Austurland


Austurland - 23.12.1984, Síða 1

Austurland - 23.12.1984, Síða 1
Norðfjörður Þú ennþá átt þinn fagra fjallahring minnfjörður tœr með spegilgljáann mjúka. Þig teygjast þeirra armar allt um kring og ásýnd þína mjúkum fingrum strjúka. Þú brosir enn eins blítt og áður fyrr svo birtu slœr á hlíðarvanga grœna. Þú liggur sem í blíðum blundi kyrr og bláir tindar niður í djúp þín mœna. Og börn þín ennþá brauð sitt fá hjá þér. Á brjóstum þínum rœttust vonir margar. Til manndómsþroska ýmsir ólust hér, og enn er sótt á dýpstu mið til bjargar. Á smáum fleytum fjarðarmiðum á hinn fyrsti vísir óx til nýrra dáða. Og nú má þína glœstu sigling sjá, og sífellt stefnir fram til heillaráða. María Bjarnadóttir.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.