Austurland


Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 23

Austurland - 23.12.1984, Blaðsíða 23
JÓLIN 1984. 21 Valgeir Sigurðsson: Um jólasveina og fleira fólk Teikningar eftir Elías Þorstein Elíasson, 9 ára Viðlag: sést á reiki einn og einn um sig mjór og beinn sem teinn angalangur uppábúinn jólasveinn. Hér er kominn einhver einn agnarlítill jólasveinn eða bara er það kannski ekki neinn? Sést á reiki . . . Hingað saman töltu tveir, toginleitir voru þeir. Um þá jóla- sveina ekki segist meir. Sést á reiki . . . Úti sá ég þramma þrjá. Það er víst þeir fóru hjá. Tandurhreinir ekki virtust til að sjá. Sést á reiki . . . Fjórir saman fara veg, fylking sú er grunsamleg. Eitt er víst að þar er hvorki þú né ég. Sést á reiki . . . Jólasveinaflokkur fer. Fimm þeir eru sýnist mér sveinamir í flokknum þeim og flýta sér. (Ort við lag eftir Gylfa Gunn- arsson, en það lag var áður not- að í eins konar óperu, sem búin var til fyrir skólakrakkana á Seyðisfirði einu sinni). •ír Lag: Ef þú giftist mér. Getur nokkur gefið mér grautarsleikju, brauð og smér? Já, j á, greyið, j æj a bara greyið, éttu á þig gat. Gæti ég fengið skyr í skál, skjöld af tólg og súrsað kál? Já, já, greyið o. s. frv. Ég gæti þegið á jólunum jólaköku með rúsínum. Já, já, greyið o. s. frv. Ég gæti borðað heilan hest af hangikjöti, því það er best. Já, já, greyið o. s. frv. Pott með skófum ég panta’að fá og pönnukökur með sykri á. Já, já, greyið o. s. frv. Hún mamma ykkar eflaust sauð alltof mikið laufabrauð. Já, já, greyið o. s. frv. Aldrei saddur ég orðið get, alveg sama hvað ég ét. Já, j á, greyið, j æj a bara greyið, éttu á þig gat. ☆ Lag: Sagan af okkur Stínu (sungið af Þokkabót). Það var nokkuð sem ég sá sigla fyrir Borgartá, sú var ekki siglan há og seglið furðulítið. Þeirri skel var eitthvað á afskaplega skrýtið. Þar var úti úfinn sjór, ekki sá ég, hvert hann fór, enda koppurinn ekki stór, sem aldan bar að landi. En eflaust lenti unnarjór uppi á fjörusandi. Þeirri skel var einhver á undarlegur til að sjá. Talið gat ég tvo og þrjá og talsvert miklu fleiri. En hitt er víst ég seinna sá segl hjá Vestdalseyri. Næstu daga einn og einn á ýmsum tímum jólasveinn þegjandi alveg eins og steinn arkaði gegnum bæinn. En á hann rakst víst aldrei neinn, allra síst á daginn. En þeir glettast ýmsa við og þeir halda fornum sið, kroppa bæði í kjöt og svið, af kertum hafa þeir gaman. Og líklega helst um lágnættið þeir leika sér margir saman. Aldrei heyrist í þeim vein og ekki neinum gera þeir mein og eftirsjá er ekki nein í því sem þeir taka. Þó að hrökkvi ein og ein ofan í þá kaka. Þegar kemur þrettándinn, þá kemur flótti í mannskapinn. í fjörunni bíður báturinn, sem ber þá senn frá landi. Jæja þá í þetta sinn, þeirra leysist vandi. Koppinn þann má seinna sjá sigla fyrir Borgartá, sú er ekki siglan há og seglið furðulítið. Þeirri skel er eitthvað á afskaplega skrýtið. ☆ Jólasnjór og jólagleði, jólatilfinning, upplyfting í glöðu geði, gleði allt um kring, þegar allt er allavega öðruvísi en venjulega. Jólasnjór og jólagleði, jólatilfinning. og Jólagjafir löngun leiða, létta undir brá, festa hugann, freista, seiða, fanga marga þrá. Hugsa um og horfa á, hlakka til og vilja fá. Jólagjafir löngun leiða, létta undir brá. en Jólafrí og jólamatur, jólaplötulag, liggja í sínu fleti flatur fram á miðjan dag. Fá sér ábót enn á ný, ekkert gera hlé á því. Jólafrí og jólamatur, jólaplötulag. heldur Jólaföt og jólasokkar, jólaskap á brá. Glóa í kertaljósi lokkar litlum kolli á. Allt er hreint og allt er þvegið, allt er nýjum ljóma slegið. Jólaföt og jólasokkar, jólaskap á brá. því Frelsarinn hann fæddist núna, frelsari þinn og minn. Frelsarinn jötu finnur búna, fyrsta bústað sinn, situr í kjöltu sæll og ungur, sinnar móður hvítvoðungur. Frelsarinn hann fæddist núna, frelsari þinn og minn. (Flutt á jólatónleikum í Seyð- isfjarðarkirkju). Lag: Komdu niður, kvað hún amma. Ég á fjölda bræðra, mikil ósköp, eina tólf, og oftastnær þeir sofa bara eða labba um gólf. En þegar gamla mútta verður reglulega reið og reiðir vöndinn, þá er best að flýja stystu leið. Einhvers staðar uppi á fjöllum er svo fullt af skrýtnum köllum. Jólasveinar, jólasveinar, jólasvéinar heita þeir. Þegar kemur desember, þá dröttumst við af stað og dólum niður hlíðarnar og ef þið vissuð það, að nefið á mér helst vill fara, þangað sem eldað er. Svo elti ég bara nefið á mér, hvert svo sem það fer. Einhvers staðar uppi á fjöllum . . . Þarna uppi á fjöllunum er feikilega kalt, og fannirnar svo stórar að þær ná bara yfir allt, og þá er gott að hafa bæði húfu og vettlinga, á heiðum uppi, það er ekkert fyrir kettlinga. Einhvers staðar uppi á fjöllum . . . Þegar ég til manna kem, er matarlyktin sterk og maginn alveg galtómur, þá fé ég bara verk, þá beint í eldhúsið ég snarast bita að fá mér strax, já, blessað hangikjötið eða svið og reyktan lax. Einhvers staðar uppi á fjöllum . . . Sumir verða hræddir, ef þeir sjá mig, ekki þið, og svona börn er afskaplega gott að tala við. En hvernig á því staðið getur, enn ég ekki skil, að allur þessi krakkafjöldi skuli vera til. Einhvers staðar uppi á fjöllum er svo fullt af skrýtnum köllum. Jólasveinar, jólasveinar, jólasveinar heita þeir.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.