Austurland


Austurland - 23.12.1984, Page 33

Austurland - 23.12.1984, Page 33
JÓLIN 1984. 31 hausaði hann, þar til hausinga- tréð var komið á kaf í fiski, því að hann var nú svona gerður, mátti helst ekkert aumt sjá. Beitumennimir á Eldfjallinu lækkuðu í loftinu, vegna þess að þeir hærri voru settir í aðgerðina og jafnvel urðu þeir svo litlir, að það þurfti að lána þeim kassa til að standa á, svo að þeir næðu upp í stampinn. Allt gekk þetta einhvern veginn, og enginn nefndi barna- vinnu og unglingaþrælkun. f>á var heldur ekki hálffullorðnu fólki stillt upp á kommóðu við hliðina á postulínshundum húsmóðurinnar og ef sextán til seytján ára slöttólfar, sem aldrei hafa drepið hendi í kalt vatn verða að lokum meiri og betri menn heldur en þeir, sem ekki náðu upp í stampana af Eldfjall- inu, já, þá er vel. Hún flaug fiskisagan og það fór að tínast til fjarðarins einn og einn bátur frá næstu fjörðum. f>eir áttu að sínu leyti verri að- búnað, þar sem þeir höfðu enga aðstöðu í landi, en þetta herti á sókn heimamanna við að reyna að ná sem mestu í sinn hlut. Við á Eldfjallinu sóttum sjó- inn af kappi. Hvorki þreyta, vosbúð né svefnleysi gat hamlað því. Sjómenn hafa svo sem nóg- an svefn, en ekki alltaf, þegar þeir þurfa hans helst með. Við reyndum að luma að formannin- um einum og einum klukku- tíma. Ekki af neinni vorkunn- semi, heldur til þess að hann yrði ekki svo ruglaður af svefn- leysi, að hann álpaðist út fyrir fiskinn. Alltaf færðist fiskigang- an nær og nær, og loksins var hún eins og veggur í fjarðar. mynninu. Hver fleyta hvort sem hún var stór eða smá, dró til sín góðan feng og hvern morgun var hrundið úr vör hverjum árabát, sem fyrirfannst á firðinum, nema einum. Bátur. Jóns í Vör stóð í fjör- unni. Tveggja manna far, hvítt með bikaðan botn og græna há- stokka, í góðri hirðu. En svo var það einn morgun, að Jón stóðst ekki mátið lengur og báru þeir bræður veiðarfæri sín til skips og hrundu til sjávar, héldu í fiskiróður og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en þeir fóru að nálgast miðin. Rennur þá fram úr þeim tveggja manna far, fullmannað og knúið áfram af þeim veiðiákafa, sem lét þá Jón ósnortna með öllu. í því bar að einn af aðkomubátunum og hafði sá reikula stefnu. Fór hann fram úr skammt frá þeim og sáu þeir, að enginn var við stýrið, og brá kynlega við, hvað slíkt draugaskip væri að gera um há- bjartan dag. Það skipti engum togum, að hann rann aftan á þann, sem á undan fór, og hvolfdi honum. Komst háseti á kjöl og náðu þeir honum, en formaðurinn hvarf í djúpið. Nú bar þá Jón að, fleygði Jón árun- um og seildist ofan í sjóinn og náði í hár manninum, er hann var að sökkva í þriðja skipti, og fékk borgið honum upp í bátinn. Var hann meðvitundar- lítill og hafði drukkið sjó. Reru þeir með hann til næsta bæjar og skildu við hann í góðra manna höndum, og héldu síðan áfram til fiskimiðanna. Jón lenti í Vör um kvöldið. Eitthvað höfðu þeir fengið af fiski. Þeir settu bát sinn og gengu sem tryggilegast frá öllu. Vafalítið tel ég, að eitthvað hafi þeir verið til sjós á sínum yngri árum, en ekki vissi ég til, að þeir færu á sjó eftir þetta, og má telja þetta velheppnaðan loka- róður, ef svo hefir verið, því að eitt mannslíf getur verið margra fiska virði, ef allt er talið. Nú fór fiskurinn að haga sér öðruvísi. Loðnutorfurnar voru gripnar af einhverri ókyrrð og ævintýralöngun og syntu nú hring eftir hring úti í dýpinu. Fiskurinn elti og það var eins og skylli á stormbylur, þegar mað- ur lenti í honum. Það hveraði af loðnu, fiski og fugli. En svo var það eina nóttina, að útþráin greip loðnuna föstum tökum. Morguninn eftir var hún farin og fiskurinn líka. Fuglinn elti, svo að eftir sátu bara nokkrir vanafastir múkkar, sem áttu heima í nálægum fuglabjörgum. Við lentum aldrei í honum um daginn og komum að landi um kvöldið með lítinn afla. Fiskurinn var genginn af, og nú sigraði svefninn. Allur fjörður- inn svaf og menn sváfu og sváfu, nema einstaka gamalmenni, sem hætt var að fylgjast með og undraðist nú þennan svefn í fólkinu. - Já, það var öðruvísi í mínu ungdæmi. - Á sveitabýl- unum stóð fénaðurinn málþola fram eftir degi. Það vaknaði enginn, en svo fóru menn að vakna og taka til við hin daglegu störf, sem setið höfðu á hakan- um. Presturinn fór að messa á sunnudögum og kennararnir hjúpuðu sig aftur með þessum menntunarblæ, sem gerir þá svo auðþekkta frá öðru fólki. Allar daglegar venjur komust í sitt gamla horf, og það voru af- þreyttir og vel útsofnir menn, sem hófu nú róðra að nýju á Eldfjallinu. Nú voru rólegir dagar, því að fiskigangan mikla var farin hjá. En svo fór fiskurinn að síga á miðin aftur og varð þolanlegur reytingur. En verðáttan hafði ekkert breyst. Það var norðaust- an illhryssingur og annað slagið þeytti hann krapaéljum inn yfir grátt og vetrarlegt landið. Við vorum orðnir langeygðir eftir vorinu og okkur varð tíðlitið í suður, en hafið var kuldalegt svo langt sem sást. Svo var það einn morguninn, þegar við komum á sjóinn, að hann var búinn að snúa sér á áttinni. Ennþá var hann jafn kaldur, en samt fannst mér ein- hver seiðandi ilmur berast til mín með þessum vindi sunnan úr hafinu og hann fyllti mig ein- hverjum óróleika, sem ég gat ekki almennilega gert mér grein fyrir. Við áttum nokkra stampa ódregna, þá varð mér litið til hafsins og ég sá fannhvítt blik- andi segl við hafsbrún. Nú, eins og stundum áður var þetta fyrsti vorboðinn. Við urðum hraðhentir við dráttinn og þegar við drógum síðasta bjóðið, sigldi hún framhjá í þéttings vindi, með hvert segl við hún. Já, hún var sannarlega tignarleg og þegar við tókum endabauj- una, flaug yfir okkur grágæsa- hópur í oddaflugi og stefndi á heiðarnar. Já, vorið var sannar- lega að koma með sól og sunn- anvind, Fransmenn, farfugla og ævintýr. Við héldum heimleiðis. Franska skútan var drjúgan spöl á undan okkur. Hún tók nauð- beit fyrir skershalann og fékk svo liðugan vind. Róleg og tígu- leg risti hún fjörðinn, og hún notaði síðustu dagsbirtuna og síðustu goluköstin utan af firð- inum til að leggjast við bryggj- una. Hún felldi seglin eins og þreyttur farfugl, sem leggur saman vængi sína á fjarlægri strönd. Morguninn eftir var logn á firðinum en sjáanlega stormur til hafsins. Formaðurinn sagðist ekki róa. Ekki er mér samt grunlaust, að úrslitum hafi vald- ið löngun okkar allra í franskt koníak, og voru nú margir á vakki á bryggjunni og mændu vonaraugum á þá frönsku, þeg- ar þeir fóru að tínast á fætur. En nú brá svo við, að þeir vildu engin viðskipti. Það var sama, hvað þeim var boðið. Þeir hristu bara höfuðið og horfðu flótta- lega í allar áttir. Svo kom kons- úllinn og gekk í káetu með skip- stjóra og stýrimanni og varð það löng ráðstefna. Síðan var kallað á formanninn á Eldfjallinu. Menn litu spyrjandi hver á ann- an. Hvað var eiginlega á seyði? Það leið langur tími, en að lokum kom formaðurinn og hafði auðsjáanlega fengið eitt- hvað í gogginn og nú upplýstist málið. Þeir voru hræddir, skút- an var fúin og lek og það var nú svona með Fransmenn, ef eitt- hvað var að, þá greip þá einhver múgsefjun og allt varð ómögu- legt. Þeir voru búnir að dæma skútuna ónýta. Þeir höfðu látið snemma úr höfn í Frakklandi, siglt hraðbyri til íslands og ekki haft neina viðdvöl á fiskimiðum. Nú voru þeir hér, en þeir voru ekki nægilega miklir menn til þess að dæma skútuna sína ó- nýta og jafnvel konsúllinn, sem stóð þarna á tali við skipstjór- ann, var það ekki heldur. Nei, hún þurfti að fara norður á Síl- isfjörð, og þar átti aðalkonsúll Frakka á íslandi að dæma hróið og svo mundi henni verða lagt við festar og þeir mundu liggja í henni, þar til ferð félli áleiðis til Frakklands, og mundu koma heim slippir og snauðir eftir gróðalitla ferð. Nei, það var engin ástæða til þess, að þeir færu að kaupa sjóvettlinga hér uppi á íslandi. Við gengum með formannin- um í beituskúrinn, og þar sagði hann okkur endinn: Frans- mennirnir þorðu ekki norður nema með því eina móti, að við færum með þeim á Eldfjallinu þeim til aðstoðar og til að draga þá upp úr sjónum, ef skútan sykki. Svo spurði hann okkur, hvort við vildum fara. Við þögðum, þar til ég lét í ljós hugs- anir okkar allra og spurði, hvort ætlast væri til, að við færum al- veg þurrbrjósta í þetta ferðalag. Formaðurinn hló og tók úr vas- anum fulla koníaksflösku, tók úr henni tappann og sagði okkur að gera svo vel. Ekkert var nú lengur til fyrirstöðu frá okkar hálfu, og gott var koníakið. Sagðist hann nú fara til frú Jakobson, því að nú var Jakob- son úti í Færeyjum, og heyra álit hennar á málinu og kom aftur með þau svör að ef við gætum farið í dag, léti hún bátinn falan fyrir peningaupphæð, er jafn- gilda mundi góðum róðri, og játti konsúllinn því. Var nú farið að búa sig til ferðar og varð úr, að við höfðum þá aftan í, að minnsta kosti til að byrja með. Var nú gengið frá sleftógi og bundið sem rammlegast. Já, eitthvað var hún farin að leka, í það minnsta koníaki. Það var orðið áliðið dags, er við lögðum af stað og átta Fransmenn. Þeir yngstu voru reknir um borð í Eldfjallið annaðhvort vegna þess, að þeir þóttu of ungir til að taka þátt í mannraunum á sökkvandi skútu eða vegna þess, að það var ekk- ert gagn í þeim. Þeir voru fyrir okkur og stóðu þarna á dekkinu álfalegir á svipinn og kunnu ekki einu sinni Fáskrúðsfjarðar- frönskuna, sem bæði Frans- menn og íslendingar töluðu eins og innfæddir. En ef einhver tal- aði háskólafrönsku, þá skildu hvorki Fjörðungar né Frans- menn. Nú var haldið út fjörðinn með Fransmenn í eftirdragi og bærð- ist varla hár á höfði, því að suðurfjöllin skýldu firðinum fyr- ir storminum, sem var fyrir utan. Samt fóru þeir frönsku að tína upp seglin og sungu við raust og brátt var hvert segl uppi og slettist til, eftir því sem skút- an valt á bárunni. Franski skip- stjórinn stóð í stafni og blístraði og glotti. Hann mundi víst ekki þurfa að blístra lengi, hann mundi víst fá nógan byr og svo fóru suðurfjöllin að sleppa taki sínu á vindinum. Hann fór að koma í gusum niður á sjóinn og skútan varð eins og óþægur hestur í taumi, sem varð því létt- ari sem vindurinn jókst óg í fjarðarmynninu skall stormur- inn á okkur. Þá höfðum við ekk- ert að gera í kappsiglingu við þá frönsku og brátt gnæfði hún yfir okkur, brjóstamikil, með rá og reiða. Við Finnur fórum að leysa sleftógið, en þá komu þeir frönsku og bönnuðu það alger- lega og lenti þarna í hálfgerðum stimpingum. Þvældist nú hver fyrir öðrum, en franska skútan sigldi fram hjá okkur með drjúg- um skrið og brátt mundi hún kippa í taugina og snúa Eldfjall- inu við, hvað svo, sem fleira gerðist. Á síðustu stundu kom for- maðurinn út úr stýrishúsinu með reidda öxi og hrukku þá allir undan. Hann hjó í sundur tógið um leið og strekkti á því og sat djúpt axarfarið eftir í borðstokknum. Já, það var sannkallað fransmannahögg og þeir frönsku sigldu til hafs og hurfu sjónum okkar í rökkrinu. Endinn á sleftrossunni skoppaði léttilega í kjölfarinu. Við urðum dálítið skrýtnir á svipinn, eins og fylgdarmenn verða, þegar þeir eru búnir að týna þeim, sem þeir eru að fylgja, en við vorum ekki búnir að týna þeim öllum. Þegar höggvið var á kaðalinn, fórnuðu þeir höndum og buldr- uðu eitthvað á sínu óskiljanlega máli. En þá fór nú heldur betur að gefa á bátinn og heyktust þeir niður í sjóslabbið vonleysislegir á svipinn, búnir að gefa frá sér alla sjálfsbjargarviðleitni, eins og fénaður, sem fluttur er í út- eyjar. Við drifum í því að koma þeim í lúkarinn, en lúkarinn á Eldfjallinu var ekki smíðaður fyrir þennan hóp. Nei, hann var smíðaður fyrir fáa fiskimenn, sem kunnu að láta fara lítið fyrir sér og gerðist nú þröngt á þingi. Urðum við að troða tveimur á bak við stigann og nú fór sjó- veikin að ásækja þá fyrir alvöru. Einkum varð mér starsýnt á annan þeirra, sem var á bak við stigann. Hann kófsvitnaði og skalf við og yfir andlit hans liðu gular og grænar bylgjur, þar sem það gægðist á milli stigariml- anna. Við forðuðum okkur upp og fólum þá guðum þeirra á vald. Ekkert höfðum við orðið var- ir við frönsku skútuna síðan hún hvarf í myrkrið. Hún var sjálf- sagt komin þangað sem regn- boginn endar. En hvað um það, þeir sem voru í lúkarnum, þurftu þó að komast á sinn áfangastað, og svölkuðum við því austur með landinu um nótt- ina í stórsjó og náttmyrkri. í birtingu vorum við komnir að mynni Sílisfjarðar og virtist þá veðrið harðna að mun. En það var nú ekki, heldur sáum 0

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.