Svart á hvítu - 01.10.1978, Page 3
Svart á hvitu
3. tbl. 2. árg. 1978 — Haust
Útgefandi:
Gallerí Suöurgata 7
101 Reykjavík
Auglýsingasími: 2 92 93
Áskriftasími: 1 54 42
Ritstjórn:
Árni Óskarsson
Friðrik Þ. Friðriksson
Steingrímur E. Kristmundsson
Örn Jónsson
Örnólfur Thorsson
Ábyrgðarmaður:
ÞórleifurV. Friöriksson
Uppsetning og frágangur:
Þórleifur V. Friðriksson
Árni Óskarsson
Ljóssetning:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Prentun:
Prentsmiöjan Oddi hf.
Filmuvinna:
Korpus hf.
Bókband:
Sveinabókbandið
Forsíðumyndin er eftir Peter Schmidt.
Til lesenda
Með þessu tölublaði hefjum við öfluga útbreiðslu-
herferð. Raunar kemst útgáfa tímaritsins ekki á
fastan fjárhagslegan fót fyrr en áskriftir standa
undir kostnaði og ekki þarf að treysta á guð og
gæfuna í lausasölu. Að því er stefnt með þeirri út-
breiðsluherferð sem nú stendur yfir og við heitum á
alla þá sem hugsa hlýlega til tímaritsins að bregð-
ast snarlega við og leiða vinum og vandamönnum
ritið fyrir sjónir og hvetja þá til að gerast áskrifend-
ur. Þar má enginn liggja á liði sínu. Ekki hefur enn
reynst unnt að greiða ritlaun fyrir það efni sem
berst og þeir sem vinna við útgáfuna hljóta enga
umbun síns erfiðis í veraldlegum gæðum þessa
heims.
Meðal nýmæla í þessu hefti má telja efni sem
varðar leiklist — grein um ítalska leikskáldið Dario
Fo og viðtal við tvo félaga Alþýðuleikhússins. Nú
ættu áhugamenn á þessu sviði að sletta bleki á
blað og senda okkur efni.
Efnisyf irlit
Erna Indriðadóttir:
Enn lifir Alþýðuleikhúsið .................. 2
Guðbrandur Siglaugsson:
Tvö Ijóð ..................................... 5
Jórunn Sigurðardóttir:
Leikhús Dario Fo ............................. 6
Þórarinn Eldjárn:
Þrennt úr fórum höxa (Ijóð) .................. 12
Megas:
Plaisir d’amour 2 (smásaga) .................. 15
Gallerí tímaritsins .......................... 23
B.S. Johnson:
Bókhald Krissa Malry ......................... 31
Pete Brown:
Ljóð ......................................... 37
Jan Zumbrink:
Sólarathugunarstöð Robert Morris ............. 38
Roger McGough:
Ljóð ......................................... 40
Gestur Grímsson:
„Hundingsspott" .............................. 41
Böövar Björnsson:
Amicitia (Ijóð)............................... 49
Walter Benjamin:
Listaverkið á tíma fjöldaframleiðslu sinnar .. 50
Margvísleg starfsemi er fyrirhuguð á vegum
gallerísins í vetur. Af listamönnum sem sýna á
næstunni má nefna Endre Tót, ,,Strauma ’68“
(Freddy & the Fighters), Guðrúnu Erlu, Kristin
Guðbrand Harðarson og Svölu Sigurleifsdóttur.
Ennfremur setur galleríið upp samsýningu í Lundi í
Svíþjóð í desembermánuði. Þá hefur kvenna-
hljómsveitinni The Feminist Improvising Group
verið boðið hingað og heldur hún tvenna tónleika í
Reykjavík í nóvembermánuði. Takist vel til með þá
hljómleika er fullur hugur í mönnum að bjóða
hingað fleiri tónlistarmönnum.
Að lokum viljum við geta þess að áskrifendur
erlendis verða nú að greiða kr. 5000 í áskriftargjald
(fyrir 4 tbl.) vegna mikils sendingarkostnaðar.
Skorum við á alla áskrifendur að greiða áskriftar-
gjöld sín hið snarasta.
Ritstjórn.