Austurland


Austurland - 23.12.1984, Side 13

Austurland - 23.12.1984, Side 13
JÓLIN 1984. 13 fyrir utan hótelið annar én Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ? Við urðum að sjálfsögðu hissa að sjá hann þarna, þó að vísu væri það ánægjulegt. Þegar við spurðum hann að því, hvernig á ferðum hans stæði, fengum við það svar, að hann væri í boði Verkalýðs- sambandsins og kæmi þarna við á leið til Sosi, þar sem hann myndi dvelja einhvern tíma, en síðan átti hann að vera á ein- hverri ráðstefnu ásamt fleirum í Sovét. Eftir að hafa talast við smástund, var ákveðið að hittast á næturklúbbnum um kvöldið. 15. júní var síðasti dagur okkar Eyjólfs í Tbilisi. Þá fórum við í heimsókn í Vináttuhúsið með til- heyrandi ræðuhöldum. Síðan var farið til borgarstjórans í veislu. Þar vorum við svo í góðu yfirlæti. Borgarstjórinn sagði okkur ýmis- legt frá borginni og uppbyggingu hennar. Til dæmis gat hann þess, að 1 Yi milljón rúblna hefði verið sett í að lagfæra og endurbyggja gömul hús, ennfremur hefðu verið lagðar 10 milljónir rúblna í samgöngukerfi borgarinnar. Um kvöldið var svo sest inn á næturbarinn í síðasta skipti að þessu sinni. En kannski á ég eftir að koma þama aftur og þá væri hægt að rifja upp gömul kynni. Að morgni 16. júní vorum við snemma á fótum, því að nú var dvöl okkar á Hótel Ivería lokið. Fjög- urra daga dvöl í Tbilisi var lokið. OLfUSAMLAG ÚTVEGSMANNA NESKAUPSTAÐ SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA NESKAUPSTAÐ Samvinnufélag útgerðarmanna og Olíusamlag útvegsmanna Neskaupstað © 7133 & 7215 óska félagsmönnum og viðskiptamönnum gleðilegra jóla SOÚNg í Grúsíu og er það starfrækt þar enn í dag. Klaustrið er kennt við hina heilögu Nínu, sem dvaldi í þesu þorpi árin 333 - 338 og stofnaði klaustrið ásamt 13 munkum og nunnum. Þau kristn- uðu síðan landið á nokkrum árum, svo að það var talið alkrist- ið, þegar Nína dó, árið 338. Þama er líka að finna næst- elstu kristskirkju í veröldinni, en sú elsta mun vera í Armeníu. Svo ekki hafa nú bévaðir bols- arnir útrýmt öllu, sem minnir á kirkju og kristindóm. Við fengum leyfi prestsins til að fara inn í kirkjuna og skoða hana. Á meðan við vomm stödd þama í kirkjunni, barst til eyrna okkar söngur, sem virtist koma að baki okkar. Og mikið rétt, þama baka til við okkur reynd- ist vera herbergi. Þaðan kom söngurinn. Eftir stutta stund birtist prestur ásamt ungu pari, sem var með smábam. Þau höfðu sem sagt verið að láta skíra. En þarna inn, sem skírt var, skildist mér, að ekki færi nema söfnuðurinn. Eftir að hafa skoðað okkur um í þorpinu, fórum við aftur á samyrkjubúið, þar sem biðu okkar dekkuð borð með alls konar kræsingum, auðvitað ásamt nógu að drekka, þó að vesalingur minn hafi aldrei kunnað að meta þær guða- veigar. Þegar við komum að fordyri hússins, blöstu við sjónum okkar stórar myndir af þeim kempum Lenin og Stalín. Ég get þessa hér, því að það er ekki algeng sjón nú til dags, að sjá þeim félögum stillt upp saman í Sovét. Við komum í byggðasafn þorpsins. Þar mátti sjá margar fornminjar, sem ég kann ekki nöfnum að nefna. Þarna voru vopn og verjur aftan úr grárri forneskju. Það var ekki fyrr en kom fram á 20. öldina, að mað- ur fór að berja augum eitthvað, sem maður kannaðist við. Meðal annars sá ég þarna mynd af konu, sem mér fannst ég kannast við úr bók Gunnars Benediktssonar, Bóndanum í Kreml, að væri Katrín Djuga- svili, móðir Jóseps Djugasvili, sem síðar fékk nafnið Stalín. Ég hnippti því í Eyjólf og sagði: „Blessaður spurðu, hver þetta sé.“ Hann spurði for- stöðukonuna að þessu og fékk þetta svar: „Þetta er kona, sem þjóð okkar stendur í mikilli þakkarskuld við. “ Þá vissum við það. Þetta svar sagði okkur auðvitað mikið meira en löng ræðuhöld. Katrín Djugasvili, móðir Stalíns. Þarna sáum við líka myndir af fulltrúum á flokksþinginu 1935. Þar mátti kenna þá félaga Stalín, Molotov og Kalinin. Eftir að hafa skoðað þetta merka safn, fórum við í smá- göngutúr um samyrkjubúið. Þar mátti víða sjá miða á trjánum með áletrunum undirrituðum af J. Stalín. Þetta munu hafa verið hvatningar til fólks að vinna vel. Vinnan göfgar manninn o. s. frv. Þetta fólk hafði ekki gleymt Stalín og því, sem hann hafði verið þjóð sinni. Við kvöddum svo þetta ágæta fólk og héldum aftur til Tbilisi. Þegar við komum að hótel- inu, hver stendur þá ekki þama Ein af mörgum kirkjum í Grúsíu.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.