Svart á hvítu - 01.10.1978, Síða 65
Glæpasögur
hinna
vandlátu
Sagnaflokkurinn „Skáldsaga um glæp" hefur
farið sigurför um heiminn og sögurnar alls staðar
orðið metsölubækur, enda afburða vel gerðar, og
höfundarnir, Maj Sjöwall og Per Wahlöö, hlotið
heimsfrægð fyrir. í sagnaflokknum eru 10 bækur
og hafa þrjár þeirra þegar komið út i íslenskri
þýðingu Práins Bertelssonar, rithöfundar.
Aðalpersónan ■ sögunum öllum er lögreglu-
rnaðurinn Martin Beck sem á sinn manneskjulega
hátt er svo ólíkur hinum töframannslegu lögreglu-
mönnum sem skipað hafa öndvegi í glæpa-
reyfurum hingað til.
Morðið á ferjunni kom út í fyrra og hlaut ágætar
undirtektir. Þar segir frá rannsókn sem hleypt er af
stokkunum vegna þess að konulík finnst í skipa-
skurði. Upplýsingarnar sem Martin Beck hefur á
að byggja við rannsókn málsins eru varla aðrar en
þær að konan hefur verið 27-28 ára og var með
fæðingarblett á vinstra læri. Leitin að morðingj-
anum tekur yfir hálfan hnöttinn og ....
Maðurinn sem hvarf kom út í sumar og fjallar
um leit Martins Beck að blaðamanni, sem horfið
hefur sporlaust í Búdapest. Við leitina nýtur Beck
síður en svo velvilja yfirvaldanna í Ungverjalandi,
en samt.
Maðurinn á svöiunum er að koma út þessa
dagana. Þar á Martin Beck í höggi við harðsvír-
aðan barnamorðingja, og satt best að segja er hún
ekki síst þessi saga um manninn á svölunum, sem
Bækurnar eru bæði tf/ innbundnar Og í vasabókar-
brotí og er hægt að fá þær í vasabökarbroti i
blaðsöluturnum um land altt, innbundnar í
bókabúðum.
Mál og menriing
Laugavegi 18
Reykjavík
MáStölMk
PI?M«HUÖÖ
jKÁHBíGAU^GtííP
Madunnn
,sem
nvar
*
stöM«m
IjWÆHlDÖ
Maðurinn ó svölunum