Líf og list - 01.12.1951, Qupperneq 23

Líf og list - 01.12.1951, Qupperneq 23
mæðrum, var í höndum HILD- AR KALMANS og man ég ekki eftir, að hún hafi nokkurn tíma sýnt jafn góðan leik. Ef til vill lætur henni betur leikstjórn Lárusar Pálssonar en Indriða. Framsögn hennar var ágæt, bæði hljómmikil og skýr og hún :skildi hlutverk sitt til fulls, en misskilið hlutverk veldur einatt tvískinnung í leik. Og misskiln- ingur á hutverk er því miður of algengt fyrirbrigði á íslenzku leiksviði. Snyrtidömuna ungfrú Dennis lék HÓLMFRÍÐUR PÁLS- DÓTTIR. Hún sýndi góðan leik í Flekkuðum höndum en að þessu sinni var hún undir með- allagi. Hún á enn talsvert mikið eftir að læra í látbragðsleik. Hún er óviss og stirð í hreyf- ingum og raddbeitingin einhæf. Þó virðist hún hafa hæfileika, þótt á takmörkuðu sviði sé. H j ónaskilnaðarsérf ræðingurinn A. B. Rahams var leikinn af JÓNI AÐILS. Lögfræðingnum er hjónaskilnaður aðeins tækni- legt atriði og tóku leikdómarar blaðanna sérstakiega fram, hve vel honum hefði tekizt að túlka hinn steingerva lögfræðing. Að mínu viti var hann of mannleg- ur til að vera hlutverki sínu trúr. Ef við berum hann saman við hinn nýlátna franska leikara Louis Jouvet, þá verður augljóst að hann hefði náð sterkari á- hrifum við að verða enn kald- ranalegri. Hlutverk hans frá höf- undar hendi benti svo eindregið í þá átt, að ekki verður um villzt. Hins vegar er „stíll“ eða mann- gerð sterkasta hlið Jóns og mátti einnig teljast góð í þess- um leik, þó að hann hafi oft skapað eftirminnilegri persónur áður. Framsagnarstíll hans að þessu sinni var helzt til „heima- tilbúinn“ og ekki nógu sannur. Þótt einkennilegt megi virðast, leyfist leikritahöfundi að ýkja persónur sínar en leikaranum ekki. Hann er aðeins túlkandi hlutverksins. Aðstoðarstúlka hans og tækni- legur „hjónadjöfull“ „innan sið- samlegra takmarka“ var ARN- DÍS BJÖRNSDÓTTIR og átti hún að hafa gegnt því starfi x 15 ár. Eftir að hafa séð leikinn furðaði ég mig á því, að ein- hverjum leikdómara, einum eða fleiri, fannst hér skakkt valið í hlutverk. I raun og sannleika bar leikur Arndísar af hinum. Gervið var svo sem bezt var á kosið og leikur hennar með á- gætum, Arndís er óvenjulega fjölhæf leikkona, enda löngu viðurkennd. Yngri leikkonur okkar eiga eftir að bæta möi'g- um þumlungum við sig til að ná henni. Arndís er síung í leik sin- um og slakar aldrei á. Sumum leikurum hættir við að fleyta sér meira og minna á tækni, þegar hugmyndaflugið þverr og skap- hiti, innlifun og einbeiting vilja ekki láta að stjórn. Arndís Björnsdóttir sleppir aldrei tök- um á þessum ómissandi þjón- ustuöndum hvers góðs leikara. Hún lætur sér ekki nægja 1 dag að lifa á velheppnaðri tækni frá í gær. Hún er alltaf að skapa. Það er einkenni og aðall hins sanna leikara. Sv. B. LAGERKVIST Framh. af bls. 13. bregður fyrir sig í ritum sínum, en sem ekki kemur á óvart þeim, er einhver kynni hafa af þessum elskulega, en hlédræga manni. Hinn yfir- lætislausi einfaldleiki og uggvæni undirhreimur er sameiginlegt mörgum öðrum leikrita hans. Vel mun Lagerkvist hafa líkað uppsetning leikrits- ins hér, að svo miklu leyti sem hann hefur getað kynnt sér hana af myndum og öðru, því mér er kunnugt um, að hann bauð Lárusi síðar að stjórna hér í útvarpinu nýjum leikþætti eftir sig, sem hvergi hafði þá verið leikinn, ekki einu sinni í heimalandi hans, en það er ekki hversdags við- burður að erlend stórskáld bjóði íslendingum upp á slíkt. Aðalsmerki Lagerkvists sem ljóðskálds er lát- laus einfaldleiki, kliðmýkt og klassísk heiðríkja. Gott dæmi um kveðskap hans er ljóð það, sem Magnús Ásgeirsson hefur þýtt, og byrjar á ljóð- línunum: Sií gatu, er citin þtí gengttr til grýttra auðna ber, en ætti að tákna hið dýpsta í lífsskoðun Lager- kvists með nokkrum Ijóðlínum eftir hann, yrðu það eflaust eftirfarandi ljóðlínur (byrjun á kvæði, sem ég vona að Magnús eigi eftir að þýða), en boðskapur þeirra gengur eins og rauður þráð- ur í gegnum flest hans verk: Vart enda hem 'dr kdrleken. F'órskingrade, betryckta vi lever alla utan den, dr trdd ur markcn ryckta. Hon 'dr vdr goda, str'dnga mor som livet outgrnndligt stor, var sanna varld, vdr verklighet, dct enda vissa som vi vet. Allt annat 'dr blott villa, kan ej vdr oro stilla. LÍF og LIST 23

x

Líf og list

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.