Svart á hvítu - 01.10.1978, Page 33
Bókhald Krissa Malry
III.—V. kafli skáldsögunnar
Aðalsteinn Ingólfsson þýddi
Myndskreyting: Werner Wellsandt B. S. Johnson
B. S. Johrtson er fæddur í London árið 1933 og
fyrirfór sér í nóvember 1973. Hann vann sem skrif-
stofumaður í banka en hóf nám í enskum bók-
menntum 23 ára gamall við Lundúnaháskóla og
hlaut verðlaun fyrir fyrstu skáldsögu sína ,,Travell-
ing People“ og Ijóðabók árið 1962. Alls skrifaði
Johnson sjö skáldsögur og tvær Ijóðabækur, auk
þess sem hann gerði kvikmyndir fyrir sjónvarp,
aðallega heimildamyndir auk tveggja kvikmynda
um byggingalist og hlaut ein kvikmynda hans fyrstu
verðlaun á stuttfilmuhátíðinni í Melbourne árið
1968. Tvö leikrit eftir Johnson hafa verið flutt á sviði
og ritgerðasafn eftir hann kom út undir nafninu
,,Aren't You Rather Young To Be Writing Your
Autobiography“ rétt fyrir dauða hans.
Það er erfitt að lýsa ritlist Johnsons í stuttu máli.
Hann er umfram allt drepfyndinn og kímnigáfa
hans er bæði ísmeygileg og fjarstæðukennd, en þó
Þriðji kafli —
Farvel til móður Krissa
Krissi bjó um þessar mundir með móður sinni í
námunda við Hammersmith brúna við Mall veg-
stubbinn, a.m.k. það sem eftir var af honum að
ýmsum framkvæmdum við nálæga hraðbraut og
vegamót loknum.
Þegar hann kom heim til sín þennan dag (og nú
er tíminn orðinn nokkuð samfelldur í bókinni) reis
móðir Krissa á fætur og bauð hann velkominn.
Síðan sagðist henni á þessa leið:
„Sonur sæll: í þágu þessarar skáldsögu hef ég
nú verið móðir þín síðastliðin átján ár og fimm
mánuði akkúrat, — ef gera má ráð fyrir að þú hafir
komið undir eftir miðnætti. Þar sem þú hefur nú
dottið niður á Stóra Hugmynd, er hlutverki mínu í
raun og veru lokið".
Móðir Krissa þagnaði sem snöggvast. Síðan hélt
hún áfram.
,,Ekki er ég að kvarta yfir hlutskipti mínu. Ég er
hæstánægð með þaö sem ég hefi áorkað um dag-
ana. Ég hef alið þig upp án þess að stríðala þig og
matreitt ofan í þig án þess að taka tillit til þeirra
mannúðleg í hæsta máta. Samuel Beckett kallaði
Johnson ,,sérstakan hæfileikamann á ritvellinum
og verðskulda stórum meiri athygli en hann hefur
hlotið hingað til“.
,,Bókhald Krissa Malry“ (Christie Malry’s Own
Double Entry) var fjórða skáldsaga B. S. Johnson
og fjallar um blókina Krissa sem ætlar sér að kom-
ast áfram í heiminum, aðallega með hjálp peninga.
Til að vera sem næst peningum fer hann að vinna í
banka, þar sem hann lærir bókfærslu og fær Stóra
Hugmynd. Hún felst í því að bókfæra allt það sem
hann á inni hjá veröldinni. Hann byrjar smátt, með
því að stela eyðuþlöðum, brjóta götuljós, sparka í
hunda en endar á því að sprengja skrifstofu Skatt-
stjóra íloft upp og byrla 20.479 Lundúnabúum eit-
ur. Þegar hér er komið sögu, er Krissi að því kom-
inn að leggja út á lífsins veg fyrir alvöru.
A. I.
matareitrana sem hafa verið í tísku gegnum tíðina.
Þeir hlutar líkama míns sem forboðnir og bannaðir
hafa verið undanfarinn aldarfjórðung, hafa ekki
verið þér opinberir síðan þú varst þriggja ára. Án
ektamaka hef ég togað þig úr grasi og vanið þig á
að leiða eigi hugann að föðurmyndinni þinni, án
þess þó að skaða það sem nefnt er „sálarheill" þín.
Ég er stolt af því sem þú ert, ef slíkar tilfinningar
hafa þá einhverja þýðingu. Ekki hef ég að heldur
orðið þess valdandi að persónuleiki þinn litaðist af
þeim karlmönnum sem ég hefi leyft að stíga innfyrir
þröskuld minn og smeygja sér inn í hið allra
heilagasta (því eigi er ég tilfinningalaus drumbur).
Þetta rósamál nota ég, Krissi minn, til að valda þér
ekki kinnroða, því venjulega eru synir orðnir þrí-
tugir áður en þeir geta rabbað um kynferðismál við
mæður sínar. Og önnur umræðuefni líka, finnst
mér stundum (þegar mannhatur sækir að mér).“
Aftur þagnaði hin elskulega móðir, hugsaði sig
um og sagði svo:
„Ég leyfði þér jafnvel að hafa húsdýr, köttinn, til
að örva í þér einhvers konar ástúð, þótt Austri hefði
óneitanlega í för með sér aukna vinnu fyrir mig, við
aö flá og brasa mýs og önnur smákykvendi sem
hann færði okkur reglulega. Til allrar hamingju gaf
SVART Á HVÍTU
31