Húsfreyjan - 01.12.1950, Page 9
GuSrún Gísladóttir,
forrn. kvenfélagsins „Kvik".
er 2900 kr. til Samkomuhússbyggingar
á Seyðisfirði, en það mál liefir alltaf
verið sérstakt áliugaefni félagsins.
ELLIHEIMILIÐ „HÖFN“.
Stœrsta viðfangsefni félagsins liefir ver-
ið stofnun og starfræksla elliheimilisins
á Seyðisfirði. Árið 1919 kom fram á fé-
lagsfundi tillaga frá Rakel Imsland og
Kristínu Wíum, um það, að félagið beitti
sér fyrir stofnun elliheimilis. Næsta ár,
á 20 ára afmæli félagsins, skutu félags-
konur saman nokkurri fjárhæð, sem verða
skyldi vísir að sjóði til stofnunar elli-
heimilis á Seyðisfirði. Á næsta fundi fé-
lagsins var samþykkt, að aðalmarkmið
félagsins skyldi fyrst um sinn vera að
hrinda máli þessu í framkvæmd. Voru
í því skyni lagðar fram 1000 kr. úr fé-
lagssjóði.
Síðan var fengið leyfi stjórnarráðs Is-
lands til þess að mega selja minningar-
spjiild fyrir sjóðinn. Á næstu árum vann
félagið að því að afla sjóðnum tekna
með leiksýningum, hlutaveltu o. fl. Auk
þess hárust honum nokkrar gjafir og
áheit.
Um áramót 1927—-1928 var sjóðurinn
orðinn 10.500 krónur. 1 ágústmánuði 1928
bauðst félaginu mjög hentug húseign til
kaups með aðgengilegum kjörum. Réðist
félagið í að kaupa eign þessa fyrir 16.500
kr., með 10 þús. króna greiðslu út í hönd,
en bankalán var tekið að upphæð 6.500
kr., sem greiðast skvldi á 15 árum, með
6'/4% vöxtum.
Húseignin stendur á mjög góðum stað
í bænum miðjum. Fylgir henni tún, sem
gefur af sér eitt kýrfóður, matjurta- og
blómagarður og útiliús, sem notað hefir
verið fyrir fjós og heygeymslu. Ýmsar
umbætur hafa verið gerðar á eigninni
síðan heimilið tók til starfa, svo sem
að endurnýja túngirðingu, byggja safn-
gryfju, járnklæða og mála húsið að ut-
an, setja í það vatnssalerni, bað og mið-
stöðvarhitun og dúkleggja gólfin, auk
almenns viðhalds á herbergjum. Innan-
stokksmunir og áhöld munu hafa verið
keypt fyrir ca. 2000 krónur.
Ellilieimilið „Höfn“ tók til starfa hinn
12. jan. 1929. Á heimilinu er pláss fyrir
12—15 vistmenn, auk starfsfólks. Að jafn-
aði hafa lieimilismenn verið frá 8 til 13,
en alls liafa dvalið þar frá upphafi 72
fastir vistmenn. Auk þess liafa dvalið þar
um stundarsakir allmargir aðkomandi
sjúklingar, sem verið hafa undir læknis-
hendi, eða beðið eftir spítalavist.
Alþingi veitti félaginu 2500 kr. styrk
upp í stofnkostnað lieimilisins, einnig
liefir það fengið árlegan rekstursstyrk úr
ríkissjóði. Seinna var lieimilinu veittur
styrkur úr Líknarsjóði íslands. Síðustu
þrjú árin liefir það ennfremur notið
styrks úr bæjarsjóði Seyðisfjarðarkaup-
staðar.
Meðlag vistmanna var frá byrjun og
frain til 1. okt. 1941 75 kr. á mánuði.
HÚSFREYJAN 9