Húsfreyjan - 01.12.1950, Blaðsíða 17
staklega fallegiir og fylgdi honum þessi
vísa frá gefandanum:
Þó að þú fáir frá mér stein
furðaðu þig samt ekki.
Mundu að það er ástin ein.
sem á scr stærsta hrekki.
En amma var ekki lengi a3 svara
þessari gjöf:
Skák þcr Elli, ekki neinn
eftir af þinum hlekkjum.
Á gamalsaldri gafst mcr steinn.
sem glitraði af ástarhrckkjum.
Glettni er í auga, geisli á hrá
i gleðinni enginn brcstur.
„Kyssti mig sól“, þó súldin grá
sé hér tíður gestur.
Ekki má ég skilja svo við stofuna,
gluggann og steinana, að ég nefni ekki
stein, langan og mjóan eins og kló; er
það steinrunninn sjávargróður. Á ein-
um stað er hola og kemst þar fyrir kerti,
en ekki þolir þessi steinn mikla birtu,
því að allur er hann þakinn ormum,
8teinrunnum. sem hringa sig hver um
annan. Við endum á gallsteini, sem amma
fékk á einu sjúkrahúsi hér, en honum
ætla ég ekki að lýsa, hann á sína sögu
eins og annað. Þessir tveir síðastnefndu
steinar eru ekki fallegir eins og gefur
að skilja, en hafa sitt gildi fyrir ömmu.
Þegar ég lít yfir þessar línur, sé ég livað
þær eru fátæklegar í samanburði við
alla þá dýrð, sem felst í steinunum henn-
ar ömmu.
Við gluggann sinn, fullan af steinum,
situr liún, og þó liún eigi sér marga
og fagra lieima, fulla af ýmiskonar æfin-
týrum, þá held ég, að henni þyki einna
vænzt um steinaríkið sitt.
Frú Áslaug Þórðardóttir
formaður „Hvítabandsins" Reykjavík
Fœdd 11.7. 1892 —Dóin 12.10. 1950
Hér^ verður aðeins getið um starfsferil
frú Áslaugar, en ekki annarra æviatriða.
Frú Áslaug liefir lagt drjúgan skerf
til félagsmála og líknarstarfsemi meðal
þjóðarinnar. Hún gekk í Hvítabandið
ung að aldri, og var þá ritari félagsins
um inörg ár, en nú í nokkur síðustu
árin var liún forntaður þess. Hún gekk
í Góðtemplararegluna 1936 og var starf-
andi í lienni ávallt síðan.
Sérstaklega tók hún ástfóstri við barna-
stúkuna Æskuna og þar vann liún mikið
og óeigingjarnt starf fyrir mörg böm
í þessari borg.
Hún var fríð kona, gáfuð og frjálsleg
í fasi. Starfsþráin og vinnugleðin var
henni í blóð borin, og þurfti liún oft
á því að halda, því utan hinna daglegu
starfa, sem öll voru vel af hendi leyst,
(frú Áslaug veitti forstöðu Baðhúsi
Reykjavíkur) átti hún fjölmörg áhuga-
mál, eins og áður er talið, bindindismál,
velferðarmál bamanna, líknarstarfsemi og
HÚSFREYJAN 17