvor ann-
arri í list, þó að þær fari vel saman í lífinu —
stundum! Oft veður hin fyrrnefnda svo hastar-
lega uppi í myndum Engilberts, að það er bók-
staflega ókleift að sjá annað í þeim en lýsing
(demonstration) af 100% holdlegum ástum manns
og konu. Einkum hættir Engilberts til að gera
konur sínar að hreinræktuðum kynferðisverum,
svo að nærri stappar, að hann missi alveg tökin
á listrænu viðfangsefni myndsmíðarinnar, gleymi,
að myndin sé gerð vegna myndarinnar, en ekki
vegna fryggðarinnar.
Eftir á að hyggja leið manni þó alls ekki illa
innan um þessar myndir: Þær brögðuðust vel
þrátt fyrir yrkisefnið: munaðaróra rómantísks
heimsmanns. Engilberts er hagur, en ekki skáld,
og þaðan af síður lýriskt skáld á borð við Garcia
Lorca eða Jónas Hallgrímssson eins og Alþýðu-
blaðið kvað á dögunum. Það getur líka verið
óvarlegt að rugla saman myndlist og bókmennt-
um, ekki sízt þegar svona stóð á.
GLEÐILEG JÓL!
Ásgeir G. Gunnlaugsson & CO.
GLEÐILEG JÓL
og farsælt nýtt ár!
Davíð S. Jónsson & CO.
GLEÐILEG JÓL!
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
GLEÐILEG JÓL!
Verzlunin Björn Kristjánsson
KONKÁÐ Ó. SÆVALDSSON
Endurskoðunarskrifstofa
Löggiltur fasteignasali
Austurstræti 14
Viðtalstími kl. 10—12 og 4—6
Sími 3565
I
LÍF og LIST
19